Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201948 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Helgi Jónsson (lést 1993) og Sjöfn Guðmundsdóttir keyptu Lambhaga vorið 1970 og hófu þar búskap með 21 nautgrip og 28 ær við bágborinn húsakost. Helgi og Sjöfn eignuðust 6 börn og búa nú tveir synir þeirra í Lambhaga ásamt fjölskyldum sínum og móður og reka þau í sameiningu Lambhagabúið ehf. Í Lambhaga eru þrjú íbúðarhús og gripahús fyrir bústofninn. Núna er verið að byggja 1.700 m2 fjós fyrir tvo mjaltaþjóna og allt sem þeim tilheyrir og er áætlað að taka það í gagnið á komandi sumri. Býli: Lambhagi. Staðsett í sveit: Rangárvöllum, mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Ábúendur: Sjöfn Guðmundsdóttir, Ómar Helgason og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir. Börn: Kolfinna Sjöfn (12), Hafdís Laufey (7), Hrafnkell Frosti (5), Helgi Tómas (3). Björgvin Reynir Helgason og Dóra Steinsdóttir, börn: Ásberg Ævarr (7), Þorbjörg Helga (5), Steinn Skúli (2), Pétur Freyr (1). Stærð jarðar? Um 450 hektarar, þar af um 280 hektarar ræktað land, hluti af því nýttur til beitar. Um 1970 var jörðin nánast öll sandur og ræktað land aðeins um 20 hektarar. Ábúendur hafa verið iðnir í landgræslu og er nú nánast öll jörðin uppgrædd. Hafa einnig ræktað um 60 hektara af sandi frá Landgræðslu ríkisins og leigja og nýta nú sem tún. Gerð bús? Blandað bú með áherslu á mjólkurframleiðslu og nautakjötsframleiðslu. Fjöldi búfjár og tegundir? Um 450 nautgripir, þar af 95 mjólkurkýr og 75 holdakýr, 100 ær, 25 hænur, 3 hross, 2 „smalahundar“ og nokkrir kettir. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Mjaltir kvölds og morgna og gjöfum og öðrum tilfallandi verkefnum sinnt milli mjalta. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Öll verk sem tengjast vori og sumri skemmtileg, þegar vorlyktin er í lofti þá verður allt svo auðvelt og skemmtilegt. Leiðinlegast er þegar dýr eru veik (sjaldgæft, sem betur fer) og þegar skepnur tolla ekki þar sem þær eiga að vera. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Búskapur verður vonandi ívið meiri. Með aukinni tækni verða störfin auðveldari. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Þátttaka í félagsmálum bænda er gefandi og skemmtileg, en því miður oft og tíðum vanþakklát. Starfsumhverfi bænda er háð pólitískum ákvörðunum og því frekar óstöðugt og þarf bændaforystan ásamt stjórnvöldum að vinna að því að gera þetta starfsumhverfi stöðugra. Landbúnaður snýst ekki bara um búskap í sveit því ansi mörg störf á landinu skapast af landbúnaði. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Íslenskur landbúnaður er í stöðugri þróun og ýmis hagræðing mun eiga sér stað, t.d. við fóðuröflun, tækni og bústærð. Hreinleiki íslenskra landbúnaðarafurða mun fleyta okkur áfram. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Að markaðssetja íslenskar landbúnaðarafurðir sem dýrar, hreinar, lúxusvörur. Stærð íslensks landbúnaðar býður ekki upp á mikið magn til útflutnings. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólkurvörur, egg, íslenskt grænmeti og SS pylsur, að sjálfsögðu. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Ýmsir réttir úr Lambhaga-nautahakki. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar fæddust 6 kálfar á einum sólarhring, allir lifandi, og eins þegar 7 ær voru þrílembdar sama daginn. Chili-lambalundir „tacos“ með balsamic-rúsínum Lambakjöt er frábært í kryddaða rétti eins og taco. Lambið heldur bragðinu í bland við kryddið og hvort sem notað er hakk eða hægeldaður vöðvi – eða jafnvel lambalund snöggelduð á pönnu eða grilli. Lambakjötið er framreitt með mjúkum taco-vefjum sem eru eins konar pönnukökur úr maís, en oftast notað hveiti á Vesturlöndum. Vefjurnar fást í öllum matvöruverslunum. Vefjurnar eru fylltar með ljúffengu lambi, í chili-kryddlegi með ferskum lime-safa. Það er hægt að bæta við kryddlögðum rúsínum og sýrðum rjóma til að fullkomna réttinn. Þetta er líka frábær réttur með nauti eða svínakjöti. Kryddað lambakjöt › 2 matskeiðar fennelfræduft › 1 matskeið appelsínu- eða sítrónusafi › 1/2 tsk. cumin fræ, möluð › 1/8 teskeið negull, malaður › 1/8 teskeið paprikuduft › 3 rif hvítlaukur, marin eða fínt söxuð › 1 matskeið edik (hvítvíns eða epla) › 1 tsk. salt › 1/2 tsk. pipar › 1 tsk. sítrónu- eða limesafi › 1/2 tsk. sítrónu- eða limebörkur › 1 msk. góð chilisósa að eigin vali › 300 g lambakjöt (lundir) › 2 saxaðir chilipipar › 1 laukur, saxaður › 3 lárviðarlauf › 6 korn „tortillas“ vefjur (má nota hveiti pönnukökur) › Balsamic rúsínur (niðurlagðar í smá ediki) › 3 msk. kóríander, saxað › 3 msk. saxaður hvítlaukur › 1⁄3 bolli grænar ólífur, saxaðar (má sleppa) › 2 msk. rúsínur › ½ bolli balsamic edik › Limesafi til að bragðbæta með eftir smekk (½ til 1 lime) › Sýrður rjómi Aðferð Blandið saman fyrstu 12 innihaldsefnum til að mynda kryddlög. Nuddið lambi og kryddi saman, látið helst leggja yfir nótt, eða í um það bil átta klukkustundir. Hitið tvær matskeiðar af olíu á pönnu og brúnið lambakjötið (má nota grill). Ef panna er notuð, bætið söxuðum lauk út á hana og léttsteikið. Eldið á lágum hita þar til lambið er eldað eftir smekk. Setjið rúsínur og balsamic-edik í pott. Hitið og látið gufa upp þar til balsamic-edikið er orðið helmingur af upprunalegu magni. Fjarlægðu rúsínur með skeið, notið edikið sem salatdressingu ásamt smá olíu. Framreiðið með ólífum, kóríander, lauk og limesafa. Framreiðið volgar vefjurnar með áleggi og jafnvel salsa. Avókadó er ávöxtur Avókadó er næringarríkur ávöxtur, ekki grænmeti, sem tilheyrir ættkvíslinni Persea, Lauraceae fjölskyldunni – og er í raun ber. Svo gott er að setja avókadó í smoothie, og jafnvel í eftirrétti. Súkkulaðimús er sett í súkkulaði- skeljar, sem eru gerðar með því að nota húðina af avókadó (þú þarft ekki einu sinni að kaupa mót fyrir þessa uppskrift). Hér erum við með vegan-súkkulaði- uppskrift sem er nokkuð holl og jafnvel það góð að börn elska hana (uppskriftin er ekki vegan ef notaður er rjómi í súkkulaðisósuna, en hægt að nota kókósmjólk). Avókadó-hvítsúkkulaðiegg Þetta er frábær uppskrift, það tekur ekki einu sinni langan tíma að undirbúa hana. Ég myndi mæla með að borða hann sama dag því avókadó getur misst litinn við geymslu. Að framreiða í súkkulaðiskel er mjög fallegt. Allt sem þú þarft að gera er að hreinsa hálfan avókadó- börk og þá smyrja hann að innan með svolitlu af bræddu súkkulaði. Látið kólna og harðna, fjarlægið svo börkinn og þá eruð þið með fallegar súkkulaðiskeljar. Avókadó-súkkulaðimúsin er með aðeins fimm hráefni og bragðast guðdómlega. Að gera avókadó-súkkulaðiegg er frábær skemmtun, sérstaklega fyrir páskana. Fyrir fjögur avókadó- súkkulaðiegg: › Tvö þroskuð og mjúk avókadó › 150 g hvítt súkkulaði › 40 g sykur eða eitthvað annað hollt sætuefni, svo sem maplesíróp eða agavesíróp › 25 g kakósmjör eða kókosfeiti › 2 tsk. vanilluþykkni Aðferð Passa að nota tvö þroskuð og mjúk avókadó-aldin og skera þau í tvennt. Gakktu úr skugga um að þú haldir berkinum óskemmdum þar sem þú þarft að nota hann síðar. Aldinkjötið er tekið úr berkinum og sett til hliðar. Hreinsið börkinn vel og setjið til hliðar. Hitið upp 150 g af dökku súkkulaði í vatnsbaði (þið getið líka notað örbylgjuofn en verið varkár að súkkulaðið brenni ekki, best að taka það út áður en það er alveg bráðnað og hræra aðeins í því.) Penslið eða notið skeið til að setja brædda súkkulaðið inn í börkinn. Penslið súkkulaðið í kring til að ganga úr skugga um að hliðarnar séu vel hjúpaðar. Setjið í frysti þar til það er hart en það tekur innan við 30 mínútur. Hvít súkkulaði-avókadómús Blandið saman avókadó, kókosfitu, vanilluþykkni og hlynsíróp í matvinnsluvél og maukið þangað til allt er slétt. Bræðið hvítt súkkulaði í vatnsbaði. Setjið aðeins til hliðar til að kæla það. Þú getur einnig brætt súkkulaði í örbylgjuofni í 20 sekúndur í einu og hrært á milli. Blandið maukinu saman við hvíta súkkulaðið. Hellið blöndunni í glös eða avókadó-súkkulaðiskel og látið kólna í kæli í um fjórar klukkustundir. Skreytið með eigin vali, flott er að taka smá úr músinni með heitri skeið og fylla með bræddu súkkulaði og rjóma til að líkja eftir avókadó steini. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari Lambhagi Ómar, Margrét og börn. Dóra, Björgvin og börn. Sjöfn Guðmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.