Bændablaðið - 14.02.2019, Page 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201954
Einni milljón króna hefur verið
úthlutað úr Rannsóknarsjóði
Hrafnistu til þriggja verkefna í
þágu aldraðra. Markmið sjóðsins,
sem er í eigu Sjómannadagsráðs
höfuðborgarsvæðisins, eiganda
Hrafnistuheimilanna, er að
stuðla að nýjungum og þróun í
málefnum aldraðra. Sjóðurinn
er opinn öllum, einstaklingum,
fyrirtækjum og stofnunum, sem
að stunda rannsóknir, formlegt
nám eða annað sem stuðlað
getur að jákvæðri þróun í
málaflokknum. Þetta kemur fram
á vef Hrafnistu.
Berglind Soffía Blöndal,
næringarfræðingur og doktorsnemi
í næringarfræði, hlaut styrk að
upphæð 500 þúsund krónur.
Rannsóknarverkefni hennar ber
heitið Næringarmeðferð aldraðra
einstaklinga eftir útskrift af Land-
spítala Háskólasjúkrahúsi.
Markmið rannsóknarinnar
er að kanna útskrift aldraðra
einstaklinga samkvæmt Nutrition
Care Process meðferðaráætlun
ásamt heimsendum mat. Sérstaklega
samsettum með þarfir aldraðra í
huga, hafi áhrif á næringarástand,
vöðvastyrk, hreyfifærni, lífsgæði
og endurinnlögn á sjúkrahús eða
dauða eftir útskrift af öldrunardeild.
Samanborið við viðmiðunarhóp sem
er útskrifaður á hefðbundinn hátt, og
viðmiðunarhóp sem væri byggður
á sögulegum gögnum frá því áður
en útskriftarverkferillinn sem nú er
farið eftir var tekinn í notkun 2016.
Rannsóknin mun gefa upp-
lýsingar um vannæringu aldraðra
í heimahúsum og hvaða aðferðum
er best að beita til að sporna gegn
versnandi næringarástandi þeirra.
Niðurstöður munu breyta
verkferlum hvað varðar útskrift
aldraðra einstaklinga og opinberum
ráðleggingum um þjónustu við
þennan viðkvæma hóp ásamt því að
finna leiðir til þess að auka lífsgæði
aldraðra.
Bætt lífsgæði
með Nemaste
Elfa Þöll Grétarsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og sérfræðingur í hjúkrun
aldraðra, hlaut styrk að upphæð 300
þúsund krónur.
Verkefni hennar ber heitið
Þýðing og forprófun á lífsgæða-
mælikvarðanum: The quality of life
in late-stage dementia (QUALID).
Markmið verkefnisins er að leggja
grunn að markvissum leiðum til að
meta árangur af breyttu verklagi
eins og Namaste nálgun felur í sér.
Namaste umönnun hefur verið að
ryðja sér til rúms hér á landi sem
ný nálgun í umönnun einstaklinga
með heilabilun. Markmið þessarar
nálgunar er að bæta lífsgæði
einstaklinga með langt gengna
heilabilun með persónumiðaðri
vellíðunarmeðferð. Lífsgæða-
mælikvarðinn mun nýtast öllum
þeim sem starfa við umönnun og
þjónustu við einstaklinga með
heilabilun.
Lestrarþjálfun barna
með öldruðum
Hjúkrunarheimilin Hulduhlíð og
Uppsalir í Fjarðabyggð hlutu styrk
að upphæð 200 þúsund krónur.
Heiti vekefnisins er Ungur nemur
gamall temur.
Markmið verkefnisins er að
fá grunnskólabörn í heimsókn
á hjúkrunarheimilin og taka þar
þátt í lestrarátaki. Börnin æfa sig
í lestri með því að lesa fyrir íbúa
sem veita þeim leiðsögn meðan á
lestrinum stendur.
Margvíslegur ávinningur
verður af verkefninu; börnin
eflast í lestri, íbúar fá heimsóknir
grunn skólabarna sem dregur úr
einveru, auk þess sem þeir taka
þátt í uppbyggingarverkefni með
börnum. Með verkefninu er verið
að tengja saman kynslóðir, skapa
notalegan vettvang til eflingar
á yngstu og elstu kynslóðum
samfélagsins og fá ungviðið í
reglulegar heimsóknir. /MÞÞ
Lemigo stígvél. Létt, stöðug
ogslitsterk. Kr. 8.485.- með vsk. G.
Kvaran í Reykjavík, sími 824-7610.
Vantar nýjan eiganda. Toyota
Land Cruiser 100, árgerð 2000.
Vel viðhaldið. Keyrður 456.000
km. Sumar- og vetrardekk. Verð:
1.400.000 kr. Uppl. í síma 860-7060.
Mitsubishi L200, Double
cab,árg.2006 til sölu. Er með
bilaða vél og fæst því á góðu verði.
Ekinn 261 þúsund km. Staðsettur í
Hveragerði. Uppl. í síma 660-3908.
MuckTruck vélbörur 4x4. Burðarg.
250 kg, 3 gírar áfram og einn aftur.
Honda fjórg. mótor. Sparaðu bakið
www.bbl.is
Bændasamtök Íslands hafa opnað orlofsvef, www.orlof.is/bondi
Framvegis fara allar bókanir og greiðslur á orlofshúsum á
vegum samtakanna fram í gegnum orlofsvefinn.
Þar er nú opið fyrir bókanir á íbúð samtakanna í Þorrasölum
13–15, í Kópavogi, til ársloka 2019. Íbúðin er aðeins ætluð
félagsmönnum Bændasamtaka Íslands.
Allar nánari upplýsingar um íbúðina er að finna á orlofsvef BÍ.
ORLOFSÍBÚÐ BÍ
Bændasamtök Íslands,
Bændahöllinni við Hagatorg,
107 Reykjavík
Plast í fjárhúsgólf og stíur. Bása- og
drenmottur, útileiktæki, gúmmíhellur
og gervigras. Heildarlausnir
á leiksvæðum. Netfang: jh@
johannhelgi.is og sími 820-8096.
Til sölu Delaval mjaltaþjónn árg. 2006.
Uppfærður 2016. Einnig 2 kjarnfóður-
básar og 2 aðskilnaðarhlið. Verð 3,5
millj. + vsk. Uppl. í síma 894-1595.
Til sölu Suzuki Vitara árg. ́ 01. Góður
bíll, skoðaður ´19. Verð 100 þús. kr.
Uppl. í síma 869-2740, Ólafur.
Toyota Hilux 2004. Á 35" dekkjum.
Læstur framan og aftan. Úrhleypi-
búnaður. Snorkel. Keyrður 209.000
km. Góður bíll. Ásett verð 2.200.000 kr.
Uppl. í s. 693-5621 til kl. 21 á kvöldin.
Til sölu 2 fjórhjól, Polaris 800, árg.
2006 og 2007. Uppl. í síma 892-0157.
Xsperia ehf byggingafélag getur
tekið að sér smíðaverkefni. Vönduð
vinnubrögð og góð þjónusta. Hafið
samband í síma 694-9414.
Ráðskona óskast á l í t ið
sveitaheimili. Nánari upplýsingar í
síma 894-5063.
Fjölskylda með hrossabúgarð í
Danmörku óskar eftir að ráða au-pair
frá Íslandi. Heimilishjálp og að gæta
5 ára sonar. Faðirinn er bóndi og
móðirin hjúkrunarfræðingur. Uppl. Í
netfangið: tornerosefly@gmail.com
RG Bókhald bókhaldsþjónusta.
A lh l iða bókhaldsþjónusta,
vsk-skýrslur, skattaframtöl,
ársreikningar, launaútreikningar,
reikningagerð. Uppl. í netfangið:
ragna@rgbokhald.is
Tek að mér viðgerðir á flestum
tegundum sjálf skiptinga. Hafið
samband í síma 663-9589
til að fá uppl. og tilboð. HP
transmission Akureyri, netfang:
einar.g9@gmail.com, Einar G.
Óska eftir góðum Toyota Hilux, árg. 2000
eða yngri. 33 tommu dekk eða stærra
væri kostur, en skoða allt. Uppl. í síma
865-3962 eða litlivalli@gmail.com
Vefnaður/Rakgrind. Óska eftir að
kaupa notaða, vel með farna rakgrind
2-3 m. í ummál. Rammi kemur líka til
greina. Uppl. í síma 860-0265.
Óska eftir rörabeygjuvél. Er í síma
869-1870.
Til sölu
Óska eftir
Atvinna
Þjónusta
Border Collie - hvolpar til sölu. Til
sölu fjórir hreinræktaðir Border Collie
hvolpar. Þeir eru 10 vikna. Tvær
tíkur og tveir rakkar. Móðir: Ronja
frá Dalsmynni. Faðir: Rex frá Fjalli,
Skeiðum. Uppl. í síma: 486-6080.
Fjölskylda óskar eftir að flytja
í sveitina! Árborg og Ölfus eru
draumastaðsetningar en skoðum allt.
Erum að leitast eftir langtímaleigu.
Uppl. veitir Erna í s. 662-5417 eða
netfangið: ernasofie85@gmail.com
Reglusöm kona á besta aldri
óskar eftir einbýlishúsi á einni
hæð til leigu, með kaup í huga að
ári eða fyrr ef líkar. Staðsett í 801
Árborg, Flóahreppi eða Ölfusi, fjarri
umferðargný. Ekki í uppsveitum.
Toppleigjandi. Uppl. í síma 483-1041.
Kaffihús / matsölustaður til leigu.
Veitingarekstur Gamla barnaskólans,
Skógum, Fnjóskadal til leigu. Hentar
fyrir kaffihúsa- og matsölurekstur,
listsýningar og handverkssölu.
Staðsetning frábær, við munna
Vaðlaheiðarganga, aðeins 16 km frá
Akureyri, á móti Vaglaskógi. Uppl. í
síma 849-8902.
Dýrahald
Húsnæði
Til leigu
Rannsóknarstjóður Hrafnistu:
Þrjú verkefni fá styrki
Verðlaunahafarnir þrír frá vinstri, Ragnar Sigurðsson f.h. Fjarðabyggðar,
Berglind Soffía og Elfa Þöll, ásamt fulltrúum Sjómannadagsráðs og Hrafnistu
í stjórn úthlutunarnefndar rannsóknasjóðsins.