Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Side 4

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Side 4
Brunavarnanámskeið Námskeið fyrir brunavarnir Árnessýslu, í reykköfun, notkun handslökkvitækja og milli- froðu, var haldið á Selfossi dagana 24. og 25. apríl 1976. Fulltrúar Brunamálastofnunar ríkisins, sem héldu þetta námskeið, voru svo vinsamlegir „Slökkviliðsmanninum“, er þeir hringdu í und- irritaðan og buðu okkur að vera viðstadda þetta námskeið, sem við og þáðum, og hafi þeir hinar beztu þakkir fyrir. Brunavarnir Árnessýslu samanstanda af Slökkviliði Selfoss, sem í eru 25 menn, og er höfuðslökkvilið í sýslunni. Því til aðstoðar eru svo þjálfaðar sveitir í hverjum hreppi fyrir sig, sem er ætlað það hlutverk að annast fyrstu að- gerðir, ef voða ber að höndum, svo sem að bjarga fólki út úr brennandi húsi, birgja alla glugga og dyr og sjá til þess að slökkvilið það, sem kemur á vettvang, fái greiðan aðgang í vatn. Þessir hreppar eru: Gaulverjabæjarhreppur með 7 menn, Hraungerðishreppur, 6 menn, Sandvíkurhreppur, 7 menn, Skoðuð slökkvistöð Selfoss og tœkjabúnaður, undir leiðsögn Eggerts Vigfússonar slökkviliðstjóra. Hilmar Sölvason Skeiðahreppur, 7 menn, Villingafaoltshreppur, 8 menn. Námskeiðið hófst kl. 10 árdegis í Tryggva- skála á Selfossi með því að Gunnar Pétursson, starfsmaður Brunamálastofnunar ríkisins, bauð fundarmenn veikomna. Hann fjallaði fyrst um almenna slökkvitækni og sýndi kvikmynd mál- inu til glöggvunar. Næst var fjallað um reyk- köfun, sýnd reykköfunartæki og aðferðir við leit að fólki í þéttum reyk. Sýnd var kvikmynd frá Bandaríkjunum. — Leiðbeinandi var Guð- mundur Haraldsson. Sýnd var notkun millifroðu, bæði efni og notkun tækja, einnig var sýnd amerísk kvik- mynd í því sambandi. Þessa kynningu anncÁist slökkviliðsstjórinn á Selfossi, Eggert Vigfússon. Heyrir það til nýbreytni hjá Brunamálastofnun- inni, sem lofar mjög góðu, að fá slökkviliðs- stjóra hinna ýmsu staða til að taka þátt í stjórn- un námskeiðanna, og skilaði Eggert þessu verk- efni vel af hendi eins og hans var von og vísa. Síðan var farið á æfingarsvæði slökkviliðsins, þar sem einn maður, velviljaður slökkviliðinu, hefur léð því gamla 'hlöðu og fjárhús til æfinga, og var þar æfð reykköfun, þar sem menn skipt- ust á um að kafa hinn þykka reyk og bjarga út ímynduðu fólki ('brúðum). Þannig lauk fyrra degi þessa námskeiðs. 2 S LO KKVILIÐSMAÐU RINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.