Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Síða 7

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Síða 7
Bréf frá Suðureyri Nokkrir punktar frá Suðureyri við Súganda- fjörð, svona rétt til að láta vita að við erum a landakortinu, og verðum þar áfram. Eg mun hér á eftir stikla á stóru í sambandi við þrjú útköll hjá slökkviliði Súgandafjarðar, eitt átti sér stað í desember 1975, en hin tvö í janúar 1976, ásamt fleiru, sem vel má fljóta hér Guðjón Jónsson með. Það er sunnudagur 28. desember 1975, úti næðir norð-austan áttin, frsmur svöl, og skamm- degið ræður ríkjum, það er því ósköp notalegt að mega sofa eitthvað frameftir, en hvað slökkviliðsmenn hér snerti, átti allur svefn að vera í hófi. Það er kl. 06,20 sem við fáum boð um að eldur sé laus í einni af íbúðum þeim sem Piskiðjan h.f. á, og rekur fyrir starfsfólk sitt. Mér er tjáð að einn maður kunni að vera í íbúð- inni, málið horfir því mjög alvarlega við frá upphafi, eins og allir slökkviliðsmenn vita, þá er það æðsta markmið okkar að bjarga manns- lífum, það var tafarlaust farið inn í reykfyllta íbúðina, og þar inni á stofugólfi fannst maður- inn meðvitundarlaus. Honum var bjargað út, og umsvifalaust hafist handa með blástursað- ferð. A sama tíma voru gerð boð eftir hjúkrun- arkonu og sjúkraliða sem hér búa og starfa, þær komu svo von bráðar og höfðu meðferðis súrefnistæki, slökkviliðið á ekki slík tæki, en þau kona. Maðurinn komst aftur til meðvit- undar eftir um 20 mínútna blástur og súrefnis- gjöf, en það var talið öruggara að senda hann strax með snjóbíl í hendur lækna á Isafirði, þar náði maðurinn sér fljótt og vel, hér tókst því 'blessunarlega vel til, en það verður aldrei of oft brýnt fyrir fólki, að umgangast eldinn með fullri virðingu fyrir ægimætti hans, ef og þegar hann sleppur úr viðjum. Tjón af völdum elds urðu engin í þessu tilfelli. En nú gerðist stutt útkalla í milli. Föstu- daginn 2. janúar 1976 kl. 16.10 varð nánast sprenging í kyndiklefa að Aðalgötu 10 hér í bæ. Þetta er tvílyft íbúðarhús úr steinsteypu, byggt um eða upp úr 1945. Tvær fjölskyldur búa í húsinu. Atvikin höguðu því svo, að ég var stadd- ur inni við slökkvistöð laust upp úr kl. 16, en þá er ég leit yfir bæinn, sá ég kolsvartan reykj- armökk stíga með miklum krafti upp frá Að- algötu 10. Eg var því ákjósanlega staðsettur, og snaraðist upp í brunabíl, og ók honum út, á svipuðum tíma dreif að slökkviliðsmenn og var því strax unnt að fara með fullmannaðan brunabíl á brunastað. Brunahani ‘er þarna skammt frá og voru lagðar slöngur að honum og gert klárt, á sama tfma fóru tveir reykkafar- ar inn í kjallarann búnir 20 lbs. A.B.C. þur- duftstæki og 15 Ibs. koltvísýringstæki, og tókst að slökkva eldinn með þeim, enda eldur ekki magnaður, en þarna var þó veruleg hætta á útbreiðslu elds, þar sem gólf milli neðri hæðar og kjallara er úr timbri. Slökkviliðið fór ekki með vatn inn í húsið, en allmikið vatn rann upp úr hæðarkút í risi hússins, og olli það nokkr- um vatnsskemmdum á háðum hæðum, auk þess iurðu nokkrar reykskemmdir. Öhætt er að segja að flest hafi verið okkur í haginn við þetta útkall, nánast allir slökkviliðsmenn á leið til vinnu eftir kaffihlé, brunabíll svo gott sem í gangi, og gott veður, en það var svo allt önnur slökkviliðsmaðurinn 5

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.