Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Side 20
tilraunabruna er hægt að sýra kolefnið í líf-
rænustu efnunum algerlega í koltvísýring með
því að veita nógu súrefni að eldinum. Við venju-
legan bruna er aðstreymi súrefnis aldrei eins
og best verður á kosið, sumt af kolefninu sýr-
ist á ófullkominn hátt og myndar kolsýring.
Við birgðan glóðareld er hlutfall kolsýrings
miðað við koltvísýring venjulega meira en í eldi,
sem loftið leikur um og logar glatt.
Kolsýringur veldur köfnun, þar sem hann
binst rauðu blóðkornunum 210 sinnum betur
en súrefni, á sama tíma hindrar hann blóðið frá
því að losa sig við úrgangskolsýring, sem það
undir venjulegum kringumstæðum flytur til
lungnanna. Þessar verkanir gera kolsýringinn
'hættulegan í litlu magni eins og sýnt er hér að
neðan.
Öndun á 0.15% í eina klukkustund eða
0.05% í þrjár klukkustundir er hættuleg lífi.
Öndun á 0.4% er banvæn í minna en eina
klukkustund.
Öndun á 1.3% veldur öngviti í tveimur til
þremur andardráttum og dregur til dauða á
fáeinum mínútum.
Margir óvissuþættir svo sem áreynsla, hiti og
návist koltvísýrings og annara eitraðra bruna-
lofttegunda 'hafa áhrif á það magn kolsýrings
sem hægt er að anda að sér án þess að það
valdi varanlegu tjóni eða dauða.
Brennisteinsvetni.
Ófullkominn bruni lífrænna efna sem inni-
halda brennistein, myndar brennisteinsvetni.
Til dæmis myndast þessi lofttegund við bruna
á ull, skinnum, kjöti og hári. Brennisteinsvetni
þekkist á „fúleggjalykt“ sinni en þessi eiginleiki
er ekki nógu áreiðanlegur sem viðvörun.
Þegar magnið er meira en 0.02% fer lyktar-
skynið að bregðast og verður óvirkt eftir að efn-
inu hefur nokkrum sinnum verið andað ofan
í lungun.
Öndun á 0.04%—0.07% í meira en hálftíma
er hættuleg og getur valdið einkennum eins og
svima og innvortis truflunum auk þyrkings og
sársauka í öndunarkerfinu. Þegar magnið fer
yfir 0.07% verður efnið baneitrað, hefur áhrif
á taugakerfið og veldur geysihröðum andar-
drætti og loks öndunarlömun.
Þessir eiginleikar sýna fram á nauðsyn þess
að varúðarráðstafanir séu gerðar strax og
brennisteinsvetnis verður vart.
Brennisteinstvísýringur.
Fullkomin sýring á lífrænu efni sem inni-
heldur brennistein myndar brennisteinstvísýr-
ing sem verkar mjög ertandi á augu og lungu.
Sé magnið 0.05% er öndun á því talin hættuleg
jafnvel í skamman tíma.
Ammoníak.
Ammoníak myndast við bruna á efni sem
inniheldur köfnunarefni. Sem algengt kæliefni
í verslunar- og iðnaðarkælikerfum er ammon-
íak varasamt, ef það breiðist út á meðan bruna
stendur. Ammoníak verkar mjög ertandi á augu,
nef, háls og lungu og af þessum ástæðum geta
menn ekki haldist lengi við í ammoníaksmeng-
uðu lofti án þess að verða fyrir alvarlegu tjóni.
Öndun á 0,25% ammoníaki í hálfa klukkustund
nægir til að valda alvarlegum skaða eða jafnvel
dauða.
V etnisblásýringur.
Vetnisblásýringur er mjög eitraður, en mynd-
ast yfirleitt ekki í hættulegu magni við bruna.
Það myndast þegar vatn og sýrur verka á blá-
sýringinn og getur orðið til við ófullkominn
bruna á vissum efnum sem innihalda köfnunar-
efni svo sem ull, silki og vissum plastvarningi.
Vetnis'blásýringur er meindýraeitur og skapar
hættu þegar byggingar þar sem notkun þess á
sér stað brenna. Öndun á 0.03% er banvæn. Ein-
kennandi ,,möndlulykt“ gefur stundum návist
þess til kynna, en ekki má treysta því í öllum
tilvikum, þar sem önnur lykt getur verið ríkj-
andi og lyktarskynið getur hafa slæfst.
Köfnunarefnistvísýringur.
Köfnunarefnistvísýringurinn er feiknilega
eitraður; það magn í lofti sem óhætt er að anda
að sér í fáeinar mínútur er 0.0025%. Hann
myndast með öðrum köfnunarefnisoxíðum við
13
SLOKKVILIÐSMAÐURINN