Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Blaðsíða 27
áður Ytri-Akraneshreppur, en er nú kaupstaður
er ber nafnið Akranes.
Árið 1889 eru 504 íbúar á Akranesi. Árið 1920
938 íbúar, árið 1950 3850 íbúar og 1980 eru íbúar
5200 í Akraneskaupstað. Þeim hefur fjölgað úr
4644 á þremur s.l. árum eða um 12%. Fjölgun
þessi er allt að því fjórföld á við landsmeðaltal.
Hvernig er svo Akranes í dag?
ATVINNULÍF
Sjávarútvegur og fiskvinnsla hefur lengst af
verið aðalatvinnuvegur Akurnesinga. Á síðari
árum hefur iðnaður og þjónusta aukist verulega
og lætur nærri að atvinnulífmu megi skipta í þrjá
jafna hluta. Fiskveiðar og fiskvinnslu, verslun og
þjónustu, iðju og iðnað.
FISKVEIÐAR OG FISKVINNSLA
Fjögur frystihús starfa í bænum, fiskimjöls-
verksmiðja og nokkur önnur fiskvinnslufyrir-
Slökkvitæki
Reykskynjarar
Danfoss kranar
Rör og fittings
Verkfæri
Vinnufatnaður
Útgerðarvörur
Veiðarfœraverzlun
AX£I 5VHIM8iöKM-SSOM Slí.
Hofnarbraut — Símar 1979 og 1131 — Akranesi
tæki. Stærst er frystihús Haraldar Böðvarssonar.
Fyrirtækið var stofnsett 1906. Hin eru frystihúsið
Haförninn, fyrstihús Þórðar Óskarssonar og
frystihúsið Heimaskagi.
Þrír togarar eru gerðir út héðan: Haraldur
Böðvarsson 2991, Krossvík 2961 og Óskar Magn-
ússon 499 t. Einnig fískiskipin Bjarni Ólafsson
1024 t og Víkingur 1000 t og 9 bátar 100-500 t,
auk um 60 minni báta og smábáta. Á s.l. ári var
landað af sjávarafla alls 71.600 t.
Vöruflutningar að meðtöldu hráefni til Sem-
entsverksmiðju ríkisins nema um 370.000 tonn
árlega. Auk þess eru talsverðir vöruflutningar
með m/s Akraborg, sem flytur árlega liðlega
60.000 bíla og 200.000 farþega milli Reykjavíkur
og Akraness.
Stærsta iðnfyrirtækið er Sementsverksmiðja
ríkisins, sem framleiðir um 120.000 t af sementi
árlega og hefur 150 starfsmenn. Skipasmíðastöð
Glerslípun
Akraness hf.
Vesturgötu 65 - Sími 2028
E inangrunargler
Öryggisg/er
Hamrað g/er
Speg/agerð
/nnrömmun
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 25