Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Blaðsíða 47
^ökvaeldsneyti eða eldsneyti, sem breytist í
vökva við venjulegt hitastig, gefur venjulega frá
sér þykkan, svartan reyk. Olíur, tjara, lakk,
sýróp, sykur, gúmmí, brennisteinn og áþekk efni
§efa vanalega frá sér þykkan reyk í miklu magni.
Opnun byggingar getur stuðlað að upphleðslu
reyksins á svæðum, sem eldurinn hefur að öðru
!eyti engin áhrif á. Ef eldur kemur upp í einum
enda vistarveru og lóðrétt op er á hinum endanum
verða reykur og lofttegundir að fara yfír alla
vistarveruna til að sleppa út. Þannig getur öll
vistarveran fyllst af reyk áður en hann birtist á efri
h$ðunum, einkum ef eldurinn kemur upp í
kjallara. Ef vindur stendur á hlið, þegar eldur
hefst, getur hann myndað nægilegan þrýsting
'nni til að reykurinn og lofttegundirnar breiðist út
Urn alla bygginguna. Sameiginleg tengsl við
afastar byggingar geta orðið til þess að reykurinn
^irtist fyrr í þeim byggingum en þeirri, þar sem
hann kom upp.
8. REYKSPRENGING
Notkun orðsins „sprenging” er svo algeng, að
venjuleg merking þess gefur ætíð í skyn
skyndilega eða fyrirvaralausa útlausn orku. Sú
staðreynd að sprenging er tengsl orsaka og
afleiðinga er sjaldan tekin með í reikninginn, en
það er frá sjónarhorni, sem slökkviliðsmenn verða
að kynna sér sprengingar. I sérhæfðri merkingu
er reyksprenging útlausn orku, sem myndast
hefur við öra sýringu.
Munurinn á eldi og sprengingu er fyrst og
fremst fólginn í hraða orkuútlausnarinnar.
Raunhæf aðferð til að skýra þennan mun er sú, að
sprenging myndar afl, sem við útlausn veldur
tjóni vegna þrýstikrafts orkunnar. Kraftur
sprengingar er meira háður hraða orkuúr-
lausnarinnar en magni þeirrar orku sem leysist út.
Við bruna gufa upp eldfimar lofttegundir úr
brennanlegu efni í eða nálægt eldinum. Þegar
þessar eldsneytislofttegundir eru hitaðar upp að
kveikimarki brenna þær, ef nægilegt súrefni er til
staðar. Ef súrefnið er ónógt, geta óbrunnar
lofttegundir safnast saman í „hólf’ um alla
bygginguna eða fyllt hana alla. Slíkar aðstæður
þarfnast aðeins aðstreymis nægilega fersks lofts á
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 45