Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Side 6
6
LSS flytur og ræður nýjan framkvæmdastjóra
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fer í gegnum
miklar skipulagsbreytingar á næstu vikum og mánuðum því fyrir
dyrum standa flutningar og ráðning nýs framkvæmdastjóra. Þetta
er gert samkvæmt samþykkt ársfundar sambandsins sem haldinn
var í lok mars. Vernharð Guðnason, formaður LSS, segist vonast
til að breytingarnar veiti sambandinu aukinn kraft og verði til þess
að þjónusta við félagsmenn aukist. Gert er ráð fyrir að Vernharð
fari í hlutastarf þegar nýr, löglærður framkvæmdastjóri hefur verið
ráðinn í fullt starf.
- Við samþykktum á ársfundinum að flytja starfsemina úr
Tjarnargötu í húsnæði Lögreglufélags Reykjavíkur að Brautarholti
30. Við leigjum þar gott húsnæði á 2. hæð. Þar eru þrjár skrif-
stofur og fundaaðstaða og aðgengi allt mun betra en í Tjarnargöt-
unni. A fyrstu hæð hússins er fundasalur fyrir 50-70 manns ásamt
veitingaaðstöðu. Eftir flutningana getum við haft alla okkar starf-
semi undir sama þaki því salurinn á fyrstu hæðinni rúmar vel full-
trúaráðsfundi, ársfundi og landsþing okkar, segir Vernharð. Hann
býst við að skrifstofa LSS verði opnuð á nýja staðnum mánudag-
inn 2. júlí næstkomandi.
Ársfundurinn samþykkti einnig að ráða lögfræðing í stöðu
framkvæmdastjóra og segist Vernharð búast við að gengið verði frá
ráðningu síðsumars. Formaðurinn fer þá að öllum líkindum í um
20 prósent starfshlutfall og sinnir þá í ríkari mæli starfi sínu sem
slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá SHS.
- Það má segja að með ráðningu framkvæmdastjóra færum við
starfið yfir á annað stig því flest erindi sem okkur berast þurfa á
einhvern hátt lögfræðilega meðferð. Hingað til höfum við leitað til
lögfræðistofu úti í bæ með tilheyrandi kostnaði. Eg bind vonir við
að þessar breytingar verði starfi okkar lyftistöng og komi félags-
mönnum beint og óbeint til góða, segir Vernharð.
580 nemendur í Sjúkraflutningaskólanum í vetur
Föstudaginn 1. júní 2007 fór útskrift nemenda Sjúkraflutn-
ingaskólans fram við hátíðlega athöfn á FSA. Að þessu sinni
útskrifuðust 41 sem lokið höfðu almennu námskeiði í sjúkra-
flutningum. I ræðu skólastjóra, var meðal annars rakin starf-
semi skólans á síðastliðnu skólaári og þar kom fram að 580
nemendur sóttu námskeið á vegum Sjúkraflutningaskólans
veturinn 2006-2007. Námskeiðin voru haldin um allt land
og fór staðsetningin eftir því hvar þörfin var fyrir námskeiðin.
Skólaárið var viðburðaríkt að vanda og verkefnin mörg sem
Sjúkraflutningaskólinn vann að.
Eftir afhendingu sldrteina var öllum útskriharnemendum óskað
velgengni í starfi og jafnframt voru þeir minntir á mikilvægi þess
að stunda endur- og símenntun. Einnig þakkaði skólastjóri öllum
leiðbeinendum og öðrum sem að starfinu hafa komið kærlega
fyrir vel unnin störf. í lok athafnarinnar voru kynntar niðurstöður
vefkönnunar sem fjallar um menntun og þjálfun sjúkraflutninga-
manna. Einnig fluttu ávörp Sveinn Magnússon, fulltrúi stjórnar
Sjúkraflutningaskólans, Stefnir Snorrason, fulltrúi leiðbeinanda,
og Urður Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur og nýútskrifaður
sjúkraflutningamaður frá Selfossi.
SUT ehf / m:;ani iui
öruggari framtíð
umhverfistækni ehf - Fossnes A - 800 Selfoss - sími: 480 8050 -
www.sut.is - sut@sut.is
Villt þú skapa þínum slökkviliðs-
mönnum öruggari og léttari
vinnuaðstööu við slökkvistarf?
ONE-SEVEN gerir það mögulegt.
/Itingarkennd ONE-SEVEN
sknin gerir kleyft að slökkva allar
eröir bruna fljótt og örugglega,
itns- og umhverfisskaöa.
án
one seven
Við bjóðum mikiö úrval slökkvi og björgunarbúnaðs frá eftirtöldum fyrirtækjum:
Gimaex, Marte, Riffaud, Gicar, Rechners, Litech, Weber Hydroulik,
FTE, Liftservice, Vetter og Öko-Tech
--------
Slökkvi