Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Qupperneq 8

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Qupperneq 8
8 Brunamálaskólinn fékk aðstöðu á Miðnesheiðinni Jónína Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, tók nýverið formlega í notkun nýtt húsnæði Brunamálaskólans á gamla varn- arsvæðinu á Miðnesheiði. Skólinn hefur ekki áður haft fast aðset- ur. Björn Karlsson brunamálastjóri segist binda vonir við að nýja húsnæðið verði starfseminni lyftistöng enda skipti hún miklu um hvernig staðið er að eldvörnum, björgun og slökkvistarfi um allt land og þar með öryggi landsmanna. Góð aðstaða er til bóklegrar og verklegrar kennslu fyrir nemendur skólans sem eru árlega á bilinu 200-300 talsins. Húsnæðið er 400 fermetrar að stærð. Þar eru kennslustofur og starfsaðstaða íyrir skólastjóra og kennara, auk 100 fermetra aðstöðu til verklegrar kennslu. Að sögn Elísabetar Pálmadótt- ur skólastjóra er góð aðstaða á svæðinu til að kenna reykköfun, björgun úr bílflökum, neyðarakstur og fleira sem slökkviliðsmenn læra á námskeiðum skólans. Brunamálaskólinn hefur verið starfræktur á vegum Bruna- málastofnunar frá stofnun hans árið 1994. Hlutverk skólans er að veita slökkviliðsmönnum og eldvarnaeftirlitsmönnum um allt land þá menntun, starfsþjálfun og endurmenntun sem nauðsyn- leg er vegna starfa þeirra. jónína Bjartmarz ávarpaði gesti og tók húsnœði Brunamálaskólans formlega í notkun. kkar abyrgð Brunamálastofnun og slökkviliðin í landinu stuðla að öryggi almennings með öflugum eldvörnum og viðbrögðum við eldsvoðum ogannarri vá. Þar skipta líf og heilsa fólks mestu. Almenningur væntir þess að slökkviliðin uppfylli ávallt fyllstu kröfur um hæfni, þjálfun og búnað. Það er okkar ábyrgð að standa undir þessum væntingum. Menntun og þjálfun eru lykill aðárangri íslökkvistörfum. Brunamálaskólinn annastgrunn-, framhalds- og endurmenntun íslenskra slökkviliðsmanna. Er kominn tími á að þú setjist á skólabekk? Kynntu þér starf og námskeið Bruna- málaskólans á www.brunamal.is og leitaðu nánari upplýsinga hjá skólastjóra (elisabet@brunamal.is). Brunamálastofnun Skúlagata 21 101 Reykjavík Sími 591 6000 Fax 591 6001 brunamal@brunamal.is www.brunamal.is

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.