Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Blaðsíða 9

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Blaðsíða 9
9 Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag íslands Slökkviliðin fá fræðsluefni um eldvarnir á erlendum tungumálum Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Islands (EBI) hefur geflð út bæklinga um grunnatriði eldvarna á sjö erlendum tungumálum, auk íslensku. EBI býður slökkviliðum landsins bæklingana til notkunar án endurgjalds og eru þeir þegar komnir í talsverða dreifmgu víða um land. Efnið er ætlað innflytjendum og útlendingum sem búa og starfa hér á landi um lengri og skemmri tíma. Bæklingarnir eru tveir og í þeim er fjallað um reykskynjara, flótta úr brennandi íbúð, slökkvitæki og fleiri grunnatriði eldvarna á heimilum. Þá er fjallað um neyðarnúmerið, 112, og Hjálparsíma Rauða krossins en Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði áður gefið efnið út í samvinnu við 112 og Rauða kross Islands. Alþjóðahúsið þýddi efnið á ensku, pólsku, rússnesku, litháísku, spænsku, tælensku og serbnesku. EBI vill með útgáfu bæklinganna tryggja að stór slökkvilið sem smá geti brugðist við breyttum aðstæðum og veitt nýjum íbúum sveitarfélaganna upplýsingar sem stuðla að auknu öryggi þeirra. Félagið er í sameign einstaklinga, fýrirtækja og sveitarfélaga. Einn helsti tilgangur þess er að stuðla að eflingu brunavarna og slökkviliða og styðja alhliða forvarnastarf í sveitarfélögum. Fire Preparedness Protecting lives, safeguarding health Sistemas contra incendios Protegiendo la vida y la salud miila\inuoF)SntJ iwafmtjiJaa6irítiíia')‘B:5ema£cj‘iimw Protivpozarne mere Da bi se spasili zivoti i saéuvaio zdravlje BRUNABÓT Eldvarnir að vernda iif og heilsu Instrukcje przeciwpozarowe majqce na celu ratowanie zycia i zdrowia ludzkiego noxapHaa 6e3onacHOCTb : 3aUtMUtaeT >KM3Hb M 3fl0p0Bb6 Priesgaisriné apsauga gyvybei ir sveikatai uztikrinti / \ 1 'jebT 1 „1 1 r BRUNABÓT 187 þúsund neyðarsímtöl til 112 Neyðarverðir 112 afgreiddu 186.929 neyðarsímtöl á árinu 2006 og fjölgaði neyðarsímtölum um fjögur prósent frá árinu á undan. I meira en helmingi tilvika var leitað eftir aðstoð lögreglu eða 109.331 sinnum (58%). Nær 29 þúsund erindi (15%) bár- ust vegna sjúkraflutninga og fjölgaði þeim umtalsvert frá 2005. Tæplega 18 þúsund erindi voru vegna slysa og aðstoðar lækna og 4.651 sinni var óskað eftir aðstoð slökkviliða. Heildarfjöldi inn- hringinga í 112 á árinu var 263.430 og fjöldi SMS skeyta 261. 112 annast neyðarsímsvörun og boðun fyrir alla viðbragðs- aðila vegna slysa, eldsvoða, afbrota, leitar, björgunar og nátt- úruhamfara hvort sem er á landi, sjó eða í lofti. Auk þess annast 112 símsvörun fyrir barnaverndarnefndir landsins. Neyðarverð- ir eru á vakt allan sólarhringinn, árið um kring. Hlutverk neyðarvarða er að svara erindum á sem skemmstum tíma, greina þau, boða viðeigandi viðbragðsaðila, veita hringj- anda og viðbragðsaðilum þjónustu á meðan á útkalli og aðgerð- um stendur og loks að gera skýrslu um atvikið. Viðbragðsaðilar gera miklar kröfur til 112 og er stöðugt unnið að því í samvinnu við þá að bæta þjónustuna og stytta viðbragðstíma. Meðal svartími árið 2006 var 3,23 sekúndur og styttist frá árinu á undan. Neyðarsímtöl 2006 Tölur frá 2005 innan sviga. Aðstoð lögreglu 109.331 (85.944) Sjúkraflutningar 28.935 (22.910) Annað 21.239 (54.710) Slys 9.196 (4.165) Aðstoð læknis 8.649 (2.992) Aðstoð slökkviliðs 4.651 (4.536) Aðstoð 2.165 (1.544) Heimahlynning 1.139 (1.323) Leit og björgun 1.081 (759) Náttúra og veður 211 (91) Barnaverndarmál 155 (561) Flugslys 97 (49) Mengun 57 (25) Hafnavernd 21 (12) Almenn neyðarþjónusta 2 (160) Samtals 186.929 (179.781) Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.