Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Síða 21

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Síða 21
21 „Það var síðan gífurlega merkur áfangi þegar lögum um bruna- varnir var breytt 1994 og fest í lög að starf slökkviliðsmanns væri löggilt starfsheiti og til þess að gegna því þyrfti tilskylda menntun. Það hafði verið eitt af okkar stærstu baráttumálum.“ á þróunina í menntun stéttarinnar. Það var síðan gífurlega merkur áfangi þegar lögum um brunavarnir var breytt 1994 og fest í lög að starf slökkviliðsmanns væri löggilt starfsheiti og til þess að gegna því þyrfti tilskylda menntun. Það hafði verið eitt af okkar stærstu baráttumálum, segir Guð- mundur. Sameinast um meginmálin Margra merkra áfanga er að minnast þegar litið er yfir farinn veg síðustu 15 ára. Einn mesti ávinningurinn að mati Guðmundar er að tekist hefur að gera LSS að baráttu- tæki á landsvísu fyrir bæði slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn. — Það má þakka þeirri samstöðu og ein- drægni sem stéttin hefur sýnt, baklandið hefur alltaf verið sterkt. Ef litið er til félags- mála slökkviliða í öðrum löndum er óhætt að segja að við séum í fararbroddi hvað varðar réttindabaráttu og faglega ábyrgð. Það hefur einmitt ævinlega verið kjarninn í okkar starfi, að fella saman réttindabaráttu og faglegar áherslur, að leggja metnað í að bæta og auka þjónustuna jafnhliða kjara- baráttunni. Eg vona að LSS lánist að hafa þetta leiðarljós með sér inn í framtíðina. I mínum huga er alveg ljóst að LSS er fjör- egg stéttarinnar og til að varðveita það og þróa verða menn að mínu viti að gæta þess að sameinast um meginmálefnin en víkja dægurþrasi til hliðar þegar á reynir. Það held ég að okkur hafi tekist giftusamlega á þeirri göngu sem ég fékk að leiða fyrsta áratuginn eftir stofnun sambandsins og ég vona að svo verði áfram um ókomna tíð, segir Guðmundur Vignir. Lít stoltur um öxl Það dylst engum að Guðmundur Vignir ber hag slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna mjög fyrir brjósti þótt hann hafi sjálfur horfið til annarra starfa og verið áhorfandi að þróun mála um skeið. Hann segist líta stoltur um öxl þar sem hann situr og rifjar upp feril sinn í réttinda- og kjara- baráttunni. - Eg sé ekki eftir neinu, síður en svo. Það hreyfðist ekkert framávið baráttulaust og stundum tefldum við á tæpasta vað í kröfu- gerð okkar og baráttu. Oft var erfitt að glíma við harðsnúið lið stjórnmálamanna og embættismanna sem höfðu annara hags- muna að gæta en við. En ég er sannfærður um að viðsemjendur okkar hafi borið virð- ingu fyrir okkur og okkar málstað. — Það viðhorf sem ég tel að hafi skipt einna mestu máli fyrir okkur var að sam- eina faglegan áhuga og baráttu fyrir aukn- um réttindum og betri kjörum. Ég vona að stéttinni auðnist að halda áfram á sömu braut. Við eigum að gera kröfur til okkar sjálfra og sýna ábyrgð og alúð gagnvart þeim sem njóta þjónustu okkar. - Það sem heillaði mig einna mest í störfum mínum að félagsmálum var að finna fyrir vaxandi þekkingu og reynslu og fmna að mín var þörf í þessari baráttu. Eg gaf af mér og uppskar í vaxandi viðurkenn- ingu og virðingu fyrir stéttinni, auk bættra kjara. Ég tel að LSS, þetta fjöregg stétt- arinnar, hafi verið í góðum höndum frá því „Það viðhorf sem ég tel að hafi skipt einna mestu máli fyrir okkur var að sameina faglegan áhuga og baráttu fyrir auknum réttindum og betri kjörum. Ég vona að stéttinni auðnist að halda áfram á sömu braut. Við eigum að gera kröfur til okkar sjálfra og sýna ábyrgð og alúð gagnvart þeim sem njóta þjónustu okkar.“ ég lét af störfum og tel að svo verði áfram á meðan menn gleyma ekki að aðeins með því að vera í fararbroddi faglega njótum við stuðnings almennings. Það getur ekki annað en leitt til réttmætra kjara fyrir þessi mikilvægu störf, eins og vera ber, segir Guðmundur Vignir. Átta nýir sjúkrabílar frá Rauða krossinum Rauði krossinn keypti átta nýja sjúkra- bíla á árinu 2006. Þeir eru komnir í notkun hjá sex slökkviliðum. Tveir hafa verið afhentir Slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins, tveir fóru til Brunavarna Suðurnesja, einn til Slökkviliðs Akra- ness, einn á Selfoss, einn til Isafjarðar og einn bíll fór til Brunavarna Skagafjarð- ar. Bílarnir eru allir af gerðinni Benz Sprinter. Gert er ráð fyrir að nýjum sjúkrabílum fjölgi talsvert á þessu ári en Rauði krossinn á nú 77 sjúkrabíla sem eru í rekstri um allt land. GLOFAXIHF ARMULA 42, 108 REYKJAVIK SÍMAR 553 4236 & 553 5336 FAX 588 8336 Eldvörn er nauðsyn ELDVARNARHURÐIR Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.