Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Qupperneq 23

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Qupperneq 23
23 - I hönnun álversins er gert ráð fyrir ákveðnum brunakröfum sem að hluta til eru uppfylltar með sólarhringsvakt slökkviliðs. A lóðinni er mikill fjöldi vinn- andi fólks og því skiptir máli að menn bregðist fljótt við þar. I álverum eru starf- andi slökkvilið sem sinna fyrsta viðbragði. Stærstur hluti þeirra bruna sem geta orðið í álverum krefst sérbúnaðar og sérþjálfaðra manna. Þarna er unnið með bráðið ál og málm sem krefst sérstakra viðbragða þar sem hitinn er mjög mikill. Á álverslóðinni er líka notuð mikil raforka og umhverfið sérstakt þannig að þjálfa þarf sérstaklega menn til að bregðast við þeim hættum sem eru þarna til staðar, segir Guðmundur Helgi. Fjarðaál leggur slökkviliðinu til fimmtíu manna lið í varateymi. - Það fólk vinnur í álverinu og verður þar á vöktum, en við höfum alltaf aðgang að mönnum á hverri vakt í útkall, hvort sem þau eru innan eða utan álverssvæð- is. Um leið og útkall er í öryggismiðstöð- inni hjá okkur, koma inn í stöðina menn frá álverinu. Það fer svo eftir útkallinu hversu margir það eru og að auki eigum við aðgang að varaliðinu sem ekki er á vakt, bæði okkar mönnum í atvinnuliðinu og hlutastarfandi mönnum sem eru í álverslið- inu. Þar að auki er svo stutt í hlutastarfandi liðið á Fáskrúðsfirði en heldur lengra í liðin á Norðfirði og Stöðvarfirði. Ný slökkvistöð Heimahöfn slökkviliðsins verður í örygg- ismiðstöðinni á Hrauni, sem er rétt innan við álverslóðina í Reyðarfirði. Hún er í byggingu, en gert er ráð fyrir að hún verði fokheld í júní og tekin formlega í notkun í september. I henni verður ýmis aðstaða; svefnherbergi, stofa, fundarsalur, íþróttasal- ur og gufubað. - Slökkviliðsmennirnir eru á tólf tíma vöktum og alltaf tveir á hverri vakt. Við bætist einn aukamaður á dagvakt, yfir- mennirnir þrír eru á vakt yfir daginn svo það eru alltaf sex á vakt á daginn. Á nótt- unni eru tveir á vaktinni, segir Guðmund- ur Helgi. I öryggismiðstöðinni er einnig bíla- geymsla fyrir tíu bifreiðar. I stöðina verð- ur fluttur allur búnaður sem í dag er í stöðvunum á Reyðarfirði og Eskifirði, auk körfubíls sem keyptur var í fyrra og er núna geymdur á Fáskrúðsfirði. Þarna verða því þrír dælubílar, tækjabíll, tankbíll, stigabíll og tveir sjúkrabílar sem Rauði krossinn á. Margar umsóknir Auglýst var eftir slökkviliðsmönnum í mars og bárust alls 22 umsóknir um níu stöður. - I liðinu eru slökkviliðsstjóri, aðstoðar- slökkviliðsstjóri, forstöðumaður eldvarna- eftirlits og síðan eru níu slöklcviliðsmenn sem ganga vaktirnar. Umsóknirnar komu af öllu landinu og var mikið verk að velja úr þeim. Til að fá fastráðningu í atvinnu- slökkvilið þarf umsækjandi að uppfylla skil- yrði laga um iðnmenntun eða sambærilega menntun. Hægt er að fá undanþágu tíma- bundið til að afla þeirrar menntunar sem upp á vantar. Þeir umsækjendur sem höfðu hlotið löggildingu sem slökkviliðsmenn voru ráðnir og einnig þeir sem uppfylltu skilyrði um tilskylda menntun. Sex þeirra sem ráðnir hafa verið eru með löggildingu sem slökkviliðsmenn og sex eru með lög- gildingu sem sjúkraflutningamenn. - Við erum að hefja þjálfun liðsins. Sjúkraflutningaskólinn er að koma með grunnnámskeið fyrir þá starfsmenn sem það eiga eftir og jafnframt munu sækja það þeir aðilar sem í dag sjá um sjúkraflutn- inga í Fjarðabyggð og verða væntanlega okkar starfsmenn eftir 1. júlí. Þá erurn við að hefja grunnþjálfun fyrir slökkvi- liðsmenn en henni þurfa þeir að ljúka til að fá inngöngu í atvinnumannanámið hjá Brunamálastofnun. Þessari grunnþjálfun verður lokið í ágúst en auk atvinnuliðsins munu sækja það nám hlutastarfandi menn frá Alcoa Fjarðaáli. Auk þess fá slökkvi- liðsmenn þjálfun frá Alcoa Fjarðaáli til að bregðast við brunum og öðrum hættum innan álverslóðarinnar. Það er því mjög stíf menntunartörn framundan hjá þeim sem ráðnir hafa verið í slökkviliðið, segir Guð- mundur Helgi. Bakland í hlutastarfandi liðunum Við stofnun nýja liðsins verða hlutastarfandi slökkviliðin á Eskifirði og Reyðarfirði lögð niður í núverandi mynd. Hlutastarfandi slökkviliðsmenn á Norðfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði heyra svo undir slökkvilið- ið en starfa áfram með sama hætti og í dag. Liðin mynda þó öll eina heild ásamt hluta- starfandi liði álversins. - Liðin á Eskifirði og Reyðarfirði hafa unnið saman undanfarin ár. Á Fáskrúðs- firði, Stöðvarfirði og Norðfirði verða áfram hlutastarfandi lið. I þessum liðum eru alls 45 hlutastarfandi slökkviliðsmenn og í álversliðinu verða þeir fimmtíu. Með þeim tólf sem verða í atvinnuliðinu eigum við því 107 trygga menn. Við bætast sjúkra- flutningamenn, fjórir í Neskaupstað og fjórir á Fáskrúðsfirði, svo alls verðum við með 115 manna lið. - I Oryggismiðstöðinni eru átta stöðu- Fjarðadl leggur slökkviliðinu tilfimmtíu manna lið í varateymi. Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.