Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Qupperneq 12

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Qupperneq 12
Núverandi stjórn LA UF. Hleraö í homum. Landssamtök áhugafólks um flogaveiki (LAUF) Samtökin LAUF voru stofnuð árið 1984 í Reykjavík. Sjálfstæð deild er einnig starfandi á Akureyri. LAUF er aðili að Öryrkjabandalagi Islands og norrænum flögaveikissamtökum. Tilgangur samtakanna er: 1. Fræðsla og upplýsingamiðlun til fél- agsmanna og almennings um floga- veiki. 2. Að bæta félagslega aðstöðu floga- veikra. 3. Að styðja rannsóknir á flogaveiki. I samtökunum eru flogaveikir, velunn- arar þeirra og aðrir er styðja markmið samtakanna. Aðalmenn: Baldur Bragason, Akureyri, Ingibjörg Sveinsdóttir, Akureyri, Jón E. Aspar, Akureyri. Varamenn: Brynjólfur Ingvarsson, Akureyri, Haukur Þorsteinsson, Akureyri, Unnur Jóhannsdóttir, Akureyri. Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Austfjörðum: Aðalmenn: Anna María Sveinsdóttir, Stöðvarfirði, Kristján Gissurarson, Eiðum, Unnur Jóhannsdóttir, Neskaupstað. Varamenn: Júlía Óskarsdóttir, Höfn Hornafirði, Frá og með 1. mars 1988 er skrifstofa samtakanna að Ármúla 5, Reykjavík, opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13— .17, símatími fimmtudaga kl. 15—17 í síma 91-82833. Á skrifstofunni starfar fyrst um sinn Þórey Ólafsdóttir sálfræðingur og eru þar veittar hvers kyns upplýsingar um sam- tökin ásamt fræðslu og aðstoð varðandi flogaveiki. Símatími hjá LAUF Akureyri er föstu- daga kl. 10—12 í símum 96-25880 og 96- 25881. Öllum sem vilja styrkja samtökin og starfa með þeim, er velkomið að gerast félagar. Nína Edda Skúladóttir, Egilstöðum, Guðrún Björnsdóttir, Neskaupstað. Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Suðurlandi: Aðalmenn: Pálína Snorradóttir, Hveragerði, Ragnar R. Magnússon, Selfossi, Sigurfinnur Sigurðsson, Selfossi. Varamenn: Ólafur Th. Ólafsson, Selfossi, Hermann Magnússon, Hvolsvelli, Guðfinna Sveinsdóttir, Eyrarbakka. Áhrif samtaka fatlaðra fara ekki milli mála í stjórnum þessara málefna og er það vel, því fulltrúar þeirra eiga gerst að vita hvar skórinn kreppir. Þorbjörn Magnússon, kunnur Sjálfs- bjargarfélagi, er Austfirðingur. Hann var oft fljótur til svars. Einu sinni var honum sagt frá sveitunga sínum, er fyrir skömmu hafði á ævintýralegan hátt náð að bjarg- ast alheill úr lífsháska, að nú væri hann búinn að fá sér konu, en sú þótti miður góður kvenkostur. Þá sagði Þorbjörn: „Ekkert skil ég í guði almáttugum, fyrst hann lét hann Jón komast lífs af um daginn, að hann skyldi þá láta hann lenda á þessum líka kven- manni.“ Síldin er aftur komin og það m.a.s. á fjalirnar. Þorbjörn var eystra, þegar síld- in var þar í algleymingi og orti brag um ástina, böllin og veiðarnar á Rauða torg- inu (aðalsíldarsvæðið þá). Félagslundur er nafn á félagsheimili staðarins og Þor- björn kvað svo fyrir hönd eins sjó- mannsins: Eg kynntist svo kláru sprundi á knalli í Félagslundi sem eldgos um æðar dundi ástin við sjötta glas. Og burtu frá glasaglaumi við gengum í sæludraumi. Sú var ei treg í taumi. Ég teymd’ana strax um borð. Síðan hófst geim og gaman. Við gáfum þar okkur saman. Sú kunni að sefa amann og sjómannsins heita blóð. Á endanum af mér bráði á ástinni valdi náði. Með svolítinn seim af háði ég sagði á þessa leið: Sætasta síldarskvísa senn fer af degi að lýsa þú ættir því upp að rísa og arka á þitt rétta plan. í landi er búin biðin þessi blessaða nótt er liðin. Nú aftur skal út á miðin já, austur á Rauða-torg. Lagið er eftir Kristin Reyr: Amorella, ef einhver vildi raula. 12

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.