Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1989, Síða 14
fram, fremur en fyllilega blaðfestar
niðurstöður.
Meðal einstakra punkta má þó
nefna: Samtökin ráði lögfræðing til
réttindagæzlu. Svæðisstjómir þyrftu
að hafa þverfaglegan hóp um siðfræði
sér til stuðnings. Varðandi sjálfs-
ákvörðunarréttinn: „að skella hurðinni
aldrei svo fast á eftir viðkomandi að
ekki sé unnt að opna neina rifu síðar“.
Lykilatriði varðandi þjónustu við
foreldra, að hlusta á óskir þeirra og
virða þær. Stuðningsfjölskyldur verði
festar í sessi. Húsnæðismál fatlaðra
verði færð undir eftirlit Húsnæðis-
stofnunar ríkisins. Félagslega kerfið
nýtt til hins ýtrasta fyrir fatlaða. Þær
sérstöku tillögur, sem fram komu voru
allar á þann veg að aðalfundum beggja
samtaka var falin forsjá þeirra til
framtíðarályktana.
Að loknum skýrslum umræðu-
stjóra fóru fram frjálsar umræður.
Nokkrir tóku til máls og m.a. var lýst
yfir sérstakri ánægju yfir þessari
ráðstefnu.
Það var svo Jón Sævar Alfonsson,
sem sagði þessu þingi slitið og þakkaði
starfshópum og þingfulltrúum gott
starf. Þakkaði f.h Þroskahjálpar hið
ágæta samstarf við félagana í
Öryrkjabandalagi Islands. „Við
þurfum að koma fram sem ein órofa-
heild“ sagði Jón Sævar.
Yfir eitt hundrað sóttu þingið, sem
var hið ánægjulegasta.
H.S.
/ • •
Oddur Olafsson heiðursformaður Oryrkjabandalagsins:
Skyrsla Hússjóðs
Öryrkjabandalags Islands
Hússjóður Öryrkjabandalags
íslands er sjálfseignarstofn-
un. Stofnskrá hans er staðfest
af forseta Islands. Sjóðurinn hefur sér-
staka stjórn, sérfjárhag og reiknings-
hald. Hlutverk hans er að reisa og reka
leiguíbúðir fyrir öryrkja.
Nokkru áður en Öryrkjabandalag-
ið var stofnað, hafði verið gerð könnun
á húsnæðisaðstöðu öryrkja á Reykja-
víkursvæðinu. Sú könnun leiddi í Ijós
að öryrkjar bjuggu gjarnan í lélegasta
húsnæðinu sem til var, svo sem í kjöll-
urum, bröggum eða risíbúðum. Því var
það að árið 1964 samþykkti stjóm
Öryrkjabandalags Islands að einbeita
kröftum sínum að umbótum í húsnæð-
ismálum öryrkja.
Ekki höfðu aðildarfélög Öryrkja-
bandalags Islands fjárhagslega getu til
þess að framkvæma þetta fjárfreka
verkefni, en lögðu fram 100 þús. g. kr.
sem stofnframlag. Framreiknaðar eru
þetta 396 þús. n. kr. miðað við sl. ára-
mót.
I 4. gr. skipulagsskrár segir svo:
Tekjur sjóðsins eru vextir af stofnfé,
gjafir og áheit og venjulegar tekjur af
fasteignum.
5. gr. hljóðar svo: Hlutverk
sjóðsins er að eiga og reka íbúðarhús
fyrir öryrkja. Tilgangi sínum hyggst
sjóðurinn ná bæði með því að kaupa
húsnæði í þessum tilgangi og byggja
hús. Ibúðarhúsnæði þetta mun
sjóðurinn leigja öryrkjum fyrir
hæfilegt verð. Ekki má sjóðurinn
Oddur Ólafsson.
leigja öðrum en öryrkjum og öryrkja-
stofnunum húsnæði nema sérstakar
ástæður séu fyrir hendi. Byggingarnar
skyldi fjármagna meðal annars á
eftirfarandi máta:
1. Lán frá Húsnæðismálastofnun.
2. Lán úr Erfðafjársjóði.
3. Framlög og lán frá sveitarfé-
lögum.
4. Fyrirframgreiðslur eða skulda-
bréfalán frá væntanlegum leigjendum.
Þegar ákvörðun hafði verið tekin
um byggingu leiguíbúða, var sótt um
lóð hjá Reykjavíkurborg. Á fundi
borgarstjórnar þann 19. maí 1965 var
samþykkt að gefa Öryrkjabandalagi
íslands og Sjálfsbjörg kost á lóð við
Hátún. Stjómin réð svo arkitektana
Helga og Vilhjálm Hjálmarssyni til
þess að teikna húsin og árið 1966 lögðu
þeir fram teikningar af háhýsunum
sem nú standa við Hátún 10.
Þann 21. september 1966 tók svo
þáverandi félagsmálaráðherra, Eggert
Þorsteinsson, fyrstu skóflustunguna
að þessum miklu byggingum og
skömmu síðar hófust byggingafram-
kvæmdir af fullum krafti.
Á fáum árum risu svo háhýsin þrjú
hér í Hátúninu, húsin sem við þekkjum
svo vel. Ekki gengu framkvæmdir þó
snurðulaust fyrir sig. Þegar þriðja
húsið var nærri uppsteypt, þá urðum
við gjörsamlega ráðþrota vegna
fjárskorts. Hvergi fannst smuga. Þá var
það ráð tekið að leigja ríkinu hluta af
B-inu í 10 ár og fá alla leiguna greidda
fyrirfram. Þetta gekk upp. Þriðja húsið
reis, en við höfðum ekki staðið við
þann ásetning að reisa 250 íbúðir.
Nokkru síðar opnaðist möguleiki
til þess að leiðrétta þessa skekkju. Við
byggðum 41 íbúðar hús í Kópavogi.
Það er okkar ágæta Fannborg 1, sem
hefur komið að góðum notum.
Nú er að því komið að við förum að
fá til baka þann hluta af Hátúni 10B,
sem ríkið hefur á leigu fyrir stærstu
öldrunarlækningastöð landsins.
Leigunni hefur þegar verið sagt upp og
því er ekki að neita að það mundi bæta
okkar hag til mikilla muna, ef við
fengjum allar þessar 36 íbúðir til
ráðstöfunar. Hitt verður svo að vega og
meta hverju við töpum við það að
missa ríkisþjónustuna úr okkar húsum.
Ríkið hefur einnig á leigu fyrstu
hæðimar í Hátúni 10 og 10A.
Framhald á bls. 25
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
14