Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 23
Árið 1984beindi þáverandi félags-
málaráðherra, Alexander Stefánsson
t.d. þeim tilmælum til allra stærri sveit-
arfélaga, 66 að tölu, að þau stofnuðu
ferlinefndir, til þess að fylgjast með
nýbyggingum og ná fram breytingum
ágömlum byggingum. Fjórtán sveitar-
félög hafa orðið við þessum tilmælum.
Síðasta nefndin sem var sett á stofn í
fyrra var á Suðurnesjum. Engin
ferlinefnd er starfandi hjá Reykja-
víkurborg, þó samþykkt liggi fyrir um
að skipa slíka nefnd. Nokkrar fé-
lagsdeildir Sjálfsbjargar hafa eigin
ferlinefndir, sem starfa á þeirra vegum
eða þá að þær eiga fulltrúa í hinum
opinberu ferlinefndum. Samvinnu-
nefnd er starfandi á vegum félagsmála-
ráðuneytisins um ferlimál fatlaðra og
hefur hún unnið gott verk. Þetta er þó
engan veginn nóg. Við þurfum að
stefna að því að byggingarlöggjöfin
nái til allra bygginga samfélagsins.
Það skipulag, sem tekur tillit til mis-
munandi líkamlegs ástands íbúa, frá
vöggu til grafar er eina aðferðin til þess
að losna við aðgengisvandamál yfir-
leitt. Það er þess vegna ævibústaður-
inn, bústaður án allra hindrana, sem á
að vera fyrirmynd nýrrar bygginga-
reglugerðar.
En þetta er því miður ekki lausn
sem er í augsýn og við þurfum að
einbeita okkur að því að fyrirbyggja,
að í sífellu sé verið að brjóta þá reglu-
gerð sem þó er í gildi.
Allir eiga samkvæmt lögum rétt til
skólagöngu, en það dugar skammt, ef
ekki er hægt að komast inn í skólann.
Flest fatlað fólk verður að semja
sig að vissum takmörkunum, en þær
eiga eingöngu að vera vegna fötlunar-
innar, þær á ekki að þurfa að rekja til
ytri aðstæðna, svo sem óhentugs hús-
næðis, lélegraatvinnuskilyrða, né ann-
arra umferðarerfiðleika.
Það liggur ljóst fyrir hvað er
framundan hjá okkur varðandi
húsnæðismál fatlaðra. Við þurfum að
vinna að því með oddi og egg, að krafa
okkar um að stjórnvöld gjöri áætlun
um lausn húsnæðisvanda og umönn-
unar mikið fatlaðs fólks, verði að
veruleika.Við þörfnumst löggjafar um
félagslegt húsnæði og samfara því, rétt
til heimaþjónustu fyrir þá sem þess
þurfa. Við viljum byggingarlöggjöf,
þar sem tillit er tekið til allra.
Akurinn hefur verið plægður und-
anfarið, og við ætlum að fá góða upp-
skeru.
Ólöf Ríkarðsdóttir.
STJORN ORYRKJAB ANDALAGS
ÍSLANDS
Formaður: Amþór Helgason, Blindrafélagið
Varaformaður: Ólöf Ríkarðsdóttir, Sjálfsbjörg
Ritari: Þórey Ólafsdóttir, LAUF
Gjaldkeri: Hafliði Hjartarson, Styrktarfél. vangefinna
Aðrir í stjóm:
Andrés Kristjánsson,
Arinbjörn Kolbeinsson,
Áslaug Sigurbjömsdóttir,
Elín Pálsdóttir,
Elísabet Á. Möller,
Garðar P. Jónsson,
Hafdís Hannesdóttir,
Helga Einarsdóttir,
Jóna Sveinsdóttir,
Magnús Þorgrímsson,
Páll Svavarsson,
Heymarhjálp
Gigtarfélagið
Parkinsonsamtökin
B lindravinafélagi ð
Geðvemdarfélagið
S.Í.B.S.
M.S.-félagið
Félag aðstandenda alzheimer
Foreldra- og styrktarfél. heymardaufra
Geðhjálp
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Félag heyrnarlausra
Áheymarfulltrúi:
Jóhann P. Sveinsson, Fötluð ungmenni á Islandi
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
23