Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1989, Qupperneq 21
Ólöf Ríkarðsdóttir:
Húsnæðismál fatlaðra
Það eru aðeins rúm fimmtíu ár
síðan farið var að huga sérstak-
lega að húsnæðismálum fatlaðra
hér á landi og eins og að líkum lætur, þá
voru það samtök fatlaðra, sem riðu á
vaðið. Fyrstu heimili fatlaðra á Islandi
risu á Reykjalundi, þegar Samband
íslenskra berklasjúklinga, hóf þar sitt
merkilega starf við endurhæfingu ís-
lenskra berklasjúklinga. I lok ársins
1945 var þar komið húsnæði fyrir 40
manns í litlum heimiliseiningum. Þetta
framtak var vissulega ein af undir-
stöðum þess, að endurhæfingin bæri
árangur. Alllöngu síðar komu fleiri
félög fatlaðra til sögunnar og hófu að
byggja hús fyrir sína hópa. A þessum
árum voru ríkisstyrkir og lán til þessara
framkvæmda bundnir því skilyrði að
húsnæðið væri eingöngu notað fyrir
fatlað fólk.
Þetta hefur vissulega leyst húsnæð-
isvanda fjölmargra og gjörbreytt lífi
þeirra. En nú eru ný viðhorf komin til
sögunnar og stefna okkar er sú, að
fatlaðir hafi sömu valkosti í húsnæð-
ismálum og aðrir þegnar þjóðfélags-
ins. Stefnan felst í hugtakinu blöndun,
og það er ánægjuleg staðreynd, að þær
íbúðir, sem Öryrkjabandalagið hefur
keypt fyrir tekjur af Islenskri getspá,
eru dreifðar í almennum íbúðahverf-
um víða um landið.
Húsnæði er ein af frumþörfum
mannsins, en þar stendur fatlað fólk oft
höllum fæti af ýmsum ástæðum. Við
búum í samfélagi, sem til skamms tíma
hefur eingöngu verið miðað við þá sem
eru fleygir og færir og valkostir því fáir
fyrir marga fatlaða. Meðal þeirra, er að
finna mjög mikið af láglaunafólki, en
lítið framboð er af húsnæði sem sá
hópur getur ráðið við, hvort sem um er
að ræða leigu eða kaup. Þetta end-
urspeglar hina löngu biðlista, sem
liggja fyrir á þeim fáu stöðum, þar sent
ódýrt leiguhúsnæði er í boði. Innan
sömu vébanda er líka stór hópur, sem
býr við það alvarlega fötlun að hann
hefur engin tök á að eignast heimili af
eiginn rammleik, né annast eigið
heimili. Það eru einmitt þarfir þessa
hóps sem samtökin okkar setja nú á
oddinn i' baráttunni fyrir mannrétt-
indum.
En það eru fleiri hópar sent hafa
hagsmuna að gæta á sviði húsnæðis-
mála og árið 1986 var stofnað til sam-
vinnu milli 8 slíkra almannasamtaka
fyrir tilstilli Sjálfsbjargar landssam-
bands fatlaðra, í þeim tilgangi að vinna
að eflingu félagslegra íbúðabygginga.
Þarna myndaðist sem sagt húsnæðis-
hópur, sem fljótlega fékk nafnið „Þak
yfir höfuðið“.
I honum eru eftirtalin almanna-
samtök:
Öryrkjabandalag íslands,
Landssamtökin Þroskahjálp,
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra,
Samtök aldraðra,
Stúdentaráð Háskóla íslands,
Bandalag íslenskra sérskólanema,
Leigjendasamtökin,
Búseti, landssamband húsnæðis-
samvinnufélaga.
Þessi samtök hafa á bak við sig á
milli 30-40 þúsund félagsmenn og geta
því verið sterkt afl. Hópurinn hefur
síðan staðið þétt saman og á vegum
hans er starfandi nefnd sem heldur
reglulega fundi. Hún er skipuð einum
fulltrúa frá hverjum samtökum.
Samtökin gengust fyrir ráðstefnu um
húsnæðismál haustið 1987. Þá voru
lögð fram drög að frumvarpi til laga
um félagsíbúðasjóð, sem gæti orðið
eins konar útvíkkun á byggingarsjóði
verkamanna og fengi hann það
hlutverk að fjármagna félagslegar
íbúðabyggingar. I kjölfarráðstefnunn-
ar var gefinn út bæklingur um
félagslegt húsnæði á íslandi og hefur
honum verið dreift í nokkur þúsund
eintökum.
Samtökin „Þak yfir höfuðið“ hafa
frá upphafi lagt kapp á að fá fulltrúa í
nefnd, sem endurskoða skyldi félags-
lega hluta húsnæðiskerfisins. Þessi
nefnd var sett á laggimar í júnímánuði
sl. og fengu samtökin tilmæli frá
félagsmálaráðherra um að skipa full-
trúa í hana. Þetta þótti mikill sigur.
Reynir Ingibjartsson var tilnefndur
fulltrúi samtakanna. Aðrir í nefndinni
eru fulltrúar félagsmálaráðuneytisins,
Húsnæðisstofnunar ríkisins, Alþýðu-
sambands Islands, Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja, Verkamanna-
sambands Islands, Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og stjórnar-
flokka. Ingi Valur Jóhannsson deild-
arstjóri í félagsmálaráðuneytinu er
formaður nefndarinnar.
Hlutverk nefndarinnar er sem sagt
að gera tillögur um endurskipulagn-
ingu og framtíðarskipan félagslega
Sjá næstu síðu
Ólöf fremst á myndinni með hópnum: Þak yfir höfuðið.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21