Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1989, Side 24
Dagur fatlaðra á
Mottó: Lífsgæði
Það var vissulega stór ákvörðun,
þegar samvinnunefnd Þroska-
hjálpar og Öryrkjabanda-
lagsins ákvað fjöldaaðgerð hinn 13.
október sl., nefndi þann dag, Dag fatl-
aðra á Islandi, og setti fram hið ein-
falda en torsótta kjörorð: Lífsgæði.
Undirbúningur allur var mikill og
góður, enda mikið í húfi. Liðsinnis var
víða leitað um undirtektir í þeirri meg-
inkröfu dagsins, sem sneri að húsnæð-
ismálum mikið fatlaðs fólks.
Öll meginsamtök launafólks í land-
inu tóku undir með samtökunum af
einlægni og opnum huga, en eins og oft
hefur verið bent á hér í Fréttabréfinu er
stuðningur heildarsamtaka launafólks
ómetanlegur, því þau eiga í fórum sín-
um þau vopn er bíta, einnig í hags-
munabaráttu fatlaðra, ef á þá sveif er
líka lagst.
Það er enda ljúf frumskylda þess-
ara samtaka að styðja hvert það vel-
ferðar- og lífskjaramál sem fötluðum
viðkemur. Þó samvinnunefnd sam-
takanna hefði allan æðri veg og vanda
af aðgerðinni voru til fengin „vinnu-
dýr“ nokkur til að sjá um „smáatriðin“.
Forystu í því vinnuliði hafði að
sjálfsögðu hinn þrautreyndi „víga-
maður“, Hrafn Sæmundsson Kópa-
vogskappi, en honum til halds og
trausts var Helgi Hróðmarsson. Síðan
voru Helga Hjörleifsdóttir og und-
irritaður til ýmissa nota fyrir þá höf-
uðsmenn. Sem sagt h- heilög nefnd.
Samstarf tókst við marga um
kynningu og áróður. Reynt var að ná
sem víðast, bréf send út í stórum stíl og
síminn rauðglóandi - ekki bara einn
heldur ótal símar síðustu dagana, þar
sem aðeins var um eitt beðið: Vertu
með.
I undirbúningnum var m.a. boðað
til formannafundar hjá Öryrkja-
bandalaginu, þar sem formaður þess,
Arnþór Helgason kynnti málin og
hvatti fólk til dáða hvert á sínum
vettvangi.
Of langt yrði að telja upp og tíunda
öll atriði þessa „indæla stríðs“, en þess
í stað skal vikið að sjálfum atburðinum
og honum gerð þau skil sem skylt er.
Ávarp dagsins og áskorun til
stjómvalda eru svo birt sérstaklega hér
í Fréttabréfinu.
Það fór ekki milli mála að veður-
guðir veittu þessari aðgerð velþóknun
sína, því eftir regnhryðjur og rosa, brá
til bezta veðurs. Svalt var en bjart - og
bjart var yfir þeim ótal mörgu, sem
söfnuðust saman á Hlemmi um fjög-
urleytið. Sumir voru alllangt að komn-
ir s.s. þeir Sunnlendingar, er fjöl-
menntu þarna. Brátt var fjölmenni
Hér eru allir í ham.
Útifundur í algleymingi
Islandi
samankomið og lúðrasveitir hófu leik
sinn og lagt var af stað undir kröfu-
borðum, sem á var letrað kjörorð dags-
ins: Lífsgæði, en í fararbroddi fóru
skátar með íslenzka fánann.
Lúðrasveit verkalýðsins og Homa-
flokkur Kópavogs léku, en göngunni
stýrði á réttan veg, Emil Bóason.
Á Austurvelli var svo útifundur,
sem sóttur var af rúmlega 1000 manns.
Það var Hrafn Sæmundsson sem setti
útifundinn og gaf Sigmundi Guð-
13. október:
24
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS