Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1989, Side 36
24. september:
Dagur heymarlausra
Úr félagsmiðstöðinni. Glatt á hjalla í góðum hópi.
Hinn 24. september sl. var
Dagur heymarlausra hald-
inn hér á landi í fyrsta sinn,
en víða annars staðar hefur dagur-
inn verið í heiðri hafður í þrjátíu ár.
Það var í Hallgrímskirkju sem
hátíðin hófst með messugerð.
Við kirkjudyr stóðu þau Haukur
Vilhjálmsson formaður og S. Mar-
grét Sigurðardóttir ritari félagsins
og buðu kirkjugesti velkomna.
Kirkjugestir urðu mjög margir og
m.a. var biskupinn yfir Islandi,
Ólafur Skúlason viðstaddur.
Það var prestur heyrnarlausra,
Miyako Þórðarson, sem leiddi
messugerðina og lagði út af orðun-
um um umhyggju okkar fyrir öðr-
um. Ahrifamikil og góð ræða henn-
ar var mikillar eftirtektar verð.
Módettukórinn söng, en einnig
flutti eða söng hópur heyrnarlausra
undir stjóm Júlíu G. Hreinsdóttur
alla sálmana og var það áhrifamikill
flutningur sem hreif mann með sér í
nýjar hæðir eða víddir, lotning og
tilbeiðsla héldust í hendur.
I sálminum Astarfaðir himin-
hæða, kom hópur heymarlausra
bama einnig upp og söng og þótti
undirrituðum það a.m.k. hámark
athafnarinnar. En slíka hátíðastund
helgi og einlægni, upplifir maður
ekki oft.
Að lokinni messu bauð Félag
heymarlausra til veglegra veitinga í
félagsmiðstöð sinni að Klapparstíg
28 og þar var heldur betur þröng á
þingi og munu þó allir mettir hafa
verið. Þar bauð Haukur Vil-
hjálmsson gesti velkomna og bað þá
vel að njóta veitinganna.
Biskup íslands flutti ámaðar-
óskir og bað félaginu blessunar
Guðs, en ræddi bæði í alvöru og
gamni svar við spumingunni: Hver
er hér í raun hamlaður eða fatlaður?
Ég gagnvart ykkur eða þið gagnvart
mér?
Bryndís Víglundsdóttir skóla-
stjóri Þroskaþjálfaskólans flutti
aðalræðuna og kom víða við.
Minnti á þá tíð, þegar táknmál var
bannað í kennslu, rifjaði upp ýmsa
áfangasigra, m.a. þátttöku þroska-
þjálfanema nú í að læra táknmál,
sem tengdist námi Júlíu G. Hreins-
dóttur í þeim skóla.
Bryndís gaf sig glettninni á vald
einnig og sagði dæmi broslegrar
ættar úr kennslusögu sinni. Ræða
hennar var bæði einkar fróðleg og
skemmtileg.
Þá tilkynnti Páll Magnússon
fréttastjóri Stöðvar 2 að frá og með
næsta laugardegi yrðu vikulegir
fréttaþættir fyrir heymarlausa á
stöðinni. Vakti þetta mikinn og
verðskuldaðan fögnuð, en við sem
höfum verið að baksa við að fá
ríkissjónvarpið okkar til þessa, án
árangurs, hugsuðum ekki með sem
hlýjustum huga til þeirrar stofnunar
allra landsmanna, sem löngu hefði
átt að sinna þessu.
Svo skemmtilega vildi til að
morguninn eftir komu fulltrúar Fé-
lags heymarlausra til endurskoðun-
arnefndar um tryggingamál og þar
voru ítrekuð áhersluatriði þeirra
almenn sem sértæk.
1) Örorkumatsreglur gerðar
réttlátari, 50% reglan er alfarið í
dag.
2) Hærri endurgreiðslu ýmissa
brýnna hjálpartækja.
3) Túlkaþjónusta með einhverj-
um hætti greidd af samfélaginu.
4) Símgjöld lækkuð verulega.
Eru í dag sexföld vegna lengdar
textasímtalanna.
Góður áhersluauki við daginn.
Um leið og undirritaður þakkar
fyrir sig og sína, vill hann óska
félaginu alls velfarnaðar og
hamingjuóskir með nýja starfs-
manninn, Elfu Bergsteinsdóttur,
sem greinilega er rétt kona á réttum
stað.
Megi Dagur heyrnarlausra
ávallt skila árangri á þeirri leið út úr
einangrun, sem þessi hópur er í eða
þá einangrun okkar hinna, að sam-
skipti okkar allra megi verða sem
greiðust og farsælust í framtíðinni.
H.S.
36
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS