Fréttablaðið - 22.05.2020, Side 10

Fréttablaðið - 22.05.2020, Side 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hluthafar hafa tapað nánast öllu sínu og flugstétt- unum, sem munu áfram njóta betri kjara en almennt þekkist, er engin vorkunn að samþykkja aukið vinnu- framlag. Stéttarfélög eru hluti af því sam- félagslega öryggisneti sem grípur fólk þegar það missir vinnuna. mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU AFMÆLISKRINGLUNNI - fyrir 25-30 manns VELDU GÆÐI! Tilboð í maí Allar tertur á 2900 kr. Daim terta Kaka ársins Hindberja og súkkulaðiterta Jarðarberjaterta. VELJUM ÍSLENSKT Þórunn Svein- bjarnardóttir formaður BHM Atvinnumissir er mikið áfall. Mikil­vægt er að fólk sem lendir í slíkum hremmingum geti treyst á stuðning samfélagsins. Í kjölfar kórónuveiru­faraldursins hefur atvinnuleysi rokið upp, einkum meðal fólks sem starfar í ferðaþjónustu. Þá hafa þúsundir lent í því að starfshlutfall þeirra hefur verið minnkað. Á þessum erfiðu tímum kemur það í hlut hins opin­ bera að tryggja þeim framfærslu sem misst hafa vinnuna eða þurfa að sætta sig við skert starfshlut­ fall. Hér gegna Vinnumálastofnun og Atvinnu­ leysistryggingasjóður lykilhlutverki. Stéttarfélög eru hluti af því samfélagslega örygg­ isneti sem grípur fólk þegar það missir vinnuna. Félögin veita félagsmönnum sínum margvíslega aðstoð og ráðgjöf er varðar kjara­ og réttindamál. Ef félagsmaður telur t.d. að ekki hafi verið rétt staðið að uppsögn getur hann eða hún leitað aðstoðar stéttarfélags síns sem fylgir þá málum eftir gagn­ vart atvinnurekanda. Sama á við ef félagsmaður telur sig eiga inni vangoldin laun. Að auki starf­ rækja stéttarfélög ýmsa sjóði í þágu félagsmanna sem launagreiðendur fjármagna með sérstökum framlögum samkvæmt kjarasamningum. Félags­ menn geta sótt um styrki úr þessum sjóðum vegna veikinda, til að sækja námskeið eða til að stunda líkamsrækt, svo dæmi séu nefnd. Innan BHM eru 27 stéttarfélög sem standa vörð um lögbundin og kjarasamningsbundin réttindi félagsmanna sinna og aðstoða þá í samskiptum við atvinnurekendur. Til að eiga þess kost að fá aðstoð stéttarfélags og geta sótt um styrki úr sjóðum þess þarf að greiða félagsgjald mánaðarlega. Ég vil hvetja alla félagsmenn aðildarfélaga BHM sem eru án atvinnu að huga sérstaklega að þessu. Mikilvægt er að fólk haldi áfram að greiða bæði stéttarfélagsgjald og iðgjald í lífeyrissjóð. Hægt er að láta draga þessi gjöld af atvinnuleysisbótum. Það er nógu slæmt að missa vinnuna svo ekki bætist við missir mikilvægra réttinda. Haltu í réttindin Ísland á í alþjóðlegri samkeppni um vinnuafl og fjármagn. Launakostnaður hefur hækkað margfalt meira hér en í öðrum löndum og það hefur valdið því að mörg fyrirtæki, eins og Icelandair, hafa orðið undir í harðri samkeppni. Núna þegar flugfélagið horfir fram á nánast algjöran tekjubrest og er á barmi gjaldþrots er meira af því sama ekki í boði. Ferðaþjón­ ustan, og þá um leið flugsamgöngur, verður ekki sú hin sama næstu árin. Fjöldi fyrirtækja á eftir að fara í gjald­ þrot og störfum á eftir að fækka gríðarlega. Við sjáum nú þegar unnið er að endurreisn Icelandair, sem felst meðal annars í breyttum kjarasamningum, að það ætlar að reynast mörgum erfitt að aðlaga sig að þessum nýja veruleika. Skilningsleysið er á köflum átakanlegt. Fullkomin óvissa er um framtíð Icelandair. Áform um að sækja sér allt að 30 milljarða með því að efna til almenns útboðs eru í uppnámi eftir að samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands hafnaði lokatilboði Icelandair. Formaður Flugfreyjufélagsins gagnrýnir Icelandair fyrir að hafa sett þeim afarkosti og segir það almennt ekki tíðkast í kjaraviðræðum á Íslandi. Þau ummæli vekja furðu. Ekki er að undra að enginn árangur hafi náðst ef forystufólk flugliða nálgast viðræðurnar líkt og um sé að ræða gerð kjarasamnings í venjulegu árferði. Icelandair gæti gefið eftir í sínum kröfum, sem felast í því að ná yfir 20 prósenta hagræðingu í launakostnaði, gagnvart Flug­ freyjufélaginu. Það væri hins vegar til einskis. Samningar sem bæta ekki umtalsvert bágborna samkeppnisstöðu Icelandair þýða að fjárfestum verður ekki stætt á að leggja félaginu til aukið fjármagn og rekstur þess mun því stöðvast. Í þeim skilningi er það rétt að flugliðar standa frammi fyrir afarkostum. Að fá engin laun eða skert laun. Við þessar aðstæður eru allir nauðbeygðir til að taka á sig einhvern skell. Hluthafar hafa nú þegar tapað nánast öllu sínu og flugstéttunum, sem munu áfram njóta betri kjara en almennt þekkist hjá öðrum flugfélögum, er engin vorkunn að samþykkja aukið vinnuframlag. Önnur flugfélög hafa fyrir margt löngu náð fram sambærilegum breytingum á kjarasamningum við sín stéttarfélög og Icelandir fer nú fram á. Sömu flugfélög, meðal annars Lufthansa, reyna nú að auka enn samkeppnishæfnina með betri nýtingu á flugáhöfnum en þau félög sem gera ekkert munu eiga erfitt um vik að ná viðspyrnu þegar kreppunni lýkur. Með hliðsjón af slíkum aðgerðum annarra félaga er því ljóst að hugsanlegir fjárfestar að Icelandair munu spyrja sig hvort samkeppnisstaðan verði í raun óbreytt, jafnvel þótt kjarasamningar náist, og félag­ ið enn einu skrefi á eftir sínum helstu keppinautum. Samninganefnd Flugfreyjufélagsins hefur verið stutt áfram af forystu verkalýðshreyfingarinnar sem nýtir hvert tækifæri fyrir skemmdarverkastarfsemi. Formaður ASÍ og VR, sem hafa hótað að beita sér gegn því að lífeyris­ sjóðirnir fjárfesti í Icelandair ef félagið semur við flugliða utan Flugfreyjufélagsins, segja ekki sjóðunum fyrir verkum. Ummælin eru skýrt merki um skuggastjórnun og hljóta að verða til þess að Fjármálaeftirlitið taki málið til skoðunar. Lífeyrissjóðirnir, sem hafa umboðsskyldur gagnvart sjóðsfélögum, fjárfesta ekki í Icelandair nema á viðskiptalegum forsendum og með arðsemismarkmið að leiðarljósi. Einn liður í því er að styrkja rekstrarhorfur til frambúðar með hagræðingu í launakostnaði. Klukkan tifar. Afarkostir  Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fyrirlitleg spilling Frá ársbyrjun 2018 hafa formenn f lokkanna hist reglulega til að ræða um endurskoðun stjórnar- skrárinnar. Fyrir um ári voru til- lögur að ákvæðum um umhverf- isvernd og náttúruauðlindir kynntar til sögunnar. Nýlega bættist svo við tillaga um ákvæði um íslenska tungu. Stjórn- lagaráðsmaðurinn Þorvaldur Gylfason er ekki hrifinn. Hann segir tilburðina við endurskoðun stjórnarskrárinnar afhjúpa fyrir- litlega spillingu Alþingis enn eina ferðina. Enginn ágreiningur sé um þetta efnisatriði og tillagan óþörf enda bæti hún engu efnis- lega við frumvarp Stjórnlagaráðs. Hafi einhver bundið vonir við að endurskoðunarferlið nú myndi útkljá þetta eilífðarmál íslenskra stjórnmála þyrfti sá hinn sami að fara að komast niður á jörðina. Ber er hver að baki Forsætisráðherra hefur verið áhugasöm um verkefnið og staðið fyrir samráði við almenning. Það hlýtur að taka á taugarnar að stýra fundum þar sem reynt er að sætta sjónarmið Sigmundar Davíðs og Pírata um þjóðarat- kvæðagreiðslur og kjördæma- skipan. Ráðherranum barst þó á dögunum glaðningur þegar Íslensk málnefnd lýsti í umsögn yfir eindregnum stuðningi við ákvæði um íslenska tungu. Reyndar vill svo til að formaður nefndarinnar er bróðir forsætis- ráðherra. Það verður því áfram gaman í fjölskylduboðunum. 2 2 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.