Fréttablaðið - 22.05.2020, Page 24
EIN AF HUGLEIÐING-
UM MÍNUM ER VERSL-
UNARMENNING SEM HLUTI AF
STÆRRA SAMHENGI, ÞAR SEM
ÉG VELTI FYRIR MÉR FRAM-
LEIÐSLU OG EFNAHAGSLÍFINU.
Geirþrúður Finnboga-dóttir Hjörvar sýnir verk sín á sýning-unni Smásala, Retail, í Harbinger á Freyju-götu. Á sýningunni
eru skúlptúrar, veggverk og texta-
verk. Þar vinnur Geirþrúður með
fagurfræði verslunargeirans og
skoðar gildi sem felast í framleiðslu-
fyrirkomulagi nútímasamfélags í
víðara samhengi.
„Ein af hugleiðingum mínum
er verslunarmenning sem hluti af
stærra samhengi, þar sem ég velti
fyrir mér framleiðslu og efnahags-
lífinu. Smásala er einn angi þess,“
segir Geirþrúður.
Spurð hvort hún sé að gagnrýna
neysluhyggju segir hún: „Ekki
beinlínis, maður verður að fá hluti
einhvers staðar frá. Mér finnst til
dæmis ekki vera ástæða til að gagn-
rýna smásölu sem fer fram í litlum
búðum, sem eru venjulega mjög
fallegar. Framleiðsluferlið er hins
vegar orðið að furðulegu fyrirbæri.
Það breyttist mjög á níunda ára-
tugnum, þá kom skeið fjármagns-
kapítalisma þar sem fjármagns-
fyrirtæki fara að taka til sín stærri
hluta af heildarframleiðslunni. Það
breytir framleiðsluferlinu, farið að
framleiða í öðrum löndum og efnis-
notkun verður öðruvísi, plastnotk-
un eykst, til dæmis. Það er beinlínis
vegna þess að það þarf að lækka
kostnaðinn við framleiðslu. Maður
fer að sjá minna af handgerðum
hlutum sem gerðir eru af alúð.“
Skúlptúrarnir á sýningunni eru
innblásnir af hlutum sem seldir eru
í búðum og búðarútstillingum. „Ég
teikna í þrívídd og læt smiði síðan
smíða og saga og til verða verk með
iðnaðarútlit,“ segir Geirþrúður.
Elsta kvörtunarbréfið
Eitt verk á sýningunni er gert úr
plexigleri, áli og plastlagðri spóna-
plötu. Í plexiglerinu er afar áhuga-
verð mynd. „Þetta er mynd af töflu
frá tímum Babýloníumanna. Þetta
Túlkun á stíl níunda áratugarins
Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar sýnir verk sín í Harbinger. Vinnur með fagur-
fræði verslunargeirans. Í einu verkanna er elsta kvörtunarbréf viðskiptavinar.
Maður verður að fá hluti einhvers staðar frá, segir Geirþrúður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í þessu verki er
að finna elsta
kvörtunarbréf
sögunnar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
er elsta kvörtunarbréf viðskiptavin-
ar sem fundist hefur, frá árinu u.þ.b.
1750 fyrir Krist. Það er í alveg sama
tóni og hjá óánægðum viðskipta-
vini í dag. Þessi viðskiptavinur er
greinilega mjög reiður.“
Heillandi andrúmsloft
Verkin á sýningunni eru áberandi
stílhrein. „Ég legg mikið upp úr því
í þessu tilviki. Verkin á þessari sýn-
ingu eru mín túlkun á stíl níunda
áratugarins, en þá var ríkjandi and-
rúmsloft sem ég heillaðist af þegar
ég var að vinna að hugmyndunum
sem liggja að baki verkunum,“ segir
Geirþrúður.
Sýningin stendur til 30. maí, opið
er frá 14-17 fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga.
Þjóðleikhúsið auglýsti á dög-unum eftir nýjum leikritum fyrir börn. Um 150 umsóknir
bárust. Leikhúsið festi sér tvö verk,
annars vegar leikrit eftir nýjan höf-
und, Gunnar Eiríksson, sem sýnt
verður strax á næsta leikári, og
hins vegar verk eftir Kristínu Rögnu
Gunnarsdóttur, sem verður þróað
áfram innan leikhússins. Nokkur
fleiri leikverk voru valin til nánari
skoðunar og þróunar innan leik-
hússins.
Kaf bátur er fyrsta leikrit Gunn-
ars, en hann hefur starfað sem leik-
ari í leikhúsi, kvikmyndum og sjón-
varpi í Noregi á liðnum árum, auk
þess sem hann hefur samið tónlist
fyrir leikhús. Verkið gerist um borð
í kaf báti, en þetta er ansi óvenju-
legur kaf bátur, fullur af skrýtnum
og skemmtilegum uppfinningum,
sem siglir um höfin í ókominni
framtíð, með litla stelpu og föður
hennar innanborðs. Á ferð með
þeim er einnig áll, sem sér þeim fyrir
rafmagni, auk þess sem fleiri litríkar
persónur koma óvænt við sögu.
Hugmynd Kristínar Rögnu Gunn-
arsdóttur, að fjölskyldusöngleik
byggðum á sagnaheimi hennar um
Úlf og Eddu, þótti einnig einstak-
lega hrífandi, og ákveðið var að
hefja strax vinnu við að þróa verkið
fyrir Stóra sviðið. Kristín Ragna
Gunnarsdóttir hefur vakið mikla
athygli fyrir bækur, myndskreyt-
ingar og barnasýningar byggðar á
norrænum goðsögnum og hlotið
margs konar verðlaun.
Þjóðleikhúsið valdi
Gunnar og Kristínu
Kristín Ragna Gunnarsdóttir.
Það er fátt sem jafnast á við að ferðast um á bíl sem er
tilbúinn að takast á við vetur konung. Bílabúð Benna gefur
þér kost á að njóta vetrarins til fulls í fjórhjóladrifnum Tivoli
sportjeppa. Hann fæst nú á ævintýrlega góðum kjörum.
+ Ríkulegur staðalbúnaður
+ Góð yfirsýn yfir umhverfið
+ Frábærir aksturseiginleikar
+ Fjórhjóladrif með læsingu
+ Gott aðgengi
+ 1,5 tonna dráttargeta
Verð frá: 3.990.000 kr. sjálfskiptur
B
irt m
eð fyrirvara um
verð- og m
yndabrengl.
Fimm ára
ábyrgð
GENGIÐ
FRYSTUM
ÓBR
EYT
T VE
RÐ
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Bílaríki, Akureyri
Glerárgötu 36
Sími: 461 3636benni.is
2 2 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð