Bændablaðið - 20.02.2020, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202010
FRÉTTIR
Átakið var kynnt formlega föstudaginn 7. febrúar en þá komu forstjórar fyrirtækjanna tíu og undirrituðu samning um Þjóðþrif í verksmiðju Pure North Recycling, Sunnumörk 4 í Hveragerði.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Þjóðþrif – þjóðarátak í endurvinnslu plasts:
Tíu stór fyrirtæki skuldbinda sig til að endurvinna allt plast hjá sér
Nýlega var undirritaður stór
samningur hjá fyrirtækinu Pure
North Recycling í Hveragerði við
tíu stór fyrirtæki sem skuldbinda
sig til þess að koma öllu því plasti
sem fellur til hjá fyrirtækinu í
endurvinnslu hjá Pure North.
Með því er tryggt að flokkun
verði betri, plast verði aftur plast og
sú kolefnislosun sem sparast, vegna
umhverfisvænna vinnsluaðferða
Pure North, fara inn í kolefnisbók-
hald fyrirtækjanna. Fyrirtækin sem
um ræðir eru Bláa Lónið, BM Vallá,
Brim, CCEP, Eimskip, Krónan,
Lýsi, Marel, Mjólkursamsalan
og Össur. „Þetta eru allt ótrúlega
öflug fyrirtæki og virkilega mik-
ilvægt og ánægjulegt að atvinnu-
lífið sé að taka þátt í svo mikil-
vægu verkefni þar sem sjálfbærni
og hringrásarhagkerfið er í aðal-
hlutverki,“ segir Sigurður Grétar
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Pure North Recycling.
Hvers konar endurvinnsla?
Það eru kannski ekki margir sem
vita hvers konar fyrirtæki Pure
North Recycling er. En til upplýs-
ingar þá er fyrirtækið eina endur-
vinnsla plasts á Íslandi þar sem
hreinum plastúrgangi er breytt
í plastpallettur. Jarðvarminn í
Hveragerði, ásamt umhverfis-
vænum orkugjöfum, er í aðalhlut-
verki. „Vinnsluaðferðin er einstök
á heimsvísu hjá okkur og byggir
á íslensku hugviti. Það að nota
jarðvarmann og hreina orkugjafa
gefur okkur forskot, bæði rekstr-
arlega og gagnvart umhverfinu.
Við fengum óháðan aðila til að
gera lífsferlisgreiningu á vinnslu-
aðferðum félagsins til saman-
burðar við endurvinnslu í Evrópu
og Asíu. Niðurstaðan er einföld;
Plastpallettur Pure North Recycling
eru umhverfis vænasta plast í heimi.
Fyrir hvert tonn sem endurunnið er
af plasti hjá Pure North sparast 0,7
tonn af kolefni, næstum tonn á móti
tonni. Þetta er til viðbótar við það
hversu miklu umhverfisvænna það
er að endurvinna plast í stað þess að
framleiða nýtt plast. En fyrir hvert
tonn sem endurunnið er af plasti
sparast 1,8 tonn af olíu vegna þess
hversu olíufrekt það er að framleiða
nýtt plast,“ segir Sigurður Grétar.
Hjá fyrirtækinu starfa 10 manns.
/MHH
MS er eitt af þeim fyrirtækjum sem skrifaði undir samninginn um Þjóðþrif. Hér er Ari Edwald forstjóri með sínu fólki
þegar undirritunin fór fram. Allar umbúðir frá MS verða framvegis endurunnar í Hveragerði.
Sigurður Grétar Halldórsson, fram
kvæmdastjóri Pure North Re cycling,
sem er með tíu starfs menn í vinnu.
FJÓSAMEISTARI
Á HVANNEYRI
HELSTU VERKEFNI
» Umsjón og rekstur fjóssins á Hvanneyri
» Fóðrun og dagleg umhirða gripa
» Umsjón ræktunarstefnu og hjarðskýrsluhalds
» Almennt viðhald og viðgerðir véla og tækja
» Jarðvinnsla og heyskapur
» Leiðbeining nemenda í verklegu námi í búfræði
og móttaka gesta
» Virk þátttaka í uppbyggingu og innleiðingu nýsköpunar
í búrekstri
» Samstarf við teymi kennara og sérfræðinga Land-
búnaðarháskóla Íslands við verklega kennslu og
rannsóknir í nautgriparækt, jarðrækt, bútækni og umh-
verfismálum
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
» Búfræðipróf og/eða BS próf í búvísindum, auk annarrar
menntunar sem nýtist í starfi
» Reynsla af hirðingu búfjár og vélavinnu
» Sjálfstæð vinnubrögð
» Færni í mannlegum samskiptum
» Góð almenn tölvukunnátta
» Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til 10. mars 2020
Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og helst eigi síðar en 15. maí 2020.
Tilgangur Hvanneyrarbúsins ehf er að reka á hagkvæman hátt kúabú í þágu kennslu og rannsókna
Landbúnaðarháskóla Íslands. Áhöfn er um 70 kýr auk geldneyta og ársframleiðsla mjólkur er um 550.000 lítrar.
Nánari upplýsingar
Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri veitir nánari upplýsingar, gudmunda@lbhi.is sími 433-5000
og á heimasíðu skólans www.lbhi.is/storf
Starf fjósameistara Hvanneyrarbúsins ehf við Landbúnaðarháskóla Íslands er nú laust til umsóknar
Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis,
skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum. Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af teymi Landbúnaðarháskólans
sem hefur umsjón með rekstri Hvanneyrarbúsins í samráði við bústjóra. Um fullt starf er að ræða.
Costco hefur óskað eftir því að
Kjötafurðastöð KS komi aftur í
viðskipti með lambakjöt þar sem
viðskipti við nýjan birgja gengu
ekki sem skyldi.
Ágúst Andrésson, forstöðu-
maður Kjötafurðarstöðvar KS,
segir að 6. febrúar síðastliðinn
hafi KS og Costco skrifað undir
samning þess efnis að Costco
kæmi aftur í lambakjötsviðskipti
við Kjötafurðastöð KS. Viðskiptin
eru þegar hafin.
„KS hóf viðskiptin með bæði
lamba- og nautakjöt við Costco
þegar þeir opnuðu en Costco bauð
út viðskiptin með lambakjöt í haust
og valdi annan birgja.
Lagt verður kapp á að ná upp
fyrri sölu sem allra fyrst í Costco,
en salan virðist hafa dregist talsvert
saman.“ /VH
Kaupfélag Skagfirðinga:
Costco semur við KS um
lambakjötsviðskipti
Ágúst Andrésson.
KS og Costco hafa skrifað undir samning þess efnis að Costco komi aftur
í lambakjötsviðskipti við Kjötafurðastöð KS. Viðskiptin eru þegar hafin.