Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202018
HROSS&HESTAMENNSKA
Nýtt ræktunartakmark í íslenskri hrossarækt
Á aðalfundi FEIF sem haldinn
var á Íslandi í byrjun febrúar
var samþykkt nýtt ræktunartak-
mark fyrir íslenska hestinn. Það
var Ísland, ásamt kynbótanefnd
FEIF, sem lagði til breytingar á
hinum almennu ræktunarmark-
miðum fyrir íslenska hestakynið
og vægistuðlum eiginleikanna í
aðaleinkunn. Einnig hefur dóm-
skali einstaklingsdóma verið
uppfærður og var ný útgáfa hans
einnig samþykkt á FEIF þinginu.
Almenn ræktunarmarkmið
Ræktunarmarkmið í íslenskri
hrossarækt er annars vegar skilgreint
í almennum markmiðum og hins
vegar í sérstökum markmiðum.
Hin almennu markmið ná yfir
heilbrigði, frjósemi og endingu,
þar sem ræktunartakmarkið miðar
að því að rækta heilbrigðan,
frjósaman og endingargóðan hest –
hraustan íslenskan hest; liti, þar sem
ræktunartakmarkið er að viðhalda
öllum mögulegum litaafbrigðum
innan stofnsins og stærð, en hið
opinbera ræktunartakmark gefur
færi á allmiklum breytileika hvað
varðar stærð hrossanna.
Þá fjalla hin sérstöku ræktunar
markmið um hver stefnan er innan
sköpulags og reiðhestshæfileika.
Skilgreining ræktunarmarkmiðsins
fyrir íslenska hestinn felst einnig í
þeim eiginleikum sem metnir eru
í kynbótadómnum, skilgreiningu
úrvalseinkunnar innan hvers eig
inleika og vægi hvers og eins eig
inleika í aðaleinkunn. Búið er að
yfirfara hin almennu og sérstöku
markmið og útlista betur hver þau
eru. Það hefur verið gert með því
að bæta inn lýsingu á hlutverkum
hestsins og gera grein fyrir mark
miðinu hvað geðslag hestsins varð
ar. Stefnan hvað bygginguna snert
ir hefur verið uppfærð með aukna
áherslu á byggingarlag sem stuðlar
að eðlisgóðri ganghæfni. Þá hefur
markmiðið með ganglag hestsins
verið skrifað á mun ítarlegri hátt, þar
sem æskilegu ganglagi og líkams
beitingu hestsins er lýst almennt eða
óháð gangtegund. Nýjustu útgáf
una af hinum almennu og sérstöku
markmiðum má nálgast inn á heima
síðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbún
aðarins, rml.is, undir Kynbóta starf/
Hrossarækt. Rækt unar markmiðinu
innan hvers eiginleika er lýst í
einkunninni 9,510 en lýsingu á því
má finna í stigunarkvarða einstak
lingsdóma sem er birtur á sama stað
inni á heimasíðu RML.
Vægi eiginleikanna
Þá hefur vægi eiginleikanna í að
aleinkunn verið breytt og helstu
breytingarnar eru í stuttu máli
þessar: Vægi reiðhestskostanna
hefur verið hækkað úr 60 í 65%
og því lögð enn meiri áhersla á
ganghæfni hrossanna. Þetta gaf
færi á því að hækka heildarvægi
grunngangtegundanna (fet, brokk
og stökk) en það er gert til þess að
leggja meiri áherslu á hina fjölhæfu
hestgerð innan stofnsins, hvort
sem hún býr yfir fjórum eða fimm
gangtegundum. Hægt stökk er nú
skilgreint sem sér eiginleiki. Gæði
á hægu stökki hefur verið hluti af
einkunn fyrir stökk hingað til en
verðmætt er að hægt stökk hafi
bein áhrif á aðaleinkunn hrossa.
Aðgengilegt er að skilgreina hægt
stökk og stökk sem tvo eiginleika
þar sem um tvær gangtegundir er
í raun að ræða, þrítakta hægt stökk
og fjórtakta hratt stökk og er talað
um þetta sem tvær gangtegundir í
mörgum löndum. Þá hefur vægi á
bak og lend verið hækkað þar sem
rannsóknir á tengslum byggingar
og hæfileika styðja að leggja meiri
áherslu á þennan eiginleika. Þá
hefur heiti á vilja og geðslagi verið
breytt í samstarfsvilja. Þetta er gert
þar sem meiri áhersla er í nýjum
skala á þjálni og yfirvegun hestsins.
Einnig er skilgreining eiginleikans
afmarkaðri í nýjum dómskala þar
sem marga þætti geðslagsins er ekki
hægt að meta með góðu móti með
sjónmati.
Að lokum, og í raun vægi eig
inleikanna óviðkomandi, hefur
verið ákveðið að reikna tvær aðal
einkunnir fyrir hvern hest. Auk aðal
einkunnar eins og hún er reiknuð
í dag verður sérstök fjórgangs
einkunn einnig reiknuð þar sem
vægi skeiðs er tekið úr útreikningi
á aðaleinkunn og dreift hlutfallslega
út á aðra eiginleika hæfileikanna.
Þetta er gert til þess að auðvelda
samanburð á milli hrossa og gera
hann enn áhugaverðari. Þá koma
til með að birtast tvær einkunn
ir til viðbótar fyrir hvern hest í
WorldFeng; aðaleinkunn hæfileika
og aðaleinkunn, byggðar á fjórum
gangtegundum, auk samstarfsvilja
og fegurðar í reið. Þetta myndi vera
gert fyrir öll hross hvort sem þau
sýna skeið eða ekki.
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
Vægi einstakra eiginleika:
Höfuð 2% Tölt 16%
Háls, herðar og bógar 8% Brokk 9%
Bak og lend 5,50% Skeið 10%
Samræmi 7% Hægt stökk 4%
Fótagerð 4% Greitt stökk 3%
Réttleiki 2% Samstarfsvilji 7%
Hófar 5% Fegurð í reið 10%
Prúðleiki 1,50% Fet 6%
Samtals: 35% Samtals: 65%
Sköpulag Reiðhestskostir
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um
fjárfestinga stuðning í nautgriparækt. Í samræmi við reglugerð um stuðning
í nautgriparækt nr. 1252/2019, VIII. kafla skal umsóknum um fjárfestinga-
stuðning vegna framkvæmda á árinu skilað inn á rafrænu formi á
Bænda torginu, https://torg.bondi.is, eigi síðar en 31. mars n.k.
Framleiðandi í nautgriparækt sem uppfyllir skilyrði 3. gr. ofangreindrar
reglugerðar getur sótt um fjárfestingastuðning.
Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur
samkvæmt gildandi reglugerð um velferð nautgripa. Fjárfestingastuðningur
er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum,
bættum aðbúnaði nautgripa og aukinni umhverfisvernd. Stuðningur er
veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:
• Nýframkvæmda.
• Endurbóta á eldri byggingum.
Umsækjendur skulu skila fullnægjandi umsókn innan tilskilins tímafrests.
Nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn eru:
• Sundurliðuð kostnaðaráætlun og framkvæmdaáætlun með verklýsingu
og tímasettri verkáætlun unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins.
• Byggingarleyfi eða staðfestingu byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis
sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
• Samþykktar teikningar, ef við á. Drög að vinnuteikningum duga með
umsókn ef framkvæmd er ekki hafin. Samþykktar teikningar skulu þó
berast eigi síðar en við lokaúttekt.
• Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.
Sé fyrirhugað að framkvæmdir sem sótt er um stuðning fyrir verði fram-
kvæmdar á fleiri en einu ári skal umsækjandi gera grein fyrir áfangaskiptingu
við framkvæmdirnar í heild sinni í verklýsingu, verk- og kostnaðaráætlun.
Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið
40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna. Heimilt
er að veita stuðning við sömu framkvæmdir til allt að þriggja ára samfellt.
Umsækjendur sem hafa hug á að nýta sér þessa heimild þurfa að leggja inn
framhaldsumsókn fyrir árið 2020.
Umsóknum sem skilað er með ófullnægjandi gögnum, sbr. 27. gr. ofan-
greindrar reglugerðar, hefur atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið heimild
til að hafna.
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
Auglýst eftir umsóknum
um fjárfestinga stuðning í
nautgriparækt
Búvísindamenn í Svíþjóð óska
eftir liðsinni hrossaræktenda
á Íslandi vegna rannsóknar á
sérstökum litaafbrigðum í feldi
íslenska hestsins.
Við Landbúnaðarháskóla
Svíþjóðar (SLU) í Uppsölum eru nú
í gangi nokkrar rannsóknir þar sem
íslenski hesturinn spilar stórt hlutverk.
Ein af ástæðum fyrir vinsældum
íslenska hestsins sem viðfangsefni
rannsókna er fjölbreytileiki stofnsins
og mikið gagnasafn svipfars og
ætternisskráninga sem safnast hefur
síðustu áratugi. Í raun er það einstakt
meðal hrossakynja hve stórt og
aðgengilegt gagnasafnið er.
Átt þú hross með
sérstök litamynstur?
Á næstu misserum fer í gang
verkefni sem hefur það að markmiði
að greina erfðafræðilegan uppruna
sérstæðra mynstra í feldi hrossa.
Með sérstæðum mynstrum er til að
mynda átt við ál og rákir á leggjum
og síðum álóttra hrossa, dröfnur
og/eða bletti á búk einlitra hrossa.
Á meðfylgjandi myndum má sjá
dæmi um rákir á leggjum og síðum
móálótts hross.
DNA-sýni og ljósmyndir
Rannsóknahópurinn sem stendur
að rannsókninni leitar nú til
áhugasamra eigenda íslenskra hrossa
um að leggja fram DNAsýni úr
hrossum sem bera umrætt svipfar.
Þátttakan er auðveld en hún felur
í sér greinargóðar ljósmyndir af
svipfari hrossins og hársýni úr tagli
þess til DNAgreiningar.
Þeir sem hafa áhuga á að leggja
rannsókninni lið eða hafa frekari
spurningar eru hvattir til að hafa
samband við Doreen Schwochow
(doreen.schwochow@slu.se) eða
Heiðrúnu Sigurðardóttur (heidrun.
sigurdardottir@slu.se) hjá SLU.
Leitað er eftir sérstæðum litamynstrum á hrossum, svipuðum þeim sem hér
sjást; rákir á legg (undir t.v.) og rákir á síðu (undir t.h.).
Ljósmyndir / Kristín Halldórsdóttir
Rannsókn á íslenska hestinum:
Leitað eftir hrossum með
sérstæð litamynstur í feldi