Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 2020 29
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla
UTAN ÚR HEIMI
Inngangurinn að frægeymslunni á Svalbarða. Myndir / www.croptrust.org
Spírunarhæfni fræja
eftir 30 ár í sífrera
Meðal tilrauna sem
gerðar eru við Norræna
fræ bankann á Svalbarða
er að kanna lifun fræja
og plöntusjúkdóma í
geymslunni.
Tilraunin, sem hugsuð er
til hundrað ára, felst í því að
fræ eru geymd í gámi við
-18° á Celsíus í gamalli
kolanámu og spírunarhæfni
þeirra athuguð á nokkurra
ára fresti.
NorGen sendi nýlega frá sér skýr-
slu þar sem er sagt frá niðurstöð-
um spírunarmælinga síðustu 30 ár.
Fræjunum var komið fyrir í námunni
árið 1986. Fyrstu 20 árin voru tekn-
ar stikkprufur á tveggja og hálfs árs
fresti og spírunargeta þeirra prófuð,
auk þess sem lifun plöntusjúkdóma
sem berast með fræjum var athuguð.
Að 20 árum liðnum í geymslunni var
farið að athuga fræin á 5 ára fresti og
mun það vera gert í 80 ár.
17 mismunandi tegundir
Fræjunum var við upphaf tilraun-
arinnar skipt í 41 hluta með 17 mis-
munandi tegundum og tveimur til af
ólíkum yrkjum af norrænum nytja-
plöntum í landbúnaði og garðyrkju.
Auk þess sem hluti fræjanna var
náttúrulega smitaður af 11 ólíkum
plöntusjúkdómum.
Niðurstaða spírunartilrauna sýna að
sjö af níu tegundum sýna 90% spírun
eftir 30 ár í sífrera. Spírun hjá rauðróf-
um (Beta vul¬garis), lauk, (Allium
cepa), agúrku (Cucumis sativus) og
vallarsveiggrass (Poa pratensis) var
milli 97 og 99%. Spírunarhæfni byggs
(Hordeum vul¬gare) reyndist vera
89% og hveitis (Triticum aestivum)
79%. Sú tegund sem sýndi minnsta
spírunarhæfni er rúgur (Secale cer-
eale), eða 49%.
Plöntusjúkdómar lífseigir
Meðaltals heildarspírun hefur
minnkað úr 87,2% i 76,9% á þeim 30
árum sem tilraunin heftur staðið yfir.
Athugun á lifun plöntusjúkdóma
sýnir að allir sjúkdómarnir hafa lifað
frostið af síðustu 30 ár og styrkur
þeirra svipaður frá upphafi til síðustu
mælinga.
Til stendur að auka umfang til-
raunarinnar, fjölga tegundum sem
prófaðar verða og lengja geymslutíma
þeirra. /VH
Frægeymsla á Svalbarða er inni í fjalli og í sífrera.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hljóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga
og leggjum mikla áherslu á að veita
góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Gunnar í síma 590 5135 eða sendu línu
á gma@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Loftpressur
í hæsta
gæðaflokki
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Reki ehf Sími: 562 2950
Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Netfang: tryggvi@reki.is Vefsíða: www.reki.is
BJÓÐUM MIKIÐ ÚRVAL SÆTA Í HVERS KYNS
VINNUTÆKI FRÁ UNITEDSEATS.