Bændablaðið - 20.02.2020, Síða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 2020 31
occidentale segir að tegundin sé
upprunin í vestri.
Enska heitið cashew á fræinu
kemur úr portúgölsku þar sem tréð
kallast cajú, en það heiti kemur
aftur úr tupian, sem er safn um
70 tungumála innfæddra í Suður-
Ameríku, acajú og þýðir hnetan
sem vex af sjálfu sér. Frakkar segja
anacardier, Grikkir kάσιους, Ítalir
anacardio, Króatar kašu, Rússar
анакард og Finnar cashewpähkinä.
Danir kalla fræið cashew nød og
þaðan er íslenska heitið kasjúhneta
líkast til komið.
Útbreiðsla og saga
Elstu steingervingar kasjútrjáa eru
taldir vera 45 milljón ára gamlir
og benda til að tegundir innan
ættkvíslarinnar hafi vaxið í Mið-
Ameríku fyrr á tímum.
Útflutningur á kasjúhnetum hófst
frá Brasilíu um 1550. Almennt er
talið að Portúgalar hafi flutt með
sér fræ kasjútrjáa frá norðaustur-hér-
uðum Brasilíu til Góa á Indlandi á
árunum milli 1560 og 1565 og hófu
ræktun þeirra þar. Plantan breiddist
síðan út frá Indlandi um Suðaustur-
Asíu og til hitabeltissvæða Afríku.
Franski grasafræðingurinn Andrá
Thevet var fyrstur manna til að
lýsa plöntunni á tréristu árið 1558.
Samhliða lýsingunni segir hann frá
innfæddum í Brasilíu sem eru að
kreista aldin trésins þegar það hangir
á trénu en án frekar skýringa.
Árið 1838 segir að á Karíbaeyjum
Vestur-Indía sé farið að nota kasjú-
eplasafa sem bland með rommi.
Fyrir aldamótin 1900 voru kasjú-
hnetur fáséðar á veitingahúsum í
Evrópu og í Bandaríkjum Norður-
Ameríku og ristaðar kasjúhentur
verðlagðar svipað og rússneskur
kavíar.
Ræktun á kasjúhnetum hófst ekki
að nokkru ráði í Norður-Ameríku
fyrr en eftir aldamótin 1900 og náðu
ekki teljandi vinsældum þar fyrr en
um 1940, en í dag er neysla þeirra
á mann í Bandaríkjunum sú mesta
í heimi.
Kenningar eru um að kasjúhnet-
ur hafi borist til Indlands löngu áður
en Portúgalar fluttu plöntuna þang-
að um miðja sextándu öld. Þessu
til stuðnings er bent á að til séu
bæði fornar ritaðar heimildir og
steinmyndir frá því um 200 fyrir
Krist sem gætu sagt frá og verið
af kasjútré.
Nytjar
Í 100 grömmum af kasjúhnetum eru
553 kaloríur og þær innihalda 67%
fitu, 36% prótein, 13% trefjar og
11% kolvetni og eru ríkar af járni,
mangan, fosfór, magnesíum og
B-vítamínum.
Auk kasjúhneta gefa kasjútré
af sér aldin sem kallast kasjúepli
og þykir gott til átu. Úr aldininu
er einnig unninn sætur safi sem
meðal annars er gerjaður til að búa
til áfengi.
Á Indlandi kallast drykkurinn
annaðhvort feni og er 40 til 42%
áfengi eða urrac sem er 15%. Í
Tansaníu er aldinið þurrkað og síðan
gerjað í vatni og búinn til sterkur
göróttur drykkur sem kalast gongo.
Hýði kasjúhneta er ríkt af olíu
sem hefur verið notuð sem smurefni
í flugvélar og önnur tæki, málningu,
til að vatnsverja yfirborð, í blek og til
vopnaframleiðslu. Kasjúhnetuolía
er dökkgul á litinn og fáanleg sem
matarolía á salat og til annarra
matargerðar. Framleiðsla hennar
fer fram með einni kaldpressun.
Viður kasjútrjáa er ágætur smíða-
viður og notaður í húsgögn, báta og
ýmsa smáhluti. Í berkinum er tanín
sem notað er til litunar.
Kasjúhneta er mest neytt sem
snakk eða sem íblöndun í ýmsa rétti
og í sósur. Þær eru algengar í ind-
verskum, pakistönskum, taílenskum
og kínverskum réttum, annaðhvort
heilar eða malaðar. Á Filippseyjum
eru hneturnar malaðar og búið til
úr þeim eins konar marsípan, sem
er vafið með hrísgrjónum í deig og
steikt og í Mósambík og Suður-
Afríku eru kasjúhnetur muldar með
kartöflum í kartöflumús sem kallast
bolo polana.
Neysla á kasjúeplum er mest í
löndum Suður-Ameríku þar sem það
er notað í safa eða til matargerðar,
soðið í pasta með sykri. Í Afríku er
safi úr kasjúhnetum og kasjúeplum
kallaður kasjúmjólk.
Samkvæmt alþýðulækningu er
seyði sem unnið er úr berki kasjú-
trjáa og hnetuolíunni góð til að
mýkja sigg, líkþorn og vörtur og
græða munnangur. Barkarseyðið var
einnig drukkið við astma, kvefi og
sjúkdómum í öndunarfærum. Olían
er sögð vera mótverkandi á ýmis
eitur, drepa sníkjudýr sem sækja í
líkamann og draga úr einkennum
malaríu og sýfilis.
Indverskar ayurveda-lækningar
segja kasjúepli drepa iðraorma,
kynlífshvetjandi, koma í vef fyrir
bjúg, magastillandi og hitalækk-
andi. Á Filippseyjum er sagt að
laufið hafi svipuð áhrif, auk þess
sem sagt er að gott sé að tyggja fersk
lauf við tannverk.
Afgangs hnetur og lauf kasjú-
trjáa er notað sem dýrafóður og
vitað er að villtir Capuchin-apar
í Brasilíu nota steina til að brjóta
skelina utan af kjarna kasjúhneta
áður en þeir éta þær
Neysla kasjúhneta getur valdið
alvarlegum ofnæmisviðbrögðum
hjá fólki sem er viðkvæmt fyrir
slíku.
Hnetan sem vildi sjá heiminn
Samkvæmt gamalli þjóðtrú þrosk-
uðust kasjúhnetur áður alfarið
inni í kasjúeplinu. Fræ eitt sem
gat heyrt í fuglunum fljúga milli
trjánna, árniðinn, sögn skordýr-
anna og mál trjánna óskaði þess
heitast af öllu að fá að sjá heim-
inn utan við aldinið. Skógarandi
sem heyrði óskina lét hana rætast
og allt frá þeim tíma hefur hnetan
vaxið hálf utan við aldinið og notið
útsýnisins.
Ræktun
Kasjútré eru mest ræktuð í hita-
beltinu milli 25° norðlægrar og
suðlægrar breiddar. Trén dafna best
á láglendi og upp í þúsund metra
hæð þar sem meðalhiti er milli 21°
til 28° á Celsíus og loftraki er ekki
of hár og og ársúrkoma milli 500
og 900 millimetrar að meðaltali.
Planta hættir að vaxa fari hiti niður
fyrir 17° á Celsíus og þolir ekki
frost. Trén eru vindþolin og gera
ekki miklar kröfur til jarðvegs og
þola vel grunnan sendinn jarðveg
með sýrustig milli 4,3 til 8,7.
Spírunarhæfni kasjúfræa
minnkar hratt við geymslu og er
ágræðsla algengasta fjölgunar-
aðferðin í ræktun. Trén þola illa
flutning og afföll eru talsverð við
útplöntun. Að öllu jöfnu tekur átta
ár frá því að ungplöntum er plantað
út þar til þær fara að gefa ávöxt
og það tekur aldinið tvo til þrjá
mánuði að ná fullum þroska eftir
blómgun. Ný afbrigði geta samt
gefið ávöxt eftir þrjú ár. Uppskera
nýrra yrkja er um tonn af hnetum
á hektara og mun meiri en eldri
ræktunarsorta. Því fleiri hnetur
sem hvert tré gefur af sér, því
minni eru þær.
Uppskera á kasjúhnetum er
mannfrek og ekki hefur tekist að
vélvæða hana. Þegar aldinin hafa
náð fullum þroska falla þau af
trjánum og er þeim safnað á innan
við þremur dögum til að koma í
veg fyrir skemmdir. Eftir að hnet-
unum er safnað eru þær léttristaðar,
afhýddar og síðan pakkað.
Uppskera og vinnsla á kasjú-
hnetum í heiminum tengist víða
barnaþrælkun og ömurlegum
vinnuaðstæðum þúsunda, aðallega
kvenna og barna, í Asíu, á Indlandi
og í Afríku.
Kasjúhnetur á Íslandi
Lítið fer fyrir umfjöllun um kasjú-
hnetur í íslenskum fjölmiðlum fram
undir 1990, en þá fer þeim að bregða
fyrir í mataruppskriftum og auglýs-
ingum.
Meðfylgjandi uppskrift að
ávaxta- og kasjúhnetuís fyrir þrjá
til fjóra birtist í Bændablaðinu fyrir
tæpum áratug.
125 grömm kasjúhnetur.
500 millilítrar hreinn
appelsínusafi.
240 grömm mjúkar og gróft
saxaðar döðlur.
150 grömm smátt saxað
mangókjöt.
Einn stór og vel þroskaður
banani.
Setjið kasjúhneturnar í matvinnslu-
vél og malið þær í um tvær mínútur.
Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar
og malið áfram í tvær til þrjár eða
þangað til hneturnar eru vel maukaðar.
Setjið í stóra skál. Saxið döðlurnar
gróft og setjið í matvinnsluvélina
ásamt appelsínusafanum. Blandið
í eina til tvær mínútur eða þangað
til döðlurnar eru líka vel maukaðar.
Setjið í skálina. Afhýðið mangó og
banana og skerið í litla bita. Setjið
síðan í matvinnsluvél og blandið
í eina mínútu eða þangað til það
er vel maukað. Setjið í skálina og
hrærið vel saman. Hellið blöndunni
í grunnt plastbox og setjið í frystinn.
Takið úr frystinum á um hálftíma
til klukkustundar fresti og brjótið
ískristallana ef þeir myndast.
Endurtakið þangað til erfitt er orðið
að hræra í blöndunni. Látið ísinn
þiðna í ísskáp í um 30–40 mínútur
áður en hann er borinn fram.
Kasjúepli til sölu á Indlandi.
Óþroskaðar hnetur og aldin.
Kona af ættflokki Mameluka-indíána
í Andersfjöllum undir Kasjútré. Mynd
eftir hollenska málarann Albert Eck-
hout (1610–1665).
Uppskera og vinnsla á kasjúhnetum í heiminum tengist víða barnaþrælkun
og ömurlegum vinnuaðstæðum.
Kasjúepli tilbúin til gerjunar.
Kasjúhnetur brotnar úr skelinni.
Óafhýddar kasjúhnetur eru gráar
að lit.
Afhýddar kasjúhnetur tilbúnar til
neyslu.