Bændablaðið - 20.02.2020, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 2020 35
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Led húsnúmer
Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum
· Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli
Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer
Einnig hægt að hringa í sími 775 6080
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer
Led húsnúmerinn er einnig hægt að
skoða og versla hjá Skómeistaranum í Smáralind
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
samhliða mikilli átgetu á síðari hluta
meðgöngunnar.
Því stærri sem búin eru, því
auðveldara er yfirleitt að leysa
þetta vandamál en þá eru búnir til
nokkrir mismunandi fóðrunarhópar
þar sem holdafarinu er stýrt nokkuð
stíft. Á minni búum er fjöldi gripa
einfaldlega ekki nógu mikill til þess
að það sé mögulegt eða hagkvæmt
að búa til mismunandi fóðrunarhópa.
Á móti kemur að þá er hægt að
taka gripi í einstaklingsmeðferð og
forðast því þannig að fá alltof feita
gripi.
Tvö tímabil í geldstöðunni
Geldstaðan er talin vera hæfilega
löng ef hún er 45–60 dagar, en
tilraunir hafa sýnt að sá tími
hentar júgurvefnum best til að
undirbúa sig undir komandi
mjólkurframleiðslutímabil. Erlendis
er oftast í dag miðað við 6–7 vikur
í geldstöðu og raunar ekki lengur
talað um geldstöðu sem slíka yfir
allt tímabilið heldur nú orðið talað
um tímabilin allt að 3 vikum fyrir
burð og svo 3 vikum fyrir burð og
að burði. Þessi tvö tímabil kallast á
ensku „far-off“ sem kalla mætti fyrri
hluta geldstöðu og svo „close-up“
sem er þá síðari hluti geldstöðu.
Ástæða þess að þessi tvö tímabil
eru höfð aðskilin í geldstöðunni, er
breyting á fóðrun og ástandi bæði
kvígna og kúa.
Fyrri hluti geldstöðunnar
Á þessu tímabili fara þær á hefð-
bundið geldstöðufóður, sem er
töluvert orkulægra í styrk en þegar
kemur að síðari hluta geldstöðunnar.
Síðari hluti geldstöðunnar
Á þessu tímabili er fósturvöxturinn
á sínu lokastigi og orkuþörf kúnna
og kvíganna mikil en samtímis er
átgetan minni og minnkar oft enn
frekar þegar líður að burði. Þetta
er óheppilegt í alla staði enda
eiga kýrnar helst ekki að vera í
of miklu neikvæðu orkujafnvægi
fyrir burðinn. Af þessum sökum er
fóðruninni breytt á þessu tímabili
og orkustig þess hækkað en þó
ekki meira en svo að gripirnir
séu rétt undir orkujafnvæginu
því þá örvast brennsla á fituforða
sem er mikilvægt ferli þegar
mjólkurmyndunin er komin í fullan
gang.
Viku fyrir burð mælum
við einnig með því að sett sé
góð joðdýfa á spenana bæði á
kvígunum og kúnum svo minnka
megi líkurnar á því að þær fái
júgurbólu um eða eftir burðinn.
Þessa síðustu viku er líkaminn undir
miklu álagi og mótstöðuaflið er í
ójafnvægi, m.a. vegna breytinga á
hormónastarfseminni. Á sama
tíma er júgurvefurinn að hefja
framleiðslu sína og oft losnar um
keratín-tappana í spenaendunum
samhliða. Þá geta bakteríur komist
inn í spenann og júgurholið og
samtímis eru möguleg áhrif lang-
virkra geldstöðulyfja, hafi þau verið
notuð, orðin hverfandi og því hamla
þau ekki lengur fjölgun á bakteríum.
Með því að hlífa spenaendunum
með góðri dýfu er hins vegar hægt
að draga verulega úr líkunum á því
að þetta gerist.
Fóðrunargæðin
Í raun þarf að þrískipta fóðri í
geldstöðunni. Fyrsta fóðurgerðin
er gefin þegar kýrnar eru að
geldast upp, önnur fóðurgerðin á
fyrri hluta geldstöðunnar og svo
þriðja fóðurgerðin á síðari hluta
geldstöðunnar. Hvernig fóðrið á að
vera samsett er auðvitað háð því
hvaða fóðurgæði eru í boði hverju
sinni á viðkomandi búi en hafa þarf
sérstaklega í huga orkustig fóðursins
eins og hér að framan segir, en
einnig að bæði steinefni og vítamín
séu í samræmi við þarfirnar. Rétt er
að benda á að alltaf er mælt með því
að fóðuráætlun sé gerð af fagfólki
með sérmenntun á þessu sviði.
Í raun þarf að þrískipta fóðri í geldstöðunni. Fyrsta fóðurgerðin er gefin þegar kýrnar eru að geldast upp, önnur
fóðurgerðin á fyrri hluta geldstöðunnar og svo þriðja fóðurgerðin á síðari hluta geldstöðunnar. Mynd / HKr.