Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Blaðsíða 10
AFMÆLISRIT ÖBÍ
Baráttufundur á Austurvelli.
10
stofnunar Öryrkjabandalagsins og ýmissa sér-
félaga öryrkja og aðstandenda.
Samvinna félaganna undirbúin
Á seinni hluta sjötta áratugarins voru gerðar
nokkrar tilraunir til að koma á bandalagi starf-
andi öryrkjafélaga en án árangurs. Á stofnfundi
Sjálfsbjargar í júní 1959 var samþykkt áskorun
á stjórnina að hún beitti sér fyrir samvinnu við
önnur öryrkjafélög. Hún varð við þessari sam-
þykkt og boðaði fulltrúa frá SÍBS og Blindrafélag-
inu til fundar 7. september að Grundarstíg 15
til að ræða samstarf félaganna. Á öðrum fundi í
nóvember var kosin samstarfsnefnd félaganna
þriggja. Hún ákvað að fela þremur mönnum að
annast frekari undirbúning að stofnun banda-
lags félaganna. Það var svo ekki fyrr en í árs-
byrjun 1961 að nefndin skilaði áliti og þar kom
fram að hún taldi að miklu skipti að styrktarfélög
öryrkja gætu líka átt aðild að bandalaginu. Eftir
tillögunni varfarið.
Öryrkjabandalag íslands stofnað
Fyrri stofnfundur bandalags öryrkja var haldinn
22. mars 1961 að Bræðraborgarstíg 9. Þrír full-
trúar komu frá hverju félaganna sex sem stofna
ætluðu bandalagið en þau voru Blindrafélagið,
Blindravinafélag íslands, SÍBS, Sjálfsbjörg, lands-
samband fatlaðra, Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra og Styrktarfélag vangefinna. Framhalds-
stofnfundur var haldinn föstudaginn 5. maí á
sama stað. Eftir að búið var að samþykkja lögin
var fyrsta stjórnin kosin. Oddur Ólafsson var kos-
inn formaður og bandalaginu var gefið nafnið
Öryrkjabandalag íslands.
Fljótlega var Guðmundur Löve ráðinn fram-
kvæmdastjóri og 1. ágúst var skrifstofa banda-
lagsins opnuð að Bræðraborgarstíg 9 þar sem
hún var fyrstu tíu árin. Þeir Oddur Ólafsson náðu
vel saman og tókst á næstu tveimur áratugum að
gera Öryrkjabandalagið að sterku afli og mikil-
vægum bakhjarli fatlaðs fólks þótt fjárhagurinn
hafi allan þann tíma verið ákaflega þröngur. Með
þeim í uppbyggingarstarfinu vann vösk sveit
karla og kvenna.
Uppbyggingin í Hátúni
Fyrstu stjórnendurnir litu svo á að meginverk-
efnin framundan væru þrjú: Að styrkja fjárhags-
lega afkomu fatlaðra, auka möguleika þeirra til
endurhæfingar og að bæta úr brýnni húsnæðis-
þörf þeirra en fjöldi öryrkja bjó annaðhvort hjá
ættingjum eða í mjög slæmu húsnæði. Sérstak-
lega varð árangurinn glæsilegur í húsnæðismál-
unum. Stofnaður var Hússjóður ÖBÍ 22. febrúar
1966 og var Oddur Ólafsson kosinn formaður
stjórnar hans. f kjölfarið fékk sjóðurinn lóðir í Há-
túni og byggði þar á árunum 1966-1975 þrjár
blokkir. Þetta var mikið afrek í Ijósi lítilla fjár-
ráða bandalagsins. Farið var af stað með nán-
ast tóman peningakassa í milljarðaverk miðað