Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Page 23
Samtök
sykursjúkra
40 ára
Samtök sykursjúkra voru stofnuð 25. nóv-
ember 1971. í tilefni afmælisins er rétt að
rifja upp tildrög þess að Samtök sykursjúkra
voru stofnuð og er hér vitnað í viðtal sem
Kristinn Helgason átti við Helga Hannesson
árið 1971 en þar segir Helgi frá tildrögum
þess að samtökin voru stofnuð.
Stofnun félagsins
Helgi fékk til liðs við sig Þóri Ólafsson blikksmið
í Kópavogi og Þóri Helgason yfirlækni og stóðu
þeir með hjálp góðra manna að því að samtökin
voru stofnuð í nóvember 1971, með 136 stofn-
félaga.
Betur má ef duga skal
Á þessum fjörutíu árum hefur ýmislegt áorkast en
margt er enn ógert. Mikið starf er framundan þar
sem þjóðin eldist mjög hratt og breyttir lifnaðar-
hættir hafa stuðlað að aukinni tíðni sykursýki og
enn mun tíðnin aukast ef spár reynast réttar. Nú
er áætlað að fjöldi sykursjúkra í heiminum öllum
sé um 285 milljónir og gert er ráð fyrir að þeim
fjölgi á næstu 20 árum í 440 milljónir. Augljóst er
að hér þarf að spyrna við fótum.
Forvarnir mikilvægar
Áætlaður fjöldi þeirra sem greindir hafa verið
með sykursýki hér á landi er um 10.000 manns.
Rannsóknir benda til þess að gera megi ráð fyrir
að fyrir hvern greindan með sykursýki séu tveir
aðrir sem ganga með sjúkdóminn án þess að
vita af því. Þetta fólk verður samfélaginu mjög
dýrt því sykursýki geta fylgt mjög alvarlegir og
þar með dýrir fylgikvillar, svo sem æða-, tauga-,
augn- og nýrnaskemmdir. Sykursýki greinist
gjarnan hjá þessum einstaklingum þegar þeir
leita læknis vegna áhrifa fylgikvillanna. Góðu
fréttirnar eru hins vegar þær að snúa má þessari
þróun við með öflugum forvörnum. Með því að
hvetja almenning til heilbrigðari lífshátta má
draga úr þeim gífurlega kostnaði sem af þessum
sjúkdómi hlýst. Vitað er að offita, hreyfingarleysi,
streita, hátt kólesteról og hár blóðþrýstingur
eykur verulega líkurnar á því að menn þrói með
sér sykursýki af tegund 2.
Fræðslustarf í brennidepli
Markmið félagsins hafa verið skýr frá upphafi og
hefur fræðslustarfið ávallt verið í öndvegi. Fé-
lagið hefur fylgt því eftir með fræðslufundum
og útgáfu á ýmiss konar fræðsluefni, jafnt fyrir
sykursjúka, fagfólk og almenning. Mikið af þessu
efni hefur verið birt í Jafnvægi, tímariti samtak-
anna, sem komið hefur út sleitulaust frá árinu
1974 með örfáum undantekningum.
Merkur áfangi
Stofnun Göngudeildar sykursjúkra á Landspítala
er án efa einn merkasti áfanginn í sögu samtak-
anna. En ávallt þarf að vera á verði og nú vinna
samtökin af ötulleik að því að göngudeildin búi
ætíð við fullnægjandi starfsskilyrði. Standa þarf
vörð um að áhöld og efni sem þarf við meðferð
sjúkdómsins verði áfram niðurgreidd af hinu
opinbera.
Það er aldrei brýnna en nú að standa vörð um
þann árangur sem náðst hefur og sækja fram á
þeirri braut sem mörkuð var í upphafi.
Kæru félagsmenn og aðrir velunnarar innilega til
hamingju með árin 40.
Sigríður Jóhannsdóttir,
formaður samtaka sykursiúkra