Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Síða 32

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Síða 32
AFMÆLISRIT ÖBÍ PEIRC----- Félag nýrnasjúkra 25 ára 1986-2011 32 Markmið félagsins er að gæta hagsmuna nýrnasjúkra og aðstandenda. Verkefnin snúa að heill nýrnasjúkra almennt, sem og hverjum einstökum sem til félagsins leitar. Félagið hefur verið aðili að Öryrkjabanda- lagi íslands frá 1991. Á afmælisári Meðal mikilvægra verkefna félagsins á þessu 25 ára afmælisári er að vekja almenning til vitundar um mikilvægi þess að taka afstöðu til líffæra- gjafar. Við íslendingar erum þjóða gjafmildust þegar kemur að því að gefa eigið nýra sem lifandi gjafi. Allt að 40% aðstandenda látinna ættingja hafna því hins vegar að gefa líffæri hins látna. í þessu er fólgin mikil þversögn og á skortur á um- ræðu um málið stóran þátt í því. þau meðferðarúrræði sem læknavísindin hafa yfir að ráða. Myndin var sýnd í sjónvarpinu vorið 2010 og hefur einnig verið gefin út á mynddiski, þar sem velja má um íslenskan eða enskan texta. Árið 2009 kom út myndin Annað líf - fræðslu- mynd um líffæraígræðslur á íslandi. Runólfur Pálsson yfirlæknir var í forsvari fyrir gerð hennar en Félag nýrnasjúkra styrkti myndina og stóð straum af útgáfu hennar á mynddiski. Með auknum fjölda innflytjenda til íslands er hér nú aukin þörf fyrir fræðsluefni á öðru máli en íslensku. Stjórn félagsins lét því til að byrja með þýða kynningarbækling félagsins yfir á ensku. Það eykur gildi bæklingsins að í honum er góð lýsing á þeim meðferðarkostum sem völ er á við nýrnabilun á lokastigi. Á Alþjóðlega nýrnadeginum 10. mars síðast- liðnum hélt félagið málþing á Grand hóteli og gaf í kjölfarið út afmælisblað þar sem erindi málþingsins eru birt ásamt öðru efni. Fræðsla er mikilvæg Frá upphafi hefur fræðsla verið stór þáttur í starfi félagsins. Gefnir hafa verið út bæklingar og haldnir fundir fyrir nýrnasjúka og aðstandendur þeirra. Fræðslustarfið tók á sig nýja mynd á síð- asta ári þegar félagið lét gera fræðslumyndina Ef nýrun gefa sig. Hún fjallar um nýrnabilun og Heimasíða félagsins er uppfærð reglulega. Þar eru birtar ýmsar fræðandi greinar, auk upplýs- inga um það sem er að gerast hjá félaginu hverju sinni. Við styðjum hvert annað í samfélaginu er aukinn skilningur á þeirri miklu breytingu sem verður á lífi fólks við að veikjast af langvinnum, ólæknandi sjúkdómi og því and- lega áfalli sem það hefur í för með sér. Því hefur félagið lagt mikla áherslu á að styðja þá sem veikjast og aðstandendur þeirra við að takast á við þessar breytingar. Haldnir eru fundir reglu- lega bæði í Reykjavík og á Akureyri þar sem nýrnasjúkir og aðstandendur hitta aðra sem þekkja nýrnabilun af eigin raun. Fundirnir eru einnig ætlaðir bæði nýraþegum og nýragjöfum. Jórunn Sörensen, formaður Félags nýrnasjúkra

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.