Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Síða 55

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 05.05.2011, Síða 55
Ljósmynd: Bára Snædal hagsleg málefni. Algengast er þó að ágrein- ingurinn tengist réttindum hjáTryggingastofnun ríkisins (TR) og lífeyrissjóðum, sem og annarri stjórnsýslu. Eftir bankahrunið leita mun fleiri en áður með mál tengd fjárhagserfiðleikum. Lög- fræðiráðgjöfinni er ætlað að sinna málum sem eru lagalega flóknari en félagslega ráðgjöfin getur sinnt. Lögfræðingur ÖBÍ tekur ekki að sér að reka mál einstaklinga heldur veitir eingöngu lögfræðilega ráðgjöf. í undantekningartilvikum tekur ÖBÍ þó að sér að kosta rekstur mála sem eru fordæmisgefandi fyrir stóran hóp öryrkja. Dcmíel Isebarn Ágústsson, lögfræðingur Mikil aukning í ráðgjöf vegna fjárhags- þrenginga Til ÖBÍ leita margir sem eiga verulega erfitt með að framfleyta sér. Greiðslur almannatrygginga eru langt undir öllum viðmiðum sem skýrslan ís- lensk neysluviðmið birti. Örorkubætur hafa lítið sem ekkert hækkað síðan í byrjun árs 2009 á meðan verðlag hefur hækkað talsvert. Örorku- lífeyrisþegar, eins og aðrir íbúar landsins, reka heimili og eru með fjárhagslegar skuldbindingar. Miklar hækkanir afborgana lána, verðlagshækk- anir og hækkuð gjöld ýmiss konar koma mjög illa við marga öryrkja, sérstaklega þá sem stóðu höllum fæti fyrir efnahagshrunið. Hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjón- ustu hefur einnig aukist á síðustu árum. Heil- brigðiskostnaður hjá öryrkjum er hærri en hjá fólki almennt vegna heilsubrests og kostnaðar við ýmsa aðkeypta þjónustu. Öryrkjar þurfa yfir- leitt um 15-30% hærri tekjur en aðrir til að njóta sömu lífskjara. Fátæktargildrur Eitt af því sem einkennir stöðu öryrkja er að þeir þurfa að lifa á bótum árum og jafnvel áratugum saman. Stór hluti öryrkja getur ekki aukið tekjur sínar með því að fara út á vinnumarkaðinn, m.a. af heilsufarsástæðum. Aðgengi býður oft ekki upp á atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Öryrkjar með engar atvinnutekjur og/eða engan eða lágan líf- eyrissjóð eru verst settir. Lág frítekjumörk og tekjutengingar gera það að verkum að fólk er fast í fátæktargildrum. Öryrkjar með aðrar skattskyldar tekjur undir ákveðinni upphæð fá sömu heildartekjur eins og ef þeir væru án þessara tekna, þar sem allar skattskyldar tekjur skerða sérstaka framfærsluuppbót krónu á móti krónu. Sem dæmi leitaði til ÖBÍ öryrki með 12.160 króna skerðingu á sérstöku framfærslu- uppbótinni vegna þess að hann var með sömu krónutölu í fjármagnstekjur (vextir og verð- bætur) á ári af reikningi sem örorkubætur hans og engar aðrar greiðslur voru lagðar inn á. Vegna samspils örorkugreiðslna frá almennum lífeyrissjóðum og örorkubóta TR duttu margir öryrkjar í fátæktargildru síðustu ár, en samspilið hefur leitt til skerðinga hjá öryrkjum. Skerðingar vegna fjármagnstekna Skerðingar vegna fjármagnstekna eru þess valdandi að lítill varasjóður skerðir örorkubætur. Nauðsynlegt er að geta átt varasjóð vegna ófyrir- sjáanlegs kostnaðar og áfalla. Ósjaldan leita ör- yrkjar til ÖBÍ sökum þess að örorkubætur þeirra duga ekki fyrir framfærslu út mánuðinn og þeir eiga engan varasjóð. Oft á tíðum er hvergi hægt að fá fjárhagsstuðning fyrir þá sem ekki eru á vinnumarkaði og greiða því ekki í stéttarfélag. Þeir sem eru með mánaðarlegar tekjur yfir fram-

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.