Víkurfréttir - 12.03.2020, Qupperneq 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
Mundi
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Skegg fer þér fjári vel Margeir!
Frid
Valdimar Guðmundsson
ásamt Ásgeiri Aðalsteinssyni gítarleikara
hljómsveitin Demo
Már Gunnarsson & Ísold Wilberg
Sesselja Ósk
Stefánsdóttir
við þökkum þeim listamönnum sem komu fram, samstarfs-
og styrktaraðilum og þeim sem keyptu miða á góðgerðartónleikana
sem voru haldnir í Hljómahöll 4. mars síðastliðinn.
400 þúsund krónur
söfnuðust í Minningarsjóð Ölla
takk!
samstarfsaði lar:
styrktaraði lar:
Hár og Rósir ehf // AG-Seafood ehf // Icemar ehf // Járni ehf
Gul l og hönnun // Panda // Pylsuvagninn // Gal ler í Keflavík
Skegg
Undanfarin ár hefur gengið yfir tíska
sem er mér ekki mjög að skapi. Karl-
mönnum var talin trú um að útlit
löngu útdauðra loðfíla væri það sem
heillaði mest, bæði karla og konur.
Þannig sáum við flesta myndarlegustu
karlmenn landsins hverfa í felur bak
við ósnyrta andlitsbrúska. Flestir kalla
þetta skegg. Hver stórstjarnan á fætur
annarri féll fyrir þessari hörmungar-
bylgju og lítið lát virðist vera á.
Afar mínir báðir og faðir létu sér
aldrei vaxa skegg. Móðurafi minn
kallaði þetta sóðaskap. Þótt blindur
væri orðinn sá hann skegg á andlitum
manna og setti út á við þá sem voru
honum kærastir.
Ég hef veikum mætti reynt að benda
nokkrum vinum mínum og bræðrum
á að þetta sé ekki smart. Eiginlega bara
glatað. En þeir hafa glaðir vísað í að
einhverjar skvísur og eiginkonur hafi
hrósað þeim fyrir karlmannlegt og
glæsilegt útlit sem þeir meti framar
mínu.
Það var vatn á myllu mína þegar
fréttir bárust af því að veira kennd við
töluna nítján dveldi í skeggi manna.
Ég tók mig til á ferðalagi í höfuðborg
Skotlands og pantaði „on-line“ skegg-
snyrtingu fyrir ástkæran bróður minn
sem aldrei þessu vant gegndi bara. Fyrir
hönd hans var ég búinn að ákveða að
nóg væri nóg – burtu með loðfílinn.
Þegar skeggsnyrtirinn tók á móti
okkur sagðist hann hafa hafnað bókun-
inni og hefði engan tíma til að sinna
okkur. Þegar hann svo rekur augun í
verkefnið og finna manninn á bak við
það, stóðst hann ekki mátið. Beint í
stólinn. Hefst hann svo handa við að
mæra skeggið það sé glæsilegt, þykkt
og hann muni ekki undir nokkrum
kringumstæðum raka það af. Það verði
bara snyrt og gert enn glæsilegra. Mér
féllust hendur. Bróðir minn naut lífsins
í hálftíma í stólnum og stóð þaðan upp
með best snyrta skegg sem sést hefur.
Að auki var skeggsnyrtirinn ungur
skoskur strákur af Borginni búinn að
hrósa skegginu svo í hástert að það
fýkur ekki í bráð.
Við kvöddum Skotann. Bróðir minn
sæll og glaður. Ég tuttugu pundum
fátækari.
Skegg eru víst ekki metin til fjár.
LO
KAO
RÐ
MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR
á timarit.is
ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG
vf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á