Víkurfréttir - 26.03.2020, Page 16
16 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
— Hvernig ert þú að upplifa ástand-
ið í kringum COVID-19?
„Þetta eru mjög sérstakt ástand
sem við erum að upplifa um þessar
mundir. Erfiðar tilfinningar eins og
depurð, leiði og ótti sækir á mann
en ég er bjartsýnn á að við komumst
í gegnum þennan byl og það birti
aftur til“.
— Hefurðu áhyggjur?
„Ég hef áhyggjur af þeim sem
eru veikir fyrir árás þessarar veiru
og vona innilega að fáir tapi þeirri-
baráttu. Síðan hef ég þó nokkrar
áhyggjur af efnahagslegum afleið-
ingum ástandsins og líkt og áður er
líklegt að okkar atvinnusvæði verði
harðast úti“.
— Hefur þú gert miklar breytingar í
daglegu lífi?
„Tilveran öll hefur breyst töluvert
og maður væri alveg til í að hrað-
spóla yfir þennan kafla. Erfiðast er
að takmarka samskipti við snjall-
tækin þó flestir séu vel skólaðir á
þeim vettvangi. Annars er reynt að
halda í horfinu eins og hægt er“.
— Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi þína vinnu?
„Mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu hefur verið skipt upp
í tvo hópa sem skiptast á að vinna
heima og á vinnustað 2-3 daga í
senn. Allir fundir fara fram í gegnum
samskiptaforrit eða síma og öll sam-
skipti eru takmörkuð. Það er vont
að missa kaffistofuspjallið en fundir
eru ekkert síður skilvirkir í gegnum
tölvuna“.
— Hvenær fórstu að taka COVID-19
alvarlega?
„Um leið og hún barst til Evrópu“.
— Hvað varð til þess?
„Þá var bara tímaspursmál hvenær
veiran myndi berast hingað. Það
sem kom kannski á óvart var að hún
kæmi á skíðum í gegnum Alpana“.
— Hvernig ert þú að fara varlega?
„Ég hef ávallt verið aðdáandi
handþvotta og átti það til sem krakki
að þrífa hendurnar í miðjum matar-
tíma ef ég kámaðist eitthvað. Maður
passar betur hvaða hluti maður
snertir og er á varðbergi um hvar
veiran gæti leynst. Knús og handar-
tök hafa verið lögð af að mestu en ég
er ennþá að vinna í því að takmarka
andlitskáf “.
— Hvernig finnst þér stjórnvöld
standa sig í sóttvörnum?
„Ég er mjög sáttur við þær að-
gerðir sem ráðist hefur verið í og
öfluga upplýsingagjöf frá almanna-
varnateyminu. Mér finnst lykilatriði
að skilaboðin komi frá sérfræðing-
unum frekar en ráðherrum. Efna-
hagsaðgerðir ríkisstjórnar líta síðan
vel út og þurfum við á Suðurnesjum
að fylgja því eftir að til okkar verðir
hugsað“.
— Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
„Fara varlega og fylgja þeim fyrir-
mælum sem haldið er að okkur.
Síðan er bara að halda ró sinni og
tapa ekki gleðinni. Þetta vekur okkur
öll til umhugsunar um hvað skiptir
máli og hvernig við hegðum okkur.
Ég geri fastlega ráð fyrir að við núll-
stillum margt í okkar tilveru og
verðum betra samfélag þegar þetta er
yfirstaðið“.
— Finnst þér að sveitarfélagið þitt
gæti gert meira? Hvernig finnst
þér sveitarfélagið standa sig í
þessum málum?
„Sveitarfélagið hefur brugðist
ágætlega við og virkjað allar mögu-
legar viðbragsáætlanir og starfs-
fólk sveitarfélagsins er vakandi yfir
þróun mála. Nú þarf að huga að því
að bregðast við versnandi atvinnu-
ástandi með því að fara í sem flest
verkefni sem möguleg eru“.
— Er samkomubannið að hafa áhrif
á þig?
„Klárlega er það sem hefur mest
áhrif því félagsleg samskipti eru
okkur svo mikilvæg“.
— Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
„Innkaupamynstrið hefur ekki
tekið neinu breytingum. Hef aldrei
keypt matvöru á netinu en kaupi
ýmislegt annað á þeim vettvangi“.
— Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
„Geri fastlega ráð fyrir að
faraldurinn nái hámarki á næstu
tveimur vikum og fjari síðan út með
vorinu. Efnahagshöggið mun vara
mun lengur og það verði langt liðið
á næsta ár áður en það verður bæri-
legt“.
— Þegar faraldurinn er yfirstaðinn,
gerir þú ráð fyrir að ferðast innan-
lands eða utan?
„Við hjónin höfum gert mikið af
því ferðast innan lands sem utan og
geri ég fastlega ráð fyrir því að við
tökum upp þráðinn þegar rykið er
sest“.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK
Baldur Þórir Guðmundsson segir lykilatriði að skila-
boðin komi frá sérfræðingunum frekar en ráðherrum.
„Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar líta síðan vel út og
þurfum við á Suðurnesjum að fylgja því eftir að til okkar
verðir hugsað,“ segir hann í samtali við Víkurfréttir.
Baldur starfar hjá Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið og er bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ.
Hef áhyggjur
af þeim sem
eru veikir fyrir
árás þessarar
veiru
Ég geri fastlega ráð fyrir að faraldurinn
nái hámarki á næstu tveimur vikum og
fjari síðan út með vorinu. Efnahagshöggið
mun vara mun lengur og verður langt liðið
á næsta ár áður en það verður bærilegt.
BALDUR ÞÓRIR GUÐMUNDSSON