Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 46
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
Mundi
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
LOKAORÐ
Ragnheiðar Elínar Árnadóttur
Þú ert frábær! Bara að lesa
stafræna útgáfu af VF.
Vel gert !!!
www.vf.is/vikurfrettir/tolublod
R I T S TJ Ó R N O G A U G LÝ S I N G A R • 4 2 1 0 0 0 0 • V F @ V F. I S
Til að einfalda málið getur þú farið inn á vf.is
og skráð þig á póstlista og fengið Víkurfréttir
glóðvolgar í tölvupóstinn þinn í hverri viku!
Verði messufall og Víkurfréttir komi ekki út á prenti á þeim óvissutímum
sem nú eru, þegar heimsfaraldur vegna COVID-19 veirunnar hefur raskað bæði
mannlífi og atvinnulífi, bendum við ykkur á að blaðið verður vikulega gefið út
í rafrænni útgáfu á vf.is.
RAFRÆN ÚTGÁFA
Á ÓVISSUTÍMUM
„It‘s the End of the
World as We Know It“
– og hvað svo?
„It‘s the End of the World as We Know It“ er ekki
bara lag með hljómsveitinni R.E.M. – í dag er það ein-
faldlega staðreynd. Á örfáum dögum er allt breytt og
sjálfsagðir hlutir virðast fjarlægur draumur. Við megum
ekki hittast, heilsast, faðmast eða yfirleitt gera nokkuð
saman og orð eins og „samkomubann“, „sóttkví“ og
„fordæmalausar aðstæður“ heyrast í annarri hvorri
setningu, alls staðar, hjá öllum.
Þetta er frekar leiðinlegt ástand. Við erum öll kvíðin,
ekki bara fyrir fj... veirunni, heldur ekki síður fyrir efna-
hagsafleiðingum hennar. „It‘s the End of the World as
We Know It“ er nefnilega frekar súrt; akkúrat núna er
staðan þannig að eðlilegir hlutir eins og frelsi, ferðalög,
viðskipti og mannamót eru ekki lengur í boði. Og það
sem er enn leiðinlegra er að við höfum ekki hugmynd
um hversu lengi þetta ástand varir og hvenær við komum
okkur sem heimssamfélag aftur í gang. Sem betur fer
eigum við frábært fagfólk á sviði almannavarna og heil-
brigðisþjónustu sem leggja okkur línur og við treystum.
Fyrir það ber að þakka, sem og stjórnvöldum sem hafa
staðið sig vel í erfiðum aðstæðum.
Þetta er sem sagt heilmikil krísa. Við vitum hins
vegar að þetta mun ganga yfir og á endanum munum
við ná tökum á þessu ástandi og lífið mun fara í sinn
vanagang. Núna, í krísunni miðri, er kannski erfitt að
sjá tækifæri, eða yfirleitt einhverjar bjartar hliðar á þessu
ástandi. En það er einmitt þá sem við eigum að reyna
það sem mest. Við eigum nefnilega aldrei að sóa góðri
krísu því að í gegnum heimssöguna hafa krísur einmitt
verið uppspretta nýsköpunar, þróunar og framfara.
Þegar við getum ekki lengur gert hlutina eins og við
höfum alltaf gert þá neyðumst við til að bregðast við,
við þurfum einfaldlega að finna lausn á vandamálum
sem voru ekki áður til staðar. Ísland tók stórstígum
framförum og var hitaveituvætt þegar olíuverð rauk
upp úr öllu valdi í olíukrísunni miklu upp úr 1970.
Það varð einfaldlega of dýrt fyrir þjóðarbúið að sóa
verðmætum á innflutta, mengandi olíu og ákvörðun
var tekin um að nýta frekar innlenda, sjálfbæra auðlind
til húshitunar. Ég leyfi mér að fullyrða að þetta sé með
betri ákvörðunum í Íslandssögunni.
Núna, einungis á nokkrum dögum hefur atvinnulífið
í öllum heiminum umturnast. Við sjáum strax þróun
í mikilvægri fjarheilbrigðisþjónustu og tæknilausna á
því sviði. Allir sem geta eru að vinna heima, og meira
að segja stóri bróðir minn er farinn að mastera fjar-
fundi heiman frá sér. Víkurfréttir bregðast við með því
að koma út í rafrænt og heimsendingar á matvöru og
öðrum varningi er heitasta viðskiptatækifærið í dag.
Þetta er bara byrjunin því krísur geta af sér nýsköpun.
Við megum ekki gleyma því.
Við munum komast í gegnum þetta og við munum
verða betri og sterkari. Því eins og segir í margum-
ræddu lagi:
„It‘s the End of the World as We Know It..and I
feel fine“!
Spilaðu myndbandið með
því að smella á spilarann!