Víkurfréttir - 28.05.2020, Síða 37
Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, er
bjartsýnn á sumarið sem er framundan. Hann hefur tekist á við áskoranir í
sínu starfi á árinu og upplifir þær sem tækifæri. Haraldur svaraði nokkrum
spurningum í netspjalli við Víkurfréttir.
– Nafn:
Haraldur Árni Haraldsson.
– Fæðingardagur:
18. júlí 1959.
– Fæðingarstaður:
Reykjavík.
– Fjölskylda:
Eiginkona, þrjú börn, þrjú barna-
börn og tengdadóttir.
– Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór?
Öskukall, það var fyrsta djobbið sem
heillaði mig.
– Aðaláhugamál:
Fluguveiði.
– Uppáhaldsvefsíða:
tonlistarskoli.reykjanesbaer.is
– Uppáhalds-app í símanum:
Angling iQ.
– Uppáhaldshlaðvarp:
Flugucastið.
– Uppáhaldsmatur:
Fiskur og villibráð.
– Versti matur:
Kræklingur og bláskel, þ.e.a.s. ef það
telst til matar. Annars enginn.
– Hvað er best á grillið?
Allt sem á erindi á grill, verður gott.
– Uppáhaldsdrykkur?
Klassíska svarið er vatn, sem er gott
svar – en kaffið á sterka taug í mér.
– Hvað óttastu:
Svo sem ekkert sérstakt en ég hef um
þessar mundir áhyggjur af afkomu
sveitarfélaganna og afdrifum íslenska
hagkerfisins.
– Mottó í lífinu:
Að gera eins vel og ég get.
– Hvaða mann eða konu úr
mannkynssögunni myndir þú
vilja hitta?
Engan sérstakan.
– Hvaða bók lastu síðast?
Um tímann og vatnið eftir Andra
Snæ Magnason.
– Ertu að fylgjast með ein-
hverjum þáttum í sjónvarpinu?
Ég reyni að ná þættinum Úti.
– Uppáhaldssjónvarpsefni?
Bíómyndir.
– Fylgistu með fréttum?
Já.
– Hvað sástu síðast í bíó?
Avatar.
– Uppáhaldsíþróttamaður?
Guðjón Valur Sigurðsson.
– Uppáhaldsíþróttafélag?
Þau eru tvö: UMFN og Derby
County.
– Ertu hjátrúarfullur?
Nei.
– Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap?
Flestöll.
– Hvað tónlist fær þig til að
skipta um útvarpsstöð?
Síbyljutónlist er afar þreytandi.
Sumar stöðvar eru dálítið þar.
– Hvað hefur þú að atvinnu?
Ég er skólastjóri Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar.
– Hefur þú þurft að gera
breytingar á starfi þínu vegna
COVID-19?
Ekki á starfinu, heldur því hvernig
ég sinni því.
– Hvernig hefur þú verið að
upplifa árið 2020 hingað til?
Upplifunin er áskoranir og sumar
þeirra fela í sér ný tækifæri.
– Er bjartsýni fyrir sumrinu?
Já, heldur betur.
– Hvað á að gera í sumar?
Vinna, ferðast og veiða.
– Hvert ferðu í sumarfrí?
Það er óráðið ennþá, nema að það
verður innanlands.
– Ef þú fengir gesti utan af landi
sem hafa aldrei skoðað sig um
á Suðurnesjum. Hvert myndir
þú fara með þá fyrst og hvað
myndir þú helst vilja sýna þeim?
Ég myndi byrja á því að sýna þeim
fallega bæinn minn, Reykjanesbæ.
Síðan færi ég með gestina Reykjanes-
hringinn, með viðkomu á sem flest-
um af þeim stórkostlegu stöðum sem
þar er að finna. Auk þess myndum
við heimsækja hin sveitarfélögin á
Suðurnesjum. Það yrði örugglega
bjart og fallegt veður í þeirri hring-
ferð, svo ég myndi trítla með gestina
upp á Þorbjörn til að þeir upplifðu
glæsilegt útsýnið yfir svæðið.
Er nýja heimilið þitt á
Ásbrú kannski hjá okkur?
Skoðaðu lausar leigueignir á heimavellir.is
VíKuRFRÉTTIR á SuÐuRNESJuM í 40 áR // 37