Víkurfréttir - 28.05.2020, Qupperneq 64
Við lifum á sérstökum tímum, veirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á heims-
byggðina, þar erum við Íslendingar engin undantekning. Óvissa er orð sem
hefur oft verið notað í þessu samhengi. En það er óvissa á fleiri sviðum. Á sviði
öryggis- og varnarmála hefur óvissan aldrei verið meiri en frá tímum kalda
stríðsins. Við þessari óvissu verðum við að verða viðbúin, rétt eins og óvissunni
vegna veirunnar.
Í apríl síðastliðnum lagði utanríkisráð-
herra til í ráðherranefnd um ríkisfjár-
mál varnartengdar endurbætur og við-
hald í Helguvík og á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli. Tillögu ráðherra var
hafnað. Það er alvarlegt mál í ljósi þess
að framkvæmdirnar eru í samræmi við
þjóðaröryggisstefnu Íslands. Það hefur
ráðherra staðfest. Aðalatriði málsins er
að ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig
til að framfylgja þjóðaröryggistefnunni.
Ríkisstjórn sem vinnur ekki samkvæmt
henni er ekki stætt.
Ísland er í NATO og hefur verið frá
stofnun þess. Okkur ber að taka þátt í
vörnum Norður-Atlantshafsins sem
aðildarríki. Við eigum öryggi okkar
undir því að aðrar þjóðir komi okkur til
varnar.
Þjóðaröryggisstefna Íslands segir
skýrt að í landinu skuli vera til staðar
varnarmannvirki, búnaður, geta og sér-
fræðiþekking til að mæta þeim áskor-
unum sem Ísland stendur frammi fyrir,
í öryggis- og varnarmálum og til að upp-
fylla alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
Þetta er skýrt.
Tilfinningaástæður stjórnmálamanna
og -flokka, sem eru andvígir veru okkar
í NATO og eðlilegu viðhaldi á varnar-
mannvirkjum, ganga ekki framar þjóðar-
öryggisstefnunni.
Ríkisstjórninni ber að fylgja þjóðar-
öryggisstefnunni og treysta varnir lands-
ins. Tímasetning málsins er auk þess góð.
Framkvæmdirnar skapa mikilvæg störf á
erfiðum tímum á Suðurnesjum.
Hvers vegna varnarframkvæmdir
á Suðurnesjum?
Birgir Þórarinsson,
þingmaður Miðflokks-
ins í Suðurkjördæmi.
Tilfinningaástæður
stjórnmálamanna
og -flokka, sem
eru andvígir veru
okkar í NATO og
eðlilegu viðhaldi á
varnarmannvirkjum,
ganga ekki framar
þjóðar öryggis-
stefnunni ...
Verkefni tilbúin á Suðurnesjum í sögulegu atvinnuleysi
„Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi frábiðja sér þras um verkefnin
og krefjast þess að aðilar snúi bökum saman og sýni einhug í að koma
þessum verkefnum í gang hið fyrsta,“ segir í ályktun sem samþykkt var á
stjórnarfundi Samtaka atvinnurekenda á Suðurnesjum þann 24. maí 2020.
Þar segir einnig:
„Eins og öllum er kunnugt um er
mikil óvissa uppi í þjóðfélaginu
og í heiminum öllum um þessar
mundir vegna alheimsfaraldursins
COVID-19.
Þessi óvissa hefur valdið gríðar-
legum rekstrarerfiðleikum hjá
mörgum fyrirtækjum hér á landi
sem brugðist hafa m.a. við með upp-
sögnum á starfsfólki og sér alls ekki
fyrir endann á því.
Atvinnuleysi á landinu hefur því
stóraukist síðasta mánuðinn, sérstak-
lega hér á Suðurnesjum. Stefnir í að
atvinnuleysi hér á Suðurnesjum nái
sögulegum hæðum á næstu vikum
en er í dag ríflega 28% í Reykjanesbæ
og er nauðsynlegt fyrir samfélagið að
sporna við þeirri þróun, m.a. með
framkvæmdum sem skapa störf
tímabundið og til lengri tíma.
Ýmis verkefni hafa verið í undir-
búningi hér á svæðinu sem m.a.
innviðauppbygging í Helguvík til
að styrkja höfnina til að taka á móti
verkefnum er varða leit og björgun,
einnig verkefni er tengjast norður-
slóðum. Þar myndu koma þrír aðilar
að uppbyggingunni og er Ísland eitt
af þeim. Jafnframt myndi hafnarað-
staðan styðja við öryggishlutverk
Íslands á Norðurslóðum og skapa
möguleika til meiri uppbyggingar á
því sviði.
Samhliða þeirri uppbyggingu
skapast við þær hafnarframkvæmdir
möguleikar fyrir nýja starfsemi á
svæðinu. Einnig eru stór verkefni á
öryggissvæðinu sem myndu tengjast
Helguvíkurhöfn og má þar nefna stór
vöruhús sem á að byggja og mætti
flýta þar framkvæmdum en með til-
komu þeirra myndi hafnaraðstaðan
í Helguvík styrkjast verulega vegna
vöruflutninga til og frá þeim. Þessi
starfsemi er talin skapa um það bil
60 störf fyrir utan afleidd störf. Þessi
verkefni eru atvinnuskapandi, bæði á
framkvæmdatíma og til lengri tíma.
Reykjaneshöfn er tilbúin til fram-
kvæmda strax eins og hefur komið
fram í ályktun frá stjórn Reykjanes-
hafnar sem SAR tekur heilshugar
undir.
Samtök atvinnurekenda frábiðja
sér þras um verkefnin og krefjast
þess að aðilar snúi bökum saman og
sýni einhug í að koma þessum verk-
efnum í gang hið fyrsta og er SAR til-
búið að koma að þessum verkefnum
ef þess er óskað sama á hvaða stigi
það er.“
Fimmtudagur 28. maí 2020 // 22. tbl. // 41. árg.
64 // VíKuRFRÉTTIR á SuÐuRNESJuM í 40 áR