Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 2

Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 2
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Í þá gömlu góðu... Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 30. janúar Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 4.500 eintök. Dreifing: Pósturinn. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Mosfellingur ársins 2019 er Hilm-ar Elísson en hann bjargaði manni frá drukknun í Lágafellslaug fyrir tæpu ári síðan. Þetta er í 15. sinn sem við á bæjarblaðinu veljum Mosfelling ársins. Það er oft vandasamt verk að horfa um öxl og velja einhvern einn bæj- arbúa sem hefur gert samfélaginu okkar gott. Að bjarga mannslífi er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi. Ljóst er að ekki mátti tæpara standa þegar Hilmar reyndist réttur maður á réttum stað. Sjálfur segist hann hafa verið hlekkur í keðju og viðbrögðin hafi verið ósjálfráð. Aðrir gestir og starfsfólk laugarinnar hafi staðið sig með prýði og mildi að ekki fórr verr. Maðurinn hafði verið að kafa en þolsund í kafi er að færast í aukana og getur verið stórhættulegt ef fólk fer ekki rétt að. Í þessu tilfelli voru félagar mannsins farnir upp úr lauginni þegar atvikið gerðist. Enn á ný sannar slökkvi- stöðin sig við Skarhólabraut en viðbragðstími sjúkrabíla hefur styttst umtalsvert í Mosfellsbæ. Réttur maður Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is - Fréttir úr bæjarlífinu62 SAUÐHÓLL í LAndi HeLgAfeLLS Nú hafa nýbyggingar í landi Helgafells nær umlukið Sauðhólinn, sem er fallegt kenni- leiti syðst í túninu. Mig langar að endurbirta pistil úr Mosfellingi frá 2. október 2014 til fróðleiks fyrir nýja sveitunga og nágranna. Sauðhóll er nafn á fallegum hól í landi Helgafells. Eftirfarandi frásögn skráði Haukur Níelsson bóndi á Helgafelli að beiðni undirritaðs, sem þá var kennari í Brúarlandsskóla: Það var um veturnætur að bóndinn á Helgafelli í Mosfellssveit fór fram í Skamma- dal til að smala heim fé sínu. Veðurútlit var slæmt, kafaldskóf og skyggni því ekki gott. Bónda gekk vel að ná saman fénu, enda undan veðrinu að sækja heim til bæja, því vindur var af austri. Bónda fannst fé fleira en hann átti, en sá það ekki vel fyrir snjómugg- unni. Hélt hann að þetta ókunna fé væri annaðhvort frá Reykjum eða Varmá. Segir ekki af ferðum bónda fyrr en hann kom fram á Hrísholt fyrir ofan Sauðhól. Þá taka sig útúr nokkrar kindur og sveigja niður að hólnum. Bóndi ætlar að hlaupa fyrir kindurnar og reka þær til baka en nær ekki stöðva þær. Kindurnar hlaupa beint að hólnum. Sér bóndi þá að dyr opnast á hólnum og renna kindurnar þar inn og svo lokast hóllinn! HéÐAn og þAÐAn sauðhóll

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.