Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 32

Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 32
 - Aðsendar greinar32 Fjárhagsáætlun fyrir 2020 var sam- þykkt eins og lög gera ráð fyrir síðla árs 2019. Margt er gott þar að finna enda samstaða um ýmis málefni innan bæjarstjórnar. Vinnubrögðin við gerð fjárhagsáætlunar eru þó ár- legur ásteytingarsteinn. Samfylk- ingin hefur í áraraðir lagt það til að fagnefndir bæjarins komi með markvissari hætti að undirbúningi fjárhagsáætlunar. Virkja ætti nefndir betur í umræðu um þá málaflokka sem undir þær heyra og nefndir ættu að koma beint að tillögugerð. Lokaábyrgðin myndi þó að sjálfsögðu liggja hjá kjörnum bæjarfulltrúum sem tækju ábyrgðina á forgangsröðun tillagn- anna. Þessi lýðræðislega aðferð hefur ekki hugnast meirihluta Vinstri grænna og Sjálf- stæðisflokks. Felldar tillögur Tvær nefndir lögðu fram tillögur þegar tækifæri gafst, þ.e. á milli fyrri og síðari umræðu í bæjarstjórn. Önnur nefndin er umhverfisnefnd, undir forsæti VG, en eins og í öðrum fagnefndum skipa fulltrúar VG og D-lista meirihluta nefndarmanna. Sameinaðist nefndin um 3 tillögur sem formanni var falið að fylgja eftir. Skemmst er frá því að segja að engin þeirra hlaut framgang hjá bæjarfulltrúum VG og D-lista við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar ársins 2020. Einni var þó vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021. Hin nefndin var öldungaráð. Ráðið lagði til að stöðugildum við heimaþjónustu aldraðra yrði fjölgað um tvö og þau nýtt til að mæta þörf fyrir aðstoð við persónulega umhirðu og heimilishald, annað en heimil- isþrif, og að rjúfa félagslega einangrun aldr- aðra þar sem um hana er að ræða. Þessari tillögu hafnaði meirihluti bæjarstjórnar. Fleiri felldar tillögur Engin tillagna Samfylkingarinnar hlaut framgang við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Hér geri ég að umtalsefni tvær tillögur sem undirrituð gerði varðandi lýðræðismál í bæjarfélaginu. Annars vegar tillögu um reglubundna fundi bæjarstjórnar með stjórnum hverfafélaga, aðstoð við stofnun hverfafélaga og almenna fundi með íbúum hverfa og hins vegar tillaga um hlutastarf umboðs- manns íbúa. Fyrri tillagan er í samræmi við lið 2A í samþykktri lýðræðisstefnu Mosfells- bæjar. Tilgangur tillögunnar var að uppfylla stefnuna og efla og styrkja samtal og sam- ráð við íbúa. Það vakti greinilega ekki áhuga Vinstri grænna og sjálfstæðismanna. Seinni tillagan um hlutastarf umboðs- manns íbúa snýst um að bæjarbúum gefist tækifæri til að leita til hlutlauss aðila til að fá ráðgjöf um samskipti sín við bæjarkerf- ið. Hún snýst um að hlutlaus aðili skoði ábendingar og kvartanir bæjarbúa varð- andi úrlausn umkvörtunarefna þegar ekki hefur tekist að komast að sameiginlegum skilningi eða íbúi telur að ábendingum sínum og kvörtunum hafi ekki verið sinnt sem skyldi. Báðar þessar tillögur eru í eðli sínu mjög pólitískar, snúast um grundvallarskoðun á samráði og lýðræðislegu samtali kjörinna fulltrúa og íbúa og um samskipti og samtal bæjarkerfisins og íbúanna. Maður skyldi ætla að meirihluti VG og Sjálfstæðisflokks hefði skoðun á þessum grundvallaratriðum í samspili kjörinna fulltrúa og íbúa, en nei ekkert slíkt heyrðist. Meirihlutinn brá á það ráð að skýla sér á bak við ráðinn embættismann í stað þess að taka skýra pólitíska afstöðu til þessara tillagna. Embættismaður er settur í þá vandasömu stöðu að skrifa umsögn um há- pólitískar tillögur og í stað þess að kjörnir fulltrúar VG og D í meirihluta hysji upp um sig sokkana og taki opinbera pólitíska af- stöðu um að styðja tillögur eða hafna þeim þá kúra þau í skjóli embættismannsins. Þarna lagðist lítið fyrir meirihlutann. Anna Sigríður Guðnadóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar Fjárhagsáætlun Skólakerfið hefur þróast og breyst undanfarna áratugi og er skólinn í dag ekki sá sami og hann var fyrir 10 árum svo ekki sé talað um fyrir 20 árum. Sjónum er nú meira beint að líð- an barna og er sannað að góð skóla- menning og jákvæður skólabragur er forvörn gegn vanlíðan og undir- stöðuatriði hvað námsárangur varð- ar. Áhersla er á einstaklingsmiðað nám og stoðþjónustu skólanna. Skólinn þróast í takt við samfélag- ið, það þekkja allir. En hvað hefur breyst og hvernig sjáum við skólana okkar þróast næsta áratuginn? Aukin þátttaka foreldra Það hefur verið áskorun undanfarin ár að taka á móti miklum barnafjölda sem flutt hefur í okkar góða bæ. Vegna mikillar uppbyggingar á austursvæði bæjarins hefur fjölgun barna í Varmárskóla og Helgafells- skóla verið mikil og mikið reynt á stjórn- endur, kennara og starfsfólk skólanna. Þrátt fyrir það höfum við Mosfellingar verið óhrædd við að fara ótroðnar slóðir í skólamálum og er horft til okkar hvað það varðar. Þegar á reynir veltur mikið á jákvæðum skólabrag og góðri skólamenn- ingu. Ein breytingin í skólakerfinu er sú að foreldrar taka nú mun meiri þátt í skóla- starfinu en áður og er þáttur foreldra mjög mikilvægur. Skólinn er viðkvæmur vinnu- staður barnanna okkar og mikilvægt að áhugasamir foreldrar styðji við skólastarfið með jákvæðum hætti. Í fjölmennu samfélagi er aldrei svo að öllum líki og mikilvægt að koma á fram- færi gagnrýni og ábendingum um það sem betur má fara. Ef aðkoma foreldra er farin að hafa neikvæð áhrif á störf stjórnenda og kennara og þar með á skólabraginn þarf að staldra við. Neikvæð umræða og niðurrif hefur sjaldan skilað góðum árangri og getur bókstaflega haft skaðleg áhrif eins og dæmin sanna. Í slíku ástandi á skólaþróun og skólabragur erfitt uppdráttar. Tekið skal fram að undirritaðar eru ekki að varpa frá sér ábyrgð heldur að benda á að enginn er eyland þegar kemur að þróun og þroska lærdómssamfélagins. Grasrótin og fræðsluyfirvöld eiga að taka samtalið en ekki slaginn, þannig náum við meiri árangri. Sýnin og markmiðin eru þau sömu en sitt sýnist hverjum um leiðirnar að markmiðinu. 100 ára afmæli og fleira fram undan Það er margt fram undan í skólaþróun í Mosfellsbæ. Endurskoðun skólastefnunn- ar er stórt og spennandi verkefni og er sú vinna að hefjast. Þar ættu allir að fá tæki- færi til að láta rödd sína heyrast skólasam- félaginu til framdráttar. Vinna við forvarna- og lýðheilsustefnu er einnig að hefjast sem mun hafa áhrif á skólasamfélagið. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar til næstu þriggja ára sýnir að fókusinn er á skólunum en það er hlutverk bæjaryfirvalda að styðja við skólana, mæta þörfum og óskum sem nútíma samfélag kallar á. Mikilvægast af öllu er að daglegt starf skólanna gangi sem allra best. Að lokum er vert að nefna að á næsta ári á skólastarf í Mosfellsbæ 100 ára afmæli og verður haldið upp á það með pomp og prakt. Megi næsti áratugur færa okkur áframhaldandi gott skólastarf í Mosfellsbæ börnum okkar til heilla. Óskum starfsfólki og nemendum skól- anna gæfu og velfarnaðar á nýju ári. Kolbrún G. Þorsteinsdóttir formaður fræðslunefndar Arna Hagalínsdóttir fulltrúi í fræðslunefnd Skólinn á nýjum áratug Janúar 2020 f é l a g s m i ð s t ö ð i n B ó l Eitt af því sem við flest sjáum eftir er að hafa ekki tekið til máls og látið okkar skoðun í ljós þegar við höfðum eitthvað að segja. Flest þekkjum við þá tilfinningu að vera í hópi fólks, hvort sem er á fundi eða í öðrum kringumstæð- um, og vilja leggja eitthvað til um- ræðunnar, en ekki getað. Öll sem eru í kringum okkur virðast vera svo örugg og ákveðin, en við berjumst við að finna kjarkinn til að biðja um orðið og segja það sem við viljum segja. Kringumstæðurnar eru margvíslegar. Þetta getur verið á fundi í vinnunni, í foreldrafélaginu, í húsfélaginu eða bara í kaffispjalli einhvers staðar. Eitt það versta er að vera í mannfögnuði og vilja ávarpa afmælisbarnið, fermingarbarnið eða brúð- hjónin. Við undirbúum frábæra ræðu og förum með hana í huganum, en frestum því alltaf örlítið lengur að standa upp og taka til máls. Svo gerist það allt í einu að mælendaskrá er lokað og við komumst ekki að. Í POWERtalk samtökunum hittist fólk reglulega og æfir sig í þessu, fundarsköp- um og mörgu öðru. Við fáum fjölbreytt verkefni sem geta verið frá því að flytja þrjátíu sekúndna hvatningu upp í að flytja þrjátíu mínútna kynningu á einhverju sem við höfum áhuga á. Félagarnir fylgjast með flutningnum og í lok funda er hægt að fá ábendingar um hvað heppnaðist vel og hvað hefði mátt fara betur. Megináherslan með þátttöku í starfi POWERtalk er að taka til máls við hvers kyns tækfæri, að semja og flytja stutt eða lengri erindi og taka þátt í umræðum. Á næsta fundi hjá okkur í POWERtalk deildinni Korpu í Mosfellsbæ ætlum við að auka orðaforða okkar og víkka þekkingu á orðatiltækjum, því íslenskan er full af orðatiltækjum sem setja skemmtilegan blæ á samskiptin. Orðatiltækin auðga og skreyta málið en Bibba á Brávallagötunni á það til að stinga sér niður enda getur verið erfitt að fóta sig í heimi orðatiltækjanna því margir þekkja ekki hver upprunaleg merking þeirra er. Eitt skemmtilegasta orðatiltækið sem mikið er notað er „að leggja höfuðið í bleyti“. Það er auðvitað nokkuð sérstakt að leggja höfuðið í bleyti ef maður vill hugsa eitthvað. Skýringin á þessu er byggð á lé- legri þýðingu úr dönsku „að lægge sit hoved i blød“, en það merkir að menn leggja höf- uðið á eitthvað mjúkt, t.d. kodda, og hugsa djúpt. ‘Blød’ var einfaldlega þýtt á íslensku sem ‘bleyti’! Á næsta fund Korpu kemur Eyþór Eð- varðsson frá Þekkingarmiðlun og flytur fyrirlestur um íslensk orðatiltæki. Fundur- inn verður á annarri hæð í Safnaðarheimili Lágafellssóknar miðvikudaginn 15. janúar kl. 19:30. Viljir þú meiri upplýsingar getur þú sent okkur póst í netfangið korpa@powertalk.is og/eða kíkt á vefinn powertalk.is. Aðalheiður Rúnarsdóttir Leggðu höfuðið í bleyti Gangi þér vel! Sex vikna ódagsett dagbók sem hjálpar þér að bæta líf þitt Anna Ólöf 6924005 - heilsudagbokinmin@gmail.com

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.