Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 34

Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 34
Ögraðu þér Ég er búinn að lesa þrjá pistla um nýja árið, skrifaða af þekktum pennum Fréttablaðsins og Moggans. Allir pistlarnir snúast um þá algengu hjarðhegðun okkar Íslendinga að rífa sig í gang eftir allsnægtadesember þegar lífið snýst um að njóta og leyfa sér allar mögulegar og ómögulegar freistingar, sérstaklega þær sem hafa eitthvað með mat og drykk að gera. Einn pistlahöfundurinn, ekki sá léttasti en skemmtilega kald- hæðinn og launfyndinn penni, gerir grín að veganúar og um leið þeirri staðreynd að flestir gefast upp á mat- ar- og hreyfingarátaki áður en janúar er liðinni. Annar pistlahöfundur segist vera hætt að reyna að nota byrjun nýs árs í að skafa af sér þau fimm kíló sem hún bætir alltaf á sig í desember. Ætlar núna að fara sátt og sæl inn í nýja árið, fimm kílóum þyngri. Sá þriðji segir að allt snúist alltaf um mat á Íslandi, að svoleiðis þurfi það ekki að vera, en hann ætli samt ekki að standast freistingar eins og feitar kótilettur þegar þær bjóðast honum. Ég held að þessir pistlar hafi átt að vera hvetjandi og kannski eru þeir það fyrir einhverja. Ég les úr þeim uppgjafarskilaboð. Hættið að reyna. Hættið að reyna að lifa heilbrigðu og lífi. Hættið að reyna að breyta og bæta. Gefist upp fyrir öllum freistinginum og gefið skít í afleiðingarnar. Leyfið ykkur að þyngjast ár eftir ár, leyfið ykkur að verða oftar veik og viðkvæmari fyrir sjúkdómum, leyfið ykkur að vera þreytt og hætta að geta hluti, leyfið ykkur allt sem ykkur langar í. Ég er hinsvegar sammála pistla-höfundum um að brjálæðisátak í janúar (og svo aftur eftir sumarsukk- ið í september) skilar sjaldnast langtíma- árangri. Hvað þá, hver er leiðin? Hún er einföld, borðaðu hollt og gott – ekki of mikið – allt árið. Hættu að borða óhollt sama hvaða mánuður er. Málið leyst. Heilsumolar gaua - Heilsufréttir og nýársávarp34 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is www.fastmos.is Sími: 586 8080 Þverholti 2 Nýársávarp bæjarstjóra Mosfellsbæjar Um áramót Kæru Mosfellingar! Um áramót er hefðbundið að líta yfir farinn veg og leggja mat á það hvernig okkur tókst til, læra af því sem kann að hafa farið miður um leið og við setjum okkur markmið eða veltum fyrir okkur hvað kann að bíða okkar á nýju ári. Í það heila tekið reyndist árið 2019 gott ár fyrir íslenskt sam- félag en hægst hefur á hraða þess uppgangs sem ríkt hefur und- anfarin ár. Horfurnar fyrir okkur eru sem fyrr bjartar og strax á nýrunnu ári má búast við nettum hagvexti gangi hagvaxtar- spár eftir. Hóflegur hagvöxtur er mikilvægur til þess að unnt sé að sækja fram í hvaða starfsemi sem er. Þegar um er að ræða sveitarfélag í miklum vexti er nauðsynlegt að festa sé til staðar í efnahagsumhverfinu svo unnt sé að mæta þörfum íbúa fyrir þjónustu og sinna uppbyggingu innviða af myndarbrag. Á árinu 2019 voru gerðir skynsamlegir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði sem nefndir hafa verið lífskjarasamningar. Þessir samningar eiga mestan þátt í því að hagsveiflan er eins mjúk og raun ber vitni. Nú stendur fyrir dyrum að ljúka kjarasamn- ingum á opinberum markaði og mikilvægt er að þar takist einnig vel til. Í Mosfellsbæ hefur okkur vegnað vel enda á sér hér stað mikil uppbygging á íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, íþrótta- mannvirkjum, skólum og umferðarmann- virkjum. Þá fjölgar íbúum látlaust og við- horfskannanir síðustu ára hafa sýnt að íbúar í Mosfellsbæ eru ánægðir með þjónustu bæjarins og þeim þykir mjög vænt um sitt samfélag. Að mínu mati fléttast þar saman sú þjónusta sem sveitarfélagið veitir og það góða samfélag sem íbúar þess skapa á hverjum degi. Annar mælikvarði á væntumþykju og umhyggju Mosfellinga fyrir bænum sínum er sú staðreynd að við settum Íslandsmet í kosningaþátttöku í lýðræðisverkefninu Okkar Mosó 2019 þar sem 19,1% íbúa tók þátt í samráði íbúa og bæjarins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna. Mikill uppgangur í Mosfellsbæ Mosfellingar urðu 12.000 talsins í lok ársins og hefur fjölgað um 8% á ári undanfarin ár. Það er mikil fjölgun og í raun for- dæmalaus og sýnir hversu vinsælt sveitarfélagið er til búsetu. Nýtt fjölnota íþróttahús var tekið í notkun á haustmánuðum. Húsið er um 4.000 fermetrar að stærð og verður án efa bylting fyrir íþróttaiðkun í bænum, einkum knattspyrnuna. Fleira var gert í uppbyggingu íþróttamannvirkja á árinu 2019. Ný stúka var tekin í notkun við gervigrasvöllinn í vor og skipt var um gólfefni á öllum sölum íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá. Bráðlega verður tekin í notkun viðbygging við íþróttamiðstöð- ina Lágafell sem mun hýsa heilsuræktaraðstöðu fyrir íbúa. Miklar viðhaldsframkvæmdir áttu einnig sér stað á húsnæði bæjarins á síðasta ári og ber þar hæst endurbætur og viðhald á Varmárskóla í tengslum við endurnýjun á ytra byrði yngri deildar og viðhald vegna rakaskemmda á húsnæðinu. Mig langar til að benda á nokkur atriði í fjárhagsáætlun næsta árs sem bæði ungir og aldnir njóta góðs af. Þar er gert ráð fyrir að leikskólagjöld lækki um 5% og að álagningahlutfall fasteigna- gjalda lækki til að koma til móts við hækkandi fasteignamat. Í byrjun árs lýkur vinnu við endurskoðun á menningarstefnu bæjarins með áherslu á starfsemi Hlégarðs okkar sögufræga félagsheimils. Þá stendur mótun lýðheilsu- og fornvarnarstefnu yfir og senn verður hafist handa við að endurskoða skólastefnu Mosfells- bæjar. Mikilvægt er að stefna, markmið og aðgerðir Mosfells- bæjar í öllum málaflokkum hafi tengingu við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna enda mun meginhluti þeirra koma til framkvæmda á sveitarstjórnarstiginu. Á þessu ári er gert ráð fyrir að komið verði á fót 25 nýjum plássum á leikskólum fyrir 12- 18 mánaða gömul börn og það styttist í að öll börn 12 mánaða og eldri eigi tryggt úrræði á vegum Mosfellsbæjar. Á sviði velferðarmála eru lagðir til auknir fjármunir til málefna fatlaðs fólks. Þá verður á árinu lögð áhersla á félagslega ráðgjöf og stuðning í anda breytinga á lögum um félagsþjónustu. Loks stendur yfir endur- skoðun á aðalskipulagi bæjarins og er miðað við að þeirri vinnu ljúki fyrir lok kjörtímabilsins. Það er okkur Mosfellingum sem fyrr fagnaðarefni að rekstur og starfsemi Mosfellsbæjar er í miklum blóma og kraftur og umhyggja einkennir samfélagið okkar. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru hvað varðar það sem gerst hefur í Mosfellsbæ á síðasta ári, og hvað fram undan er en það verður ekki allt talið upp hér. Framtíðin er björt í Mosfellsbæ og með gildin okkar góðu VIRÐINGU – JÁKVÆÐNI - FRAMSÆKNI og UM- HYGGJU að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir. Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir gott samstarf, samskipti, vináttu og stuðning á árinu 2019 og megi nýrunnið ár vera okkur gæfuríkt og gleðilegt. Haraldur Sverrisson Bæjarstjóri Annar mælikvarði á væntumþykju og umhyggju Mosfellinga fyrir bænum sínum er sú staðreynd að við settum Íslandsmet í kosninga- þátttöku í lýðræðisverk- efninu Okkar Mosó 2019. M yn d/ Ra gg iÓ la

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.