Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 6
- Fréttir úr Mosfellsbæ6
Björgunarsveitin
Kjölur orðin 70 ára
Björgunarsveitin Kjölur átti 70 ára
afmæli þann 29. desember 2019. Sá
dagur árið 1949 markar upphaf sögu
slysavarna og björgunarstarfa á
Kjalarnesi. Stofnfundur slysavarna-
deildar á Kjalarnesinu var haldinn
að Klébergi og mættu um 60 manns
á fundinn. Slysavarnadeildin beitti
sér strax fyrir því að stofnuð yrði
björgunarsveit innan deildarinnar
og að fluglínutæki fengist í hrepp-
inn. Mikill kraftur var í starfinu
frá upphafi og nánast allir íbúar
Kjalarnesshrepps félagsmenn. Út-
köllum hefur fjölgað jafnt og þétt og
eru nú um 75-80 á ári. Tækjakostur
og búnaður björgunarsveitarinnar
hefur breyst mikið og þróast til hins
betra. Hins vegar hafa hugsjón og
markmið ekkert breyst nú 70 árum
síðar – að koma í veg fyrir slys og
bjarga mannslífum og verðmætum.
World Class stöðin
stækkar um helgina
Líkamsræktarstöðin World Class í
Mosfellsbæ mun taka í notkun nýja
940 m2 viðbyggingu á laugardaginn.
Líkamsræktarstöðin, sem fyrsta var
opnuð í Lágafellslaug í desember
2007, mun því stækka um helming.
World Class mun bjóða upp á stærri
tækjasal, infrared heitan sal, hjóla-
sal með ic7 hjólum, fjölnota sal, tvo
nýja búningsklefa, infrared gufu,
þurrgufu og auðvitað aðgang að
Lágafellslaug. Mosfellsbær og World
Class undirrituðu samning vegna
stækkunar á íþrótta- og líkamsrækt-
araðstöðu í Lágafelli sumarið 2017.
Nánar verður fjallað um endurbætta
stöð World Class í næsta blaði.
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðis-
ins hefur í samvinnu við Rauða krossinn,
björgunarsveitir og Vegagerðina sett upp
skilti við Vesturlandsveg, fyrsta skilti sinnar
tegundar, til að beina fólki að fjöldahjálp-
arstöð sem staðsett er í Klébergskóla á
Kjalarnesi.
Sú fjöldahjálparstöð er hvað oftast opnuð
sökum veðurs, að minnsta kosti 5 sinnum
á síðasta ári.
Sjálfboðaliðar standa vaktina
Fólkið sem stendur vaktina í fjöldahjálp-
arstöðinni í Klébergskóla er sjálfboðaliðar
Rauða krossins, en einnig starfsmenn og
stjórnendur skólans, sem er mikill kostur
þar sem þau þekkja bæði til skólans og
svæðisins. Þegar veður skellur á leggja þau
niður sín störf og fara frá fjölskyldum sín-
um til þess að aðstoða.
Mikill fjöldi fólks, sérstaklega erlendir
ferðamenn, á leið þarna um og yfir vetrar-
tímann og þarf við ákveðnar aðstæður að
loka veginum vegna veðurs. Í kjölfarið er
nauðsynlegt að opna fjöldahjálparstöð þar
sem fólk getur fengið skjól á meðan versta
veðrið gengur yfir. Það hafði borið á að fólk
vissi ekki hvert það gæti farið og hvar stöðin
væri.
Auðveldar fólki að komast í skjól
„Mikilvægt er að virða lokanir, en allur
akstur er bannaður á leiðum meðan lok-
anir standa yfir. Jafnframt á Vegagerðin
auðveldara með að hreinsa götur og ryðja
vegi til þess að hægt sé að opna þá strax og
viðvörun fellur úr gildi.
Með þessu skilti vonumst við til þess að
auðvelda fólki að komast í skjól á sem ör-
uggastan hátt,“ segir Jón Viðar Matthíasson
framkvæmdastjóri almannavarnanefndar
höfuðborgarsvæðisins.
Skilti við Vesturlandsveg • Fjöldahjálparstöð á Kjalarnesi
Fyrsta skilti sinnar tegundar
skiltið hefur þegar
sannað gildi sitt
Takk fyrir
sTuðninginn
30 X 50 CM
Félagar í Björgunarsveit-
inni Kyndli þakka bæjar-
búum fyrir stuðninginn
á árinu sem var að líða
og óska þeim velfarnaðar
á nýju ári.
-Kveðja
félagaríKyndli
ÁSAMT HLJÓMSVEIT TOMMA TOMM KYNNIR ÞORSTEINN HALLGRÍMSSON
MATTI MATT · ERNA HRÖNN
HERRA HNETUSMJÖR &
STEFÁN HILMARSSON
ÞORRABLÓT
AFTURELDINGAR
TRÍÓIÐ KÓKOS
HLAÐBORÐ FRÁ GEIRA Í KJÖTBÚÐINNI
MIÐASALA & BORÐAPANTANIR á veitingastaðnum BARION (Þverholti 1)
FÖSTUDAGINN 17. JANÚAR KL. 18:00 - Hægt er að taka frá sæti gegn keyptum miðA
MIÐAVERÐ 9.500 KR. - 20 ára aldurstakmark - MIÐI EFTIR KL. 23:30 - Í FORSÖLU 2.500 KR. - VIÐ INNGANG 3.500 KR.
MIÐASALA HEFST FÖSTUDAGINN 17. JANÚAR
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR TIL BARNA- OG UNGLINGASTARFS AFTURELDINGAR
Í ÍÞRÓTTAHÚSINU AÐ VARMÁ LAUGARDAGINN 25. JANÚAR 2020
ÁSAMT HLJÓMSVEIT TOMMA TOMM
A TI MATT · ERNA HRÖNN
& STEFÁN HILM RSSON
ÞORRABLÓT
AFTURELDINGAR
TRÍÓIÐ KÓKOS
HLAÐBORÐ FRÁ GEIRA Í KJÖTBÚÐINNI
MIÐASALA & BORÐAPANTANIR á veitingastaðnum BARION (Þverholti 1)
FÖSTUDAGINN 17. JANÚAR KL. 18:00 - Hægt er að taka frá sæti gegn keyptum miðA
MIÐAVERÐ 9.500 R. - 2 ára aldurstakmark - MIÐI EFTIR KL. 23:30 - Í FORSÖLU 2.500 KR. - VIÐ INNGANG 3.500 KR.
IÐASALA HEFST FÖSTUDAGINN 17. JANÚAR
ALL R ÁGÓÐI RENNUR TIL BARNA- OG UNGLINGASTARFS AFTURELDINGAR
Í ÍÞRÓTTAHÚSINU AÐ VARMÁ LAUGARDAGINN 25. JANÚAR 2020
Föstudaginn 7. janúar kl 7:
Bílalökkun Kópsson hefur um árabil rekið
réttingar- og málningarverkstæði fyrir öll
tryggingarfélög landsins, ásamt standsetn-
ingum og aukahlutaásetningum fyrir flest
bifreiðaumboðin.
Fyrirtækið er nú flutt að Völuteigi 11
og hefur starfsemi í Mosfellsbæ nú á nýja
árinu en starfsmenn fyrirtækisins eru sjö
talsins. Haldið var opnunarteiti á nýjum
stað rétt fyrir jólin.
Byrjaði í Atlanta húsinu árið 1998
Brynjar Smári Þorgeirsson eigandi fyrir-
tækisins byrjaði í raun árið 1996 að rétta og
mála bíla í gamla Atlanta húsinu að Völu-
teig í Mosfellsbæ. Flutti síðan starfsemi sína
á Höfðann 1999, er hann verslaði fyrirtækið
Bílaþrif Kópsson og rekur enn ásamt því
að færa út kvíarnar og versla gamalgróið
Málningarverkstæði á Skemmuvegi í Kópa-
vogi (Bílalökkunin hf.) árið 2004. Fyrirtæki
sem rekið hefur verið af sömu fjölskyldunni
síðan 1973.
Eins umhverfisvænt og kostur er
Farið var í stærra og betra húsnæði að
Smiðjuvegi 68 Kópavogi, þar sem að fyr-
irtækin Bílalökkun og Kópsson voru rekin
undir einu og sama þakinu. Það var svo árið
2019 sem tekin var ákvörðun um að fara
í gríðarmiklar endurnýjanir á tækjakosti
fyrirtækisins, þar sem stefnan var tekin á
eins umhverfisvænt fyrirtæki og kostur væri
á. Í því fólst að stærra húsnæði sem endar
með því að fyritækið er nú komið í 665 fm
fasteign að Völuteigi.
Verslaðir voru nýir hlutir til rekstursins
og þar má helst telja vatnskynntan máln-
ingarklefa og grunnklefa frá OMIA ásamt
tveimur af fullkomnustu réttingarbekkjum
sem völ var á frá Car-Oliner ásamt lyftum
og öllu er góðu og vottuðu verkstæði sæ-
mir,“ segir Brynjar Smári.
Réttingar- og málningarverkstæði flutt að Völuteigi 11 • Starfsemin á fullt á nýju ári
Bílalökkun Kópsson í Mosó
andrea sigurðardóttir og
brynjar smári þorgeirsson