Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 30

Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 30
 - Íþróttir30 Íslandsmeistarar úr 5. flokki Aftureldingar tóku þátt í Norden Cup á milli hátíðanna Léku til úrslita í Gautaborg 5. flokkur karla í handbolta hjá Aftureld- ingu tók þátt í hinu sterka móti Norden Cup á milli hátíðanna. Afturelding stóð sig frábærlega í mótinu og hafnaði í 2. sæti í mótinu eftir tap í úrslitaleik gegn Team Favrskov Håndbold frá Danmörku. Um er að ræða eitt stærsta handbolta- mót Norðurlandanna þar sem meistarar í hverju landi koma saman. Árangur liðsins er eftirtektaverður þar sem íslensk lið hafa ekki oft náð þeim árangri að komast alla leið í úrslit. Dæmi um íslensk lið sem hafa komist í úrslit má nefna lið FH árgangur 1989/1990 þar sem Aron Pálmason fór fyrir sínum mönnum sen unnu tvö ár í röð. Fréttir af íslenska liðinu úr Mosfellsbænum hafa verið fyrirferðamiklar enda liðið vakið mikla athygli fyrir leikgleði og harða vörn. Afturelding fékk boð í mótið sem Íslands- meistari í 5. flokki. Hrafn Guðmundsson og Aron Valur Gunnlaugsson fengu sérstaka viðurkenningu fyrir frammistöðu sína í úrslitakeppninni. Á myndinni eru í efri röð: Hrannar Guðmundsson þjálfari ásamt dóttur sinni Emmu Björk, Haukur, Hrafn, Daníel, Vil- hjálmur og Jökull. Neðri röð: Aron, Björn, Sigurjón, Stefán og Páll. silfurdrengir úr mosfellsbæ Ráðin framkvæmda­ stjóri fimleikadeildar Selma Birna Úlfarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fimleika- deildar Aftureldingar. Hún hefur starfað í tæp 20 ár sem þjálfari og unnið að ýmsu tengdu þjálfun, kennslu og stjórnun. Hún hefur lokið BSc í íþróttafræði og er í MBA námi við Háskólann í Reykjavík „Það er mér mikill heiður að koma aftur til starfa hjá Fimleikadeild Aftureldingar eftir 12 ára hlé og ég hlakka til að vinna með því metnaðarfulla og duglega fólki sem þar starfar. Ég er fullviss um að framtíðin sé björt hjá fimleikadeild- inni og ég hlakka mikið til þess að takast á við komandi verkefni,“ segir Selma. Hægt er að hafa samband við Selmu með því að senda tölvupóst á selma@afturelding. is eða hringja á skrifstofuna í síma 566-7089. Afturelding býður Selmu velkomna til starfa. 9 ára Kjötbúðin • Grensásvegi 48 • Sími 571 5511 • kjotbudin@kjötbudin.is SælkeraverSlun • Grill- oG veiSluþjónuSta • kjötvinnSla afmælishelgi Tilboð á 9 vinsælusTu vörunum okkar Gildir 9.-12. janúar 20% afsláttur Fylltar kartöflur með hvítlauk og beikoni Ungnautahakk 1.498 kr/kg 100% hreint og íslenskt Ungnauta ribeye 5.498 kr/kg Ungnautalundir 6.298 kr/kg í trufflusveppamarineringu Ungnautalundir 5.998 kr/kg íslenskar Bernaissósubrúsi 498 kr/stk Sætkartöflusalat 20% afsláttur Waldorfsalat 20% afsláttur súkkulaðikaka 20% afsláttur Frönsk blaut

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.