Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 17

Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 17
Kosning á www.mos.is Útnefning á íþróttafólki Mosfellsbæjar 2019 Arnar þjálfar í fjórum af sterkustu félögum landins og æfir enn og keppir sjálfur. Hann er fastamaður í landsliði Íslands í sparring. Hann vann gullverð- laun á bikarmóti þrjú og á Íslandsmóti í bardaga. Það sem bar hæst á árinu var þegar Arnar keppti á European Masters Games og uppskar silfur í A-styrkleika- flokki 45 ára og eldri -80 kg í Torino á Ítalíu. Það sem gerir þetta silfur gulli betra er að hann handarbrotnaði í upphafi bardagans en harkaði af sér og kláraði bardagann sem tapaðist 15-19. Arnar Bragason taekwondo Handknattleiksdeild Aftureldingar tilnefnir Birki Benediktsson sem hand- knattleiksmann ársins 2019. Birkir er á meðal markahæstu manna Olísdeildar karla á yfirstandandi tímabili og hefur vakið mikla athygli. Birkir hefur verið máttarstólpi í liði Aftureldingar síðast- liðinn áratug þrátt fyrir ungan aldur. Birkir hefur verið á meðal markahæstu manna liðsins undanfarin ár ásamt því að vera afar öflugur varnarmaður. Hann hefur vakið áhuga út fyrir landsteinana og stefnir ótrauður á atvinnumennsku á komandi misserum. Auk þess hefur Birkir tekið þátt í B-landsliðsverkefnum á vegum HSÍ. Birkir er glæsilegur fulltrúi handknattleiksdeildar Aftureld- ingar. Birkir Benediktsson handknattleikur Friðbjörn er ótrúlegur íþróttmaður sem hefur skotist á toppinn á undraverðum hraða. Hann byrjaði árið með því að verða þriðji á Reykjavíkurleikunum og setti þar 4 íslandsmet. Næst sigraði hann á bikarmótinu í klassískum kraftlyftingum og setti þar 4 Íslands- met. Því næst varð hann 6. á Vestur- Evrópumótinu, lyfti 642 kg í samanlögðu í 83 kg flokki. Friðbjörn sigraði með yfirburðum á Íslandsmótinu í klassísk- um kraftlyftingum og setti 5 Íslandsmet. Hann endaði árið með því að keppa á Evrópumótinu í Kaunus í Litháen. Þar varð hann þrettándi og setti nýtt Íslandsmet í hnébeygju og skaust upp í fyrsta sæti karla á stigum með 674,74 stig. Friðbjörn er í meistaranámi í íþróttafræði við HR. Friðbjörn Bragi Hlynsson kraflyftingar Guðni er 28 ára gamall og keppir í rallakstri undir merkjum Bifreiða- íþróttaklúbbs Reykjavíkur (BÍKR). Árið 2019 varð Guðni Íslandsmeistari aðstoðarökumanna í AB-varahluta- flokki. Þetta var 5. Íslandsmeistaratitill hans í rallakstri en hann hefur keppt í yfir 40 keppnum á síðastliðnum 11 árum, bæði sem ökumaður og aðstoð- arökumaður. Guðni hefur einnig sinnt keppnishaldi og félagastarfi í íþróttinni en hann var formaður BÍKR 2017-2019. Ökumaður Guðna 2019 var Jósef Heimir Guðbjörnsson en þeir félagar sigruðu í tveimur af fjórum keppnum sumarsins og lentu í 2. sæti í einni keppninni, einungis 10 sekúndum á eftir næsta bíl. Guðni segist vera hvergi nærri hættur og stefnir á enn eitt tímabilið árið 2020. guðni Freyr Ómarsson akstursíþróttir Guðmundur er frjálsíþróttamaður ársins í Mosfellsbæ. Hann hefur átt frábært ár í keppnum og keppt í mörgum greinum á árinum með góðum árangri. Helst er að nefna að hann varð Íslandsmeistari í kúluvarpi pilta 16-17 ára bæði innan og utanhúss. Hann varð einnig í 1. sæti í kúluvarpi á Silfurleik- um ÍR, 2. sæti í kúluvarpi á Stórmóti ÍR, 3. sæti í fjölþraut á Meistaramóti Íslands innanhúss og 3. sæti í kringlu- kasti á vormóti HSK. Náði með árangri sínum í kúluvarpi á árinu að tryggja sér sæti í Úrvalshópi Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir næsta keppnisár sem er frábær árangur. Guðmundur Auðunn hefur sýnt af sér góða fyrirmynd í frjálsum íþróttum og verið hvatning fyrir marga yngri iðkendur. guðmundur Auðunn Teitsson frjálsar Eyþór er 18 ára Íslands og bikarmeistari í TT tímatöku Junior. Aðalgrein er Road Race, þar keppti hann í elite-flokki en ekki í junior-flokki. Þetta var hans fyrsta ár sem hann keppti erlendis, hann tók þátt í þremur stórum mótum í Svíþjóð og Hollandi og endaði á EM í Alkmaar í Hollandi. Eyþór var í um 4 mánuði erlendis við æfingar og keppni á árinu. Eyþór Eiríksson hjólreiðar Benedikt Ólafsson býr í Mosfells- dalnum og er stoltur Harðarfélagi. Hann hefur stundað hestamennsku alla tíð og eyðir hann öllum stundum í hesthúsinu heima hjá sér. Hann vann marga góða sigra á síðasta ári eins og Hrímnismótaröðina og var í fyrsta sæti í tölti og fjórgangi á Íþróttamóti Harðar. Hann vann gæðingaskeið í Spretti, sigur lá í tölti á Sleipnismótinu og á mjög sterku Reykjavíkurmeistaramóti tók hann fyrsta sæti í tölti og gæðingaskeiði og annað sæti í fimmgangi. Sigurinn var hans i gæðingakeppni Harðar í ungl- ingaflokki og A-flokki ungmenna og var hann á verðlaunapalli í öllum greinum á Íslandsmeistaramótinu. Benedikt vakti athygli fyrir frábæra reiðmennsku og prúða framkomu innan vallar sem utan. Benedikt Ólafsson hestaíþróttir Alexander er fæddur 5. desember 1990. Hann hefur verið fastaleikmaður og fyrirliði karlaliðs Aftureldingar í blaki undanfarin ár. Alexander hefur mikinn metnað fyrir sjálfan sig og fyrir lið sitt. Hann leggur mikið á sig á æfingum og í leikjum og er ávallt tilbúin til að aðstoða liðið og starfsemina ef til hans er leitað. Alexander var lykilleikmaður liðsins á síðasta tímabili þegar liðið náði í bronsverðlaun á Íslandsmótinu í blaki. Hann er góð fyrirmynd yngri leikmanna og er vel að þessum titli komin. Alexander stefánsson blak Jason Daði spilaði lykilhlutverk í liði Aftureldingar sem náði 8. sæti í Inkasso-deildinni á nýliðnu tímabili. Þetta var fyrsta tímabil Jason Daða í Inkasso-deildinni og var hann valinn 5 sinnum í lið umferðarinnar í deildinni auk þess að fá tilnefningar í lið ársins. Jason Daði hefur alla tíð leikið fyrir félagið, er gríðarlega metnaðarfullur og er sífellt að bæta sig sem knattspyrnu- maður. Knattspyrnudeildin tilnefnir Jason Daða Svanþórsson sem íþrótta- mann Aftureldingar. Jason Daði svanþórson knattspyrna Íslands- og bikarmeistari með Breiða- bliki í þríþraut árið 2019 og tilnefndur til íþróttamanns ársins 2019 af Þríþrautar- sambandi Íslands. • Sigur og brautarmet í ofursprettþraut Kópavogs • Sigur og brautarmet í sprettþraut í Hafnarfirði • Sigur og brautarmet á Íslandsmótinu við Laugarvatn • Sigur á Íslandsmóti í ofursprettþraut í Njarðvík. Besti árangur Íslendings frá upphafi í hálfum járnkarli, 8. sæti af 2.000 keppendum í Finnlandi. Hársbreidd frá því að ná úrtakshópi fyrir Norðurlandameistaramótið í sundi í 400 metra skriðsundi. Annað sæti í heildina í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2019. Æfir 22 sinnum í viku, allt að 35 klukkustundir. sigurður Örn Ragnarsson þríþraut Árið 2019 er fyrsta heila keppnisár Þórðar með landsliði Íslands í karate. Hann er efnilegur karatemaður og hefur tekið stórstígum framförum á árinu. Hann er bæði Íslands- , GrandPrix- og RIG-meistari í kata junior pilta, hefur verið í verðlaunasætum á alþjóðlegum mótum og auk þess var hann hárs- breidd frá Norðurlandameistaratitli. Hann er frábær fyrirmynd sem deildin er stolt af. Þórður Jökull Henrysson karate Steingrímur byrjaði að keppa í torfæru og sandspyrnu árið 1990 og varð fyrst Íslandsmeistari í torfæru 1991 og aftur 2009. Hann var í keppnishléi sem ökumaður frá 1992-2006 þó svo að hann hafi verið aðstoðarmaður öll þau ár hjá öðrum ökumönnum. Hann varð Íslandsmeistari í sandspyrnu árið 2019. Hann vann allar sandspyrnurnar þrjár í jeppaflokki árið 2019 og varð við það Íslandsmeistari. Í torfærunni vann hann 3 keppnir og náði 2. sæti einu sinni og 3. sæti einu sinni og varð hann því Íslandsmeistari þar líka. Hann keppir í götubílaflokki á Strumpinum. Þetta árið var hann líka kosinn akstursíþróttamaður ársins 2019 hjá AKÍS. steingrímur Bjarnason akstursíþróttir Kristófer Karl er 18 ára gamall uppalinn Mosfellingur. Kristófer er einn efni- legasti kylfingur Íslands og lék afar vel á árinu. Hann varð Íslandsmeistari í holukeppni 18 ára og yngri annað árið í röð og taplaus í sigurliði GM í Íslandsmóti golfklúbba 18 ára og yngri. Kristófer hafnaði í 3. sæti á heimavelli á GSÍ mótaröðinni, mótaröð þeirra bestu. Kristófer lék fyrir U18 ára landslið Íslands í Evrópumóti landsliða í Frakk- landi og var á haustmánuðum valinn í A-landslið Íslands fyrir árið 2020. Kristófer er afar samviskusamur, stundar æfingar í yfir 20 klst á viku og leggur hart að sér á leiðinni að markmiðum sínum. Kristófer Karl Karlsson golf Ingvar átti sitt besta ár á ferlinum í ár og varð Íslandsmeistari í fjórum greinum í hjólreiðum (ólympískar og maraþon fjallahjólreiðar, tímaþraut og cyclocross) ásamt því að vera kjörinn hjólreiðamaður ársins, sjötta árið í röð. Fyrir Ísland keppti hann á Evrópumeist- aramóti í maraþon fjallahjólreiðum og hafnaði í 37. sæti, heimsmeistaramóti í ólympískum fjallahjólreiðum (82. sæti) og heimsmeistaramóti í maraþon fjalla- hjólreiðum (87. sæti). Í maí tók hann þátt í Belgian Mountainbike Challenge og lauk keppni í topp 20. Heima átti hann frábært ár og vann samtals 12 keppnir. Ingvar er efstur íslenskra karla á styrkleikalistum alþóðasambands keppnishjólreiða í fjallahjólreiðum og cyclocross. ingvar Ómarsson hjólreiðar Kynning á íþróttakörlum sem tilnefndir eru vegna kjörs til íþróttakarls mosfellsbæjar 2019, og afrekum þeirra á árinu.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.