Mosfellingur - 09.01.2020, Síða 34
Ögraðu þér
Ég er búinn að lesa þrjá pistla um nýja árið, skrifaða af þekktum
pennum Fréttablaðsins og Moggans.
Allir pistlarnir snúast um þá algengu
hjarðhegðun okkar Íslendinga að rífa
sig í gang eftir allsnægtadesember
þegar lífið snýst um að njóta og leyfa
sér allar mögulegar og ómögulegar
freistingar, sérstaklega þær sem hafa
eitthvað með mat og drykk að gera.
Einn pistlahöfundurinn, ekki sá léttasti en skemmtilega kald-
hæðinn og launfyndinn penni, gerir
grín að veganúar og um leið þeirri
staðreynd að flestir gefast upp á mat-
ar- og hreyfingarátaki áður en janúar
er liðinni. Annar pistlahöfundur
segist vera hætt að reyna að nota
byrjun nýs árs í að skafa af sér þau
fimm kíló sem hún bætir alltaf á sig
í desember. Ætlar núna að fara sátt
og sæl inn í nýja árið, fimm kílóum
þyngri. Sá þriðji segir að allt snúist
alltaf um mat á Íslandi, að svoleiðis
þurfi það ekki að vera, en hann ætli
samt ekki að standast freistingar eins
og feitar kótilettur þegar þær bjóðast
honum.
Ég held að þessir pistlar hafi átt að vera hvetjandi og kannski
eru þeir það fyrir einhverja. Ég les
úr þeim uppgjafarskilaboð. Hættið
að reyna. Hættið að reyna að lifa
heilbrigðu og lífi. Hættið að reyna
að breyta og bæta. Gefist upp fyrir
öllum freistinginum og gefið skít
í afleiðingarnar. Leyfið ykkur að
þyngjast ár eftir ár, leyfið ykkur að
verða oftar veik og viðkvæmari fyrir
sjúkdómum, leyfið ykkur að vera
þreytt og hætta að geta hluti, leyfið
ykkur allt sem ykkur langar í.
Ég er hinsvegar sammála pistla-höfundum um að brjálæðisátak í
janúar (og svo aftur eftir sumarsukk-
ið í september) skilar
sjaldnast langtíma-
árangri. Hvað þá,
hver er leiðin? Hún
er einföld, borðaðu
hollt og gott – ekki
of mikið – allt árið.
Hættu að borða
óhollt sama hvaða
mánuður er. Málið
leyst.
Heilsumolar gaua
- Heilsufréttir og nýársávarp34
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Þverholti 2
Nýársávarp bæjarstjóra Mosfellsbæjar
Um áramót
Kæru Mosfellingar!
Um áramót er hefðbundið að líta yfir farinn veg og leggja mat
á það hvernig okkur tókst til, læra af því sem kann að hafa farið
miður um leið og við setjum okkur markmið eða veltum fyrir
okkur hvað kann að bíða okkar á nýju ári.
Í það heila tekið reyndist árið 2019 gott ár fyrir íslenskt sam-
félag en hægst hefur á hraða þess uppgangs sem ríkt hefur und-
anfarin ár. Horfurnar fyrir okkur eru sem fyrr bjartar og strax
á nýrunnu ári má búast við nettum hagvexti gangi hagvaxtar-
spár eftir. Hóflegur hagvöxtur er mikilvægur til þess að unnt sé
að sækja fram í hvaða starfsemi sem er. Þegar um er að ræða
sveitarfélag í miklum vexti er nauðsynlegt að festa sé til staðar
í efnahagsumhverfinu svo unnt sé að mæta þörfum íbúa fyrir
þjónustu og sinna uppbyggingu innviða af myndarbrag.
Á árinu 2019 voru gerðir skynsamlegir
kjarasamningar á almennum vinnumarkaði
sem nefndir hafa verið lífskjarasamningar.
Þessir samningar eiga mestan þátt í því að
hagsveiflan er eins mjúk og raun ber vitni.
Nú stendur fyrir dyrum að ljúka kjarasamn-
ingum á opinberum markaði og mikilvægt
er að þar takist einnig vel til.
Í Mosfellsbæ hefur okkur vegnað vel
enda á sér hér stað mikil uppbygging á
íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, íþrótta-
mannvirkjum, skólum og umferðarmann-
virkjum. Þá fjölgar íbúum látlaust og við-
horfskannanir síðustu ára hafa sýnt að íbúar í Mosfellsbæ eru
ánægðir með þjónustu bæjarins og þeim þykir mjög vænt um
sitt samfélag. Að mínu mati fléttast þar saman sú þjónusta sem
sveitarfélagið veitir og það góða samfélag sem íbúar þess skapa
á hverjum degi.
Annar mælikvarði á væntumþykju og umhyggju Mosfellinga
fyrir bænum sínum er sú staðreynd að við settum Íslandsmet
í kosningaþátttöku í lýðræðisverkefninu Okkar Mosó 2019
þar sem 19,1% íbúa tók þátt í samráði íbúa og bæjarins um
forgangsröðun og úthlutun fjármagns til nýframkvæmda og
viðhaldsverkefna.
Mikill uppgangur í Mosfellsbæ
Mosfellingar urðu 12.000 talsins í lok ársins og hefur fjölgað
um 8% á ári undanfarin ár. Það er mikil fjölgun og í raun for-
dæmalaus og sýnir hversu vinsælt sveitarfélagið er til búsetu.
Nýtt fjölnota íþróttahús var tekið í notkun á haustmánuðum.
Húsið er um 4.000 fermetrar að stærð og verður án efa bylting
fyrir íþróttaiðkun í bænum, einkum knattspyrnuna.
Fleira var gert í uppbyggingu íþróttamannvirkja á árinu 2019.
Ný stúka var tekin í notkun við gervigrasvöllinn í vor og skipt var
um gólfefni á öllum sölum íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá.
Bráðlega verður tekin í notkun viðbygging við íþróttamiðstöð-
ina Lágafell sem mun hýsa heilsuræktaraðstöðu fyrir íbúa.
Miklar viðhaldsframkvæmdir áttu einnig sér stað á húsnæði
bæjarins á síðasta ári og ber þar hæst endurbætur og viðhald
á Varmárskóla í tengslum við endurnýjun á ytra byrði yngri
deildar og viðhald vegna rakaskemmda á húsnæðinu.
Mig langar til að benda á nokkur atriði í fjárhagsáætlun næsta
árs sem bæði ungir og aldnir njóta góðs af. Þar er gert ráð fyrir
að leikskólagjöld lækki um 5% og að álagningahlutfall fasteigna-
gjalda lækki til að koma til móts við hækkandi fasteignamat.
Í byrjun árs lýkur vinnu við endurskoðun á menningarstefnu
bæjarins með áherslu á starfsemi Hlégarðs okkar sögufræga
félagsheimils.
Þá stendur mótun lýðheilsu- og fornvarnarstefnu yfir og senn
verður hafist handa við að endurskoða skólastefnu Mosfells-
bæjar. Mikilvægt er að stefna, markmið og aðgerðir Mosfells-
bæjar í öllum málaflokkum hafi tengingu við
heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna enda
mun meginhluti þeirra koma til framkvæmda
á sveitarstjórnarstiginu.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að komið verði
á fót 25 nýjum plássum á leikskólum fyrir 12-
18 mánaða gömul börn og það styttist í að öll
börn 12 mánaða og eldri eigi tryggt úrræði á
vegum Mosfellsbæjar. Á sviði velferðarmála
eru lagðir til auknir fjármunir til málefna
fatlaðs fólks.
Þá verður á árinu lögð áhersla á félagslega
ráðgjöf og stuðning í anda breytinga á lögum
um félagsþjónustu. Loks stendur yfir endur-
skoðun á aðalskipulagi bæjarins og er miðað
við að þeirri vinnu ljúki fyrir lok kjörtímabilsins.
Það er okkur Mosfellingum sem fyrr fagnaðarefni að rekstur
og starfsemi Mosfellsbæjar er í miklum blóma og kraftur og
umhyggja einkennir samfélagið okkar.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru hvað
varðar það sem gerst hefur í Mosfellsbæ á
síðasta ári, og hvað fram undan er en það
verður ekki allt talið upp hér.
Framtíðin er björt í Mosfellsbæ og
með gildin okkar góðu VIRÐINGU
– JÁKVÆÐNI - FRAMSÆKNI og UM-
HYGGJU að leiðarljósi eru okkur allir
vegir færir.
Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur
öllum fyrir gott samstarf, samskipti,
vináttu og stuðning á árinu 2019
og megi nýrunnið ár vera okkur
gæfuríkt og gleðilegt.
Haraldur Sverrisson
Bæjarstjóri
Annar mælikvarði
á væntumþykju og
umhyggju Mosfellinga
fyrir bænum sínum er sú
staðreynd að við settum
Íslandsmet í kosninga-
þátttöku í lýðræðisverk-
efninu Okkar Mosó 2019.
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la