Mosfellingur - 30.01.2020, Page 21
www.mosfellingur.is - 21
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið:
„Tímavinna
iðnaðarmanna“
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar,
Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 10:00 á þriðjudeginum 4. febrúar
2020. Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar,
eigi síðar en föstudaginn 28. febrúar 2020 kl. 13:00 og þau opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Mosfellsbær óskar eftir verðum í ófyrirséð (tilfallandi) viðhald og
minni háttar fyrirséð viðhald sem Mosfellsbær ákveður að bjóða ekki
út sérstaklega á fagsviðunum trésmíði, pípulögn, raflögn, málun,
múrverk, dúkalögn, stálsmíði, blikksmíði og garðyrkju.
Reiknað er með að vinna á grundvelli útboðsins hefjist 1. júní 2020 og gerður
verður samningur um veitta þjónustu til tveggja ára í senn. Mosfellsbær
áskilur sér rétt til að framlengja samningi um tvö ár, eitt ár senn, í samráði
við verktaka. Á hverju fagsviði verður samið við tvo til þrjá aðila.
Yfirlit:
Gögn afhent á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar 4. febrúar 2020
Fyrirspurnir berist fyrir 21. febrúar 2020
Svarfrestur fyrirspurna 25. febrúar 2020
Opnun tilboða 28. febrúar 2020
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið:
„Íþróttamiðstöðin að
Varmá – Endurbætur
á þaki yfir sal 1-2“
Mosfellsbær er að endurbæta þak á Íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Hluti af þakinu hefur verið endurbættur en fyrir liggur að framkvæma
endurbætur á þeim hluta sem er óviðgerður. Sá hluti sem þegar er
viðgerður er einungis lítill hluti af þakfletinum.
Verkefni þetta felur í sér útvegun og smíði á þeim hluta burðarvirkisins sem
þarf að endurnýja, þ.e. einingum sem eru á milli burðarsperra í húsinu.
Þeim verði skilað og komið fyrir eins og þær einingar sem fyrir eru. Þær eru
einangraðar og fullfrágengnar að neðan. Verktaki skal setja nýjan þakdúk
samsvarandi þeim sem fyrir er, ásamt því að endurnýja og tengja rafdrifnar
reyklosunarlúgur. Öll útvegun efnis og allur frágangur fylgi verklýsingum og
verði unnin í samráði við verkkaupa og verkeftirlit.
Helstu verkþættir í verki sem þetta útboð nær til eru eftirfarandi:
• Fjarlæging og förgun þakdúks og burðarplatna.
• Viðgerðir á þaksperrum (Gitter sperrur).
• Smíði á burðarplötum og frágangur ofan á sperrur.
• Ásetning á nýjum þakdúki ásamt frágangi við þakbrúnir.
• Endurnýjun reyklosunarlúga og tengingar.
• Efnisútvegun.
• Varnir innanhúss vegna framkvæmda.
Helstu magntölur eru: Magn Eining
Endurbætur á þaki 2.400 m2
Fjöldi burðarplatna (áætlað) 20 stk
Verkinu skal að fullu lokið 12. ágúst 2020.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar,
Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 10:00 á þriðjudeginum 28.janúar
2020. Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar,
eigi síðar en föstudaginn 14. febrúar 2020 kl.13:00 og þau opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
LiverpooL-skoLinn
fyrir stelpur og stráka á aldrinum 6-16 ára
í Mosfellsbæ 9. - 11. júní
Skráning
er hafin
afturelding.felog. is
Nánari upplýsingar: l iverpool@afturelding. is / 5667089
byg g i n ga f é l ag i ð