Fréttablaðið - 19.06.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 3 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 9 . J Ú N Í 2 0 2 0
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Vér heilsum
glaðar fram
tíðinni
12 síðna sérblað fylgir blaðinu í dagKvennréttindablaðið
FÖ S T U
DAG U R
1 9 . J
Ú N Í 2 0
2 0
Kynning
ar: Land
snet,BH
M, Dine
Out, Ve
ritas, Ek
ill, Stok
kur, Svig
flugféla
g Ísland
s, Dagar
Kvenrétti
ndablaði
ð KYNNIN
GARBLA
Ð
JAFNRÉTTISMÁL Í dag er Kvenrétt-
indadagurinn, hátíðis- og baráttu-
dagur kvenna á Íslandi. Þá er því
fagnað að konur fengu kosningarétt
og öðluðust kjörgengi til Alþingis
þennan dag, árið 1915. Frá árinu
2003 hefur verið hvatt til að dagsins
verði minnst með því klæðast bleiku
eða bera eitthvað bleikt.
Í tilefni dagsins er prentuð á kjöl
Fréttablaðsins mynd af baráttu-
konunni Bríeti Bjarnhéðinsdóttur
og tilvitnun í orð hennar sem hún
lét falla í ræðu árið 1915 þegar kosn-
ingarétti kvenna var fagnað: „Vér
heilsum glaðar framtíðinni.“
Af sama tilefni er vefur Frétta-
blaðsins bleikur til miðnættis.
Kvenréttindadagurinn er í dag
n Sammála 70,2%
n Hvorki né 9,3%
n Ósammála 20,5%
✿ Jafnréttiskönnun
Hversu sammála eða ósammála
ertu eftirfarandi fullyrðingu:
Konur hafa jafnan rétt og karlar
á Íslandi
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · hekla.is/mitsubishisalur
L200 INTENSE
FJÓRHJÓLADRIFINN
HARÐJAXL
33" breyttur
• Sítengt fjórhjóladrif
• Hátt & lágt drif
• Sjálfskiptur
• Breytingapakki
• Dráttarbeisli
• Heithúðun á palli
Tilboðsverð 7.290.000 kr.
35" uppfærsla 1.300.000 kr.
Viðgerðir standa nú yfir á þaki Grensáskirkju enda viðrar vel til framkvæmda. Búist er við sæmilegasta veðri
fram yfir helgi, hálfskýjuðu en þurru fyrir sunnan, en rjómablíðu á Norðurlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
JAFNRÉTTISMÁL „Ég held að þessi
stemning sem skilar sér í niður-
stöðum könnunarinnar sýni að það
hafa orðið raunverulegar framfarir í
þessum málaflokki á síðustu árum
og áratugum,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra, um nýja
könnun sem Zenter rannsóknir
gerðu fyrir Fréttablaðið um viðhorf
til kynjajafnréttis á Íslandi.
Rúm 70 prósent eru sammála
þeirri fullyrðingu að konur hafi
jafnan rétt og karlar á Íslandi.
Rúmur fimmtungur er hins vegar
ósammála því að konur hafi jafnan
rétt og karlar og rúm níu prósent
eru hvorki sammála né ósammála.
Töluvert f leiri karlar eru á því að
kynin hafi jafnan rétt, eða um 80
prósent. Aðeins 60 prósent kvenna
eru þeirrar skoðunar. Um 28 pró-
sent kvenna og 13 prósent karla telja
kynin ekki hafa jafnan rétt.
Katrín segir margt hafa áunnist
í jafnréttismálum á síðustu fjórum
áratugum. Nefnir hún meðal ann-
ars leikskóla, fæðingarorlof og lög
um jöfn laun, þótt enn finnist óút-
skýrður launamunur.
„Það hafa mörg raunveruleg skref
verið stigin sem hafa skilað betra
samfélagi. Ég tel nú samt ekki að
fullu jafnrétti sé náð. Kannski er
stóra forgangsmálið nú baráttan
gegn kynbundnu of beldi.“
Katrín segist einnig telja að ein-
stakir þættir geti haft mikil áhrif.
„Ég held það hafi skipti miklu til
dæmis fyrir upplifun Íslendinga
af jafnrétti að hér var kona forseti
í sextán ár. Nú er ég önnur konan
sem gegnir embætti forsætisráð-
herra. Auðvitað er langt í land með
að það verði jafnmargar konur og
karlar sem hafa gegnt því embætti,
en þróunin er svona í rétta átt.“
Könnunin var send á könnunar-
hóp Zenter rannsókna og var gerð
15. til 18. júní síðastliðinn. Í úrtaki
voru 2.500 einstaklingar 18 ára og
eldri, en svarhlutfall var 50,5 pró-
sent. Nánar er fjallað um könnun-
ina á vef Fréttablaðsins, fretta-
bladid.is, meðal annars um afstöðu
þátttakenda eftir kyni, búsetu, aldri
og stjórnmálaskoðunum. – sar
Um 70 prósent
telja jafnrétti
kynjanna náð
Rúm 70 prósent telja konur hafa jafnan rétt og
karla á Íslandi, samkvæmt nýrri könnun. Rúmur
fimmtungur er því ósammála. Könnunin endur-
speglar raunverulegan árangur undanfarinna ára.