Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 6

Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 6
Úrlausn í þessu máli mun væntanlega hafa fordæmisgildi fyrir aðra ríkisstarfsmenn. Jón Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður Auk samgöngumála er fundað um æruvernd, eignarhald á landi og fleiri mál í nefndum þingsins. Vísbendingar eru um að fólk í AB-blóðflokki sé líklegra en aðrir til að smitast af COVID-19. DÓMSMÁL Leitað verður ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins á því hvern- ig túlka beri ákvæði vinnutímatil- skipunar ESB um skilgreiningu á vinnutíma. Úrskurður þess efnis féll í Landsrétti í lok síðustu viku en þar var snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá mars síðastliðnum. Flugvirki sem starfar hjá Sam- göngustofu höfðaði málið og vildi með því fá úr því skorið hvort sá tími sem fer í ferðalög á vegum vinnuveitanda á starfsstöð sem ekki teljist reglubundin og falli utan dagvinnutíma teljist til vinnutíma. Í úrskurði Landsréttar segir að það komi ekki skýrt fram í íslenskum lögum. Í málinu voru tilteknar tvær ferðir f lugvirkjans, annars vegar til Ísraels og hins vegar til Sádi-Arab- íu. Ferðatíminn í seinna tilvikinu náði frá klukkan 4.15 að morgni til klukkan 2.40 tæpum sólarhring síðar en aðeins tíminn frá klukkan 8 til 16 taldist til vinnutíma. Um er að ræða prófmál sem er rekið fyrir hönd hóps flugvirkja sem starfa hjá Samgöngustofu. Stefnandi telur að ferðatími sem falli utan hefðbundins dagvinnu- tíma eigi að teljast sem vinnutími sem beri að greiða fyrir. Hvorki í ESB-tilskipuninni né íslenskum lögum sé hugtakið ferðatími notað. Þar séu aðeins notuð hugtökin vinnutími og hvíldartími. Vinnutími er skilgreindur í lögum sem „sá tími sem starfsmaður er við störf, til taks fyrir atvinnurekand- ann og innir af hendi störf sín eða skyldur“ en hvíldartími telst „sá tími sem ekki telst til vinnutíma“. Jón Sigurðsson hæstaréttarlög- maður f lytur mál f lugvirkjans. Hann segir nauðsynlegt að fá leyst úr túlkun á vinnutímatilskipuninni áður en komi til efnislegrar með- ferðar á málinu. Tilskipunin var leidd í íslensk lög árið 2003. „Úrlausn á þessu máli mun vænt- anlega hafa fordæmisgildi fyrir aðra ríkisstarfsmenn. Ráðgefandi álit- um EFTA-dómstólsins er ætlað að skýra það ákvæði tilskipunar sem á reynir og stuðla að samræmdri framkvæmd á EES-svæðinu. Álitið verður síðan innlegg í dómsmálið hér á Íslandi,“ segir Jón. Í nóvember 2017 gaf EFTA-dóm- stóllinn Hæstarétti Noregs ráð- gefandi álit á túlkun sama ákvæðis vinnutímatilskipunarinnar. Þar segir að nauðsynlegur ferðatími starfsmanns til eða frá starfsstöð sem sé ekki reglubundin skuli telj- ast til vinnutíma. „Það er fordæmi sem við höfum verið að horfa til. Þar var deilt um það hvort tilteknar ferðir lögreglu- manns í sérverkefni út á land skyldu teljast til vinnutíma. Hann var á vegum vinnuveitanda og var ekki að fara til eða frá sinni reglubundnu starfsstöð.“ Samkvæmt dómi EFTA-dómstóls- ins er annaðhvort um vinnutíma að ræða eða hvíldartíma. „Þetta var sannarlega ekki hvíldartími og þess vegna getur þetta bara talist vinnutími. Flugvirkjarnir telja sig í sambærilegri stöðu.“ Ríkið viðurkennir hins vegar ekki sambærileikann við norska málið þar sem þar hafi verið um ferðir að ræða innanlands og vinnutíminn ekki virkur. sighvatur@frettabladid.is Túlkun um vinnutíma sótt til EFTA-dómstóls Leitað verður ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um túlkun ákvæðis um vinnutíma samkvæmt úrskurði Landsréttar. Flugvirkjar á Samgöngustofu deila við ríkið um hvort ferðatími til og frá starfsstöð skuli teljast vinnutími. Í umræddu dómsmáli reynir á túlkun ákvæðis vinnutilskipunar ESB en EFTA-dómstóllinn hefur lögsögu um beitingu EFTA-ríkjanna á þeirri löggjöf Evrópusambandsins sem leidd hefur verið í landslög þeirra. MYND/EFTA Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september. Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auð- lindaráðuneytisins verða veitt fjölmiðli, ritstjórn, blaða- eða fréttamanni, dag- skrárgerðarfólki, ljósmyndara eða rithöf- undi fyrir umfjöllun um umhverfismál og/ eða íslenska náttúru undangengna tólf mánuði (ágúst – ágúst). Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti verður veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði nátt- úruverndar. Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal senda í síðasta lagi 20. ágúst 2020 á netfangið postur@uar.is Tilnefningar óskast til viðurkenninga umhverfis- og auðlindaráðuneytisins Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is Ný áætlun Uppbyggingarsjóðs EES um endurnýjanlega orku, umhverfis- og loftslagsmál í Póllandi Kynningar- og samstarfsfundur á vefnum 25. júní kl. 8:30–11:00 milli fyrirtækja frá Póllandi, Íslandi og Noregi Fjallað verður um: • Bætta orkunýtni í skólabyggingum • Bætta orkunýtni í framleiðslu raforku og hita (cogeneration) • Uppbyggingu og endurnýjun hitaveitukerfa sveitarfélaga með endurnýjanlegri orku • Aukna nýtingu á jarðhita • Aukna skilvirkni orkuvinnslu í litlum vatnsaflsvirkjunum Mikil tækifæri geta verið fyrir fyrirtæki frá Íslandi í þessu samstarfi Fyrirtæki þurfa að skrá sig, sjá nánar á os.is COVID-19 Fólk í O-blóðflokki virðist vera með meiri vörn gegn COVID-19 en fólk í öðrum blóðflokkum. Þetta kemur fram í frumniðurstöðum rannsóknar bandaríska genarann- sóknafyrirtækisins 23andMe. Rúmlega 750 þúsund manns hafa tekið þátt í rannsókninni. Frum- niðurstöðurnar, sem ekki hafa farið í gengum jafningjamat, benda til að fólk í O-blóðflokki sé 14 pró- sent ólíklegra en fólk í öðrum blóð- flokkum til að smitast af COVID-19 og 19 prósentum ólíklegra til að leggjast á spítala ef það smitast. Taka niðurstöðurnar mið af aldri, kyni og kynþætti. Benda niðurstöðurnar einnig til að fólk í AB-blóðflokki sé líklegra en aðrir til að smitast. – ab Fólk í O smitast síður STJÓRNMÁL Samgöngumál verða áfram rædd í þinginu í dag en þingmenn Miðflokksins hafa rætt málið fram og til baka undanfarna daga. Eins og gjarnan í aðdraganda þingloka er fundað í þinginu yfir helgina. Auk samgönguáætlana og annarra samgöngumála eru f leiri stjórnarfrumvörp á dagskrá þing- funda en einnig er unnið að því að afgreiða mál úr nefndum. Formenn þingflokka hafa fundað á hverjum degi að undanförnu en ósamið er enn um þinglok. Dagsk rár nefndafunda gefa nokkra vísbendingu um hvaða mál er stefnt að því að klára í vor. Frum- varp dómsmálaráðherra um bætur vegna ærumeiðinga var rætt í alls- herjar- og menntamálanefnd í gær en með frumvarpinu er æruvernd færð úr hegningarlögum í einka- rétt. Þá var einnig rætt um frum- varp forsætisráðherra um hömlur á eignaryfirráð útlendinga á landi í nefndinni. Nefndin ræddi einnig frumvarp um skipta búsetu barna og frumvarp um aðgerðir gegn kennitöluflakki. Frumvarp utanríkisráðherra um breytingar á lögum um utanríkis- þjónustu Íslands var rætt í utan- ríkismálanefnd og í velferðarnefnd var rætt um nokkuð umdeild hlut- deildarlán. Samkvæmt starfsáætlun þings- ins er miðað við að þingstörfum ljúki næstkomandi fimmtudag og var forseti Alþingis hóf lega bjart- sýnn á að það tækist í samtali við Fréttablaðið í gær. Ræðst það bæði af því hve lengi umræður um sam- göngumál standa og hvort og hve- nær samningar nást meðal forystu- manna flokkanna um þau mál sem ljúka á fyrir þinglok. – aá Afgreiða á fjölda mála fyrir þinglok 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.