Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 26

Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ég ákvað fyrir ári að fara í hjólaferð með 40 öðrum hörkuhjólurum. Áskorunin var að hjóla frá Kolding í Dan­ mörku til Parísar í Frakklandi, alls 1.300 kílómetra á sjö dögum. Æfingar hófust í september 2018. Um áramót fór ég að finna fyrir óþægindum í hnjám og varð sér­ staklega slæmur í vinstra hné. Eftir heimsóknir til lækna í tæpa tvo mánuði sá ég fram á að ég kæmist ekki í þessa hjólaferð,“ segir Stefán sem notaði alltaf stuðning við hnéð á æfingum, til að geta stundað þær. „Í mars í fyrra kynntist ég Active Joints og byrjaði að nota það til að ráða bót á þessum leiða hné­ kvilla. Þegar ég var búinn að taka Active Joints í nokkurn tíma fóru óþægindin að minnka og þau voru nánast farin þegar ferðalagið hófst um mánaðamótin júní/júlí árið 2019,“ upplýsir Stefán. „Ég hjólaði þessa 1.300 kíló­ metra á sjö dögum, sem mér fannst vera kraftaverk miðað við hvernig ástandið á mér var nokkrum mán­ uðum áður. Þessi hjólaferð reyndi mikið á skrokkinn, ekki bara á hnjáliðina heldur líka á allan skrokkinn. Það var mikið líkam­ legt álag að hjóla þessa leið því við hjóluðum í sex til átta tíma á dag, þó mismunandi eftir dagleiðum, en við hjóluðum frá 150 til 200 kílómetra dag hvern,“ segir Stefán. „Ég var sá eini í hópnum sem þurfti ekki að taka neitt yfir daginn eða á kvöldin vegna álags eða óþæginda í hnjám, mjöðmum, baki, öxlum og handleggjum. Það á ég aðeins einu að þakka. Það er ekki spurning. Það er Active Joints. Stefán Ingi var sá eini í hópnum sem ekki þurfti að taka inn neitt yfir daginn eða á kvöldin vegna álags á liði eða óþæginda í skrokknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Dagrún Mjöll Ágústdóttir er þakklát fyrir bætta líðan eftir að hún fór að taka inn Active Joints og ekki síst fyrir að geta aftur farið að prjóna. Eykur sveigjanleika, orku og styrkir bein og meltingu Vörulínan Eylíf býður upp á tvær vörur, Active Joints og Stronger Bones, sem bæta heilsu liða og styrkja beinin. Vörurnar eru unnar úr hreinum íslenskum hráefnum, framleiðslan fer fram á Íslandi og öll hráefnin koma úr sjálf bærum auðlindum. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á sjálf bæran hátt úr náttúrulegum auðlindum á Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum. Eins og áður segir eru tvær tegundir frá Eylíf komnar á markað, Active Joints og Stronger Bones, en tvær aðrar tegundir eru væntanlegar í haust. Þær eru fyrir húð og hár annars vegar og hins vegar fyrir meltinguna. „Active Joints inniheldur upp­ byggjandi næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif þeirra á heilsu beina, liðamóta, húðar og tanna. Það hefur áhrif á auma og viðkvæma liði, eykur sveigjanleika þeirra, styrkir bein og eykur orku ásamt því að húð, neglur og hár njóta góðs af,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálf bærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina íslenska náttúruafurð, náttúruleg og hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt og stuðla að sveigjanlegri liðum, því með sveigjanlegri líkama erum við færari til að takast á við verkefnin í dagsins önn.“ Hrein hráefni og sjálfbær framleiðsla „Eins og áður sagði notum við hrein, íslensk hráefni sem eru þróuð á sjálf bæran hátt í Eylíf vör­ urnar,“ segir Ólöf Rún. „Þau helstu eru kalkþörungar, GeoSilica, smáþörungar (astaxanthín) og íslenskar jurtir. Kalkþörungar og GeoSilica eru í báðum vörunum, en smáþörungar (astaxanthín) og íslenskt birki eru aukalega í Active JOINTS ásamt C­ og D3­vítamíni. Kalkþörungarnir vaxa villtir neðansjávar við Vestfirði og finn­ ast helst í Arnarfirði, þar sem þeir eru tíndir neðansjávar. „Áhrif og virkni þeirra er ein­ stök og þeir hafa verið rannsak­ aðir mjög ítarlega undanfarin ár. Margar rannsóknir hafa staðfest einstaka eiginleika þeirra og góð áhrif á líkamann: þeir styrkja beinvef, byggja upp beinin, hafa góð áhrif á meltinguna og húðina og hafa líka reynst vel gegn sliti og óþægindum í liðum,“ segir Ólöf Rún. GeoSilica er náttúrulegur hágæða kísill sem er tekinn úr náttúrulegu jarðhitaefni við Hellisheiðarvirkjun. „Kísillinn hefur öflug áhrif á bandvef og beinvef, hann styrkir húðina og eykur teygjanleika hennar. Kísill eykur líka bein­ þéttni, örvar hárvöxt og styrkir neglurnar, brjóskmyndun og æðakerfið. Virkni hans hefur verið staðfest með rannsóknum,“ upp­ lýsir Ólöf Rún. Rannsóknir hafa líka staðfest virkni astaxanthín, eða smáþör­ unga, en það er öflugt andoxunar­ efni sem er 6.000 sinnum öflugra en C­vítamín, segir Ólöf Rún. „Astaxanthín hefur einstaka eiginleika og góð áhrif á líkamann og má nefna öfluga virkni fyrir húðina, vöðvana, blóðrásina, hjartað og heilann. Það styrkir ónæmiskerfið og sjónina og virkar sem innri sólarvörn fyrir húðina, ásamt því að auka teygjanleika og mýkt hennar, en margar rann­ sóknir hafa staðfest þessi áhrif.“ Astaxanthín er framleitt í lokuðu kerfi með hreinu íslensku vatni, en framleiðslan er bæði vistvæn og sjálf bær og fer fram í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. „Allar jurtirnar sem eru notaðar í Eylíf vörulínuna eru handtíndar og þurrkaðar af íslensku fyrirtæki í Hafnarfirði. Birkilauf sem notuð eru í Active Joints hafa verið notuð frá örófi alda við ýmsum kvillum og hafa vatnslosandi eiginleika,“ segir Ólöf Rún. Nánari upplýsingar er að finna á eylif.is Útsölustaðir: Öll apótek, Heilsuhúsið, Hagkaup, Mela- búðin og Fjarðarkaup. Getur loksins prjónað aftur Dagrún Mjöll Ágústsdóttir hefur mjög góða reynslu af Active Joints. „Ég fékk heilablóðfall fyrir um fimm árum og hef verið að eiga við afleiðingarnar af því,“ segir Dag­ rún sem hefur mjög góða reynslu af Active Joints. „Það lýsir sér helst þannig að ég hef verið stirð og lengi að koma mér á fætur á morgnana. Einnig hef ég verið mjög stíf og stirð í fingrum og fótum og átt frekar erfitt með gang.“ Dagrún hefur notað Active Joints í nokkra mánuði og fann fljótlega mun á sér eftir að hún byrjaði að nota það. „Nú er ég orðin svo miklu betri í líkamanum, meltingin er betri og ég á auðveldara með að ganga. Ég er f ljótari að koma mér í gang á morgnana og hef líka loksins getað byrjað að próna aftur, en það er eitthvað sem ég hafði ekki getað í nokkur ár. Það er þvílíkur munur, því mér finnst svo gaman að prjóna. Árangurinn af því að nota Active Joints hefur verið alveg ótrúlegur fyrir mig og ég mæli svo sannarlega með Active Joints, því það virkar mjög vel fyrir mig.“ Framhald af forsíðu ➛ „Heilsan er dýrmætust“ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.