Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 39

Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 39
Fjögur sveitarfélög á Austurlandi, Djúpavogshreppur, Borgarfjarðarhreppur, Fljótsdalshérað og Seyðisfjarðarkaupstaður munu sameinast og verður til um 4900 manna sveitarfélag. Áhersla er lögð á skemmtilegt og skapandi samfélag með góða þjónustu við íbúa, vandaða stjórnsýslu og sterka byggðarkjarna með greiðum samgöngum. Sveitarfélagið hyggst verða leiðandi í nýtingu rafrænna lausna í stjórnsýslu sveitarfélagsins og þjónustu við íbúa. Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfileika og ríka umhverfisvitund. Þekking og reynsla af málefnum sveitarfélaga nauðsynleg. Viðkomandi leiðir teymi sérfræðinga og annars starfsfólks í skipulags-, bygginga-, framkvæmda-, viðhalds-, umhverfismálum og náttúruauðlindum nýja sveitarfélagsins. Sveitarfélagið verður stærsta skipulagsumdæmi landsins. FRAMKVÆMDA- OG UMHVERFISSTJÓRI Helstu verkefni: • Áætlanagerð og rekstur á sviði umhverfis- mála og framkvæmda • Starfar með umhverfis- og framkvæmdaráði sveitarfélagsins • Samstarf við heimastjórnir byggðakjarnanna fjögurra • Dagleg stjórnun verkefna og starfsfólks • Ábyrgð á framkvæmdum og viðhaldi eigna sveitarfélagsins • Ábyrgð á þeim gjaldskrám er undir sviðið heyra • Samskipti og þjónusta við íbúa og fyrirtæki • Ábyrgð á framkvæmd og eftirliti með þjónustu sviðsins í skipulags-, byggingar- og umhverfismálum Menntun, hæfni og reynsla: • Reynsla af stjórnun með mannaforráð og leiðtogahæfni skilyrði • Háskólamenntun á sviði bygginga- eða skipulagsmála eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði • Þekking og reynsla af framkvæmda- og skipulagsmálum sveitarfélaga • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð nálgun • Skipulagshæfni og drifkraftur í starfi • Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að byggja upp framúrskarandi sveitarfélag Leitað er að einstaklingi með frábæra samskipta- og leiðtogahæfileika. Þekking og reynsla við breytinga- og teymisstjórnun nauðsynleg. VERKEFNASTJÓRI MANNAUÐS Helstu verkefni: • Innleiðing breytinga í samvinnu við stjórnendur • Framkvæmd, þjónusta og þróun mannauðs- og vinnuverndarmála • Innleiðing kjarasamninga og umsjón með launaákvörðunum • Stuðningur og þjálfun stjórnenda á sviði mannauðstengdra verkefna • Eftirlit með mannauðsupplýsingum og skráningu upplýsinga í mannauðskerfi • Innleiðing og yfirumsjón með jafnlaunavottun • Yfirumsjón með skipulagi fræðslu- og starfsþróunarsamtala • Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a. um líðan starfsfólks • Aðkoma að stefnumótun og þróun sveitarfélagsins Menntun, hæfni og reynsla: • Háskólamenntun í mannauðsstjórnun skilyrði • Reynsla og þekking á mannauðsmálum og breytingastjórnun skilyrði • Leiðtogahæfni og reynsla af verkefnastjórnun skilyrði • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg • Reynsla af stefnumótun og teymisstarfi er æskileg • Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfsfærni • Góð tungumálakunnátta og færni í tjáningu í ræðu og riti • Sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð nálgun • Frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfileika og góða þekkingu á rafrænum tækifærum. Þekking og reynsla af þróunar- og breytingstjórnun. VERKEFNASTJÓRI RAFRÆNNAR ÞRÓUNAR OG ÞJÓNUSTU Helstu verkefni: • Stýra teymi innleiðingar rafrænnar þjónustu og notendamiðaðrar hönnunar • Þróun og efling rafrænna þjónustuleiða • Mótar stefnu og stýrir vefum og samfélagsmiðlun á vegum sveitarfélagsins • Þjálfun og handleiðsla samstarfsfólks • Náið samstarf við aðrar deildir sveitarfélagsins • Aðkoma að stefnumótun í rafrænni þjónustu Menntun, hæfni og reynsla: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur • Reynsla af verkefnastjórnun og teymisstjórnun skilyrði • Reynsla og þekking á stafrænum lausnum skilyrði • Reynsla af þjónustuþróun og notendamiðaðri hönnun • Reynsla af þróun og innleiðingu breytinga • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum • Leiðtogafærni og skipulagshæfileikar • Lausnamiðuð og skapandi hugsun • Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu NÝTT SAMEINAÐ SVEITARFÉLAG Á AUSTURLANDI LEITAR AÐ ÖFLUGUM EINSTAKLINGUM Í LYKILSTÖÐUR Umsækjendur geta valið aðalsstarfsstöð í einu af sveitarfélögunum fjórum en munu þjóna öllum íbúum og starfsfólki nýja sveitarfélagsins. Mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og eigi síðar en í september 2020. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.