Fréttablaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 46
Útboð nr. 20321
Sporðöldustífla - Hrauneyjastífla
Yfirfallsvegir – gröftur og fylling
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í endurbætur á yfirfalls-
vegum
Sporðöldu- og Hrauneyjastífla, samkvæmt útboðsgögnum
nr. 20321.
Neðan lokuvirkis Hrauneyjalóns skal dýpka og breikka
yfirfallsveg þess á um 300 m löngum kafla og byggja úr
uppgreftrinum varnargarð samsíða farveginum á suður-
bakka hans. Þessi verkhluti verður unninn sumarið og
haustið 2020.
Í farvegi neðan yfirfalls Sporðöldulóns skal byggja þrjá
fyrirstöðugarða sem mótvægisaðgerð við rofi sem átt
hefur sér stað í farveginum. Gert er ráð fyrir að þessi verk-
hluti verði unninn í 2 áföngum, á árunum 2020 og 2021.
Gert er ráð fyrir að verk geti hafist í lok júlí 2020 og eru
verklok 17.9.2021
Helstu magntölur eru áætlaðar:
Námuvinnsla-ofanafhreinsun 20.000 m3
Námuvinnsla-grjótvinnsla 20.000 m3
Gröftur, flokkun og flutningur 31.000 m3
Fyllingar 35.200 m3
Vettvangsskoðun verður 30. júní 2020.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Landsvirkjunar
þriðjudaginn 23. júní 2020.
https://in-tendhost.co.uk/landsvirkjun/aspx/Home
Tilboðum skal skila í gegnum útboðsvef Landsvirkjunar á
slóðinni:
https://in-tendhost.co.uk/landsvirkjun/aspx/Home
fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 7. júlí 2020, niðurstöður
tilboða, nöfn bjóðenda og heildarfjárhæðir með vsk verða
birtar eftir kl. 14:00 sama dag á útboðsvefnum.
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Jórufell 2-12 – endurbætur á lóð 2020,
útboð nr. 14887.
• Kirkjusandur - Yfirborðsfrágangur 2020,
útboð nr. 14906.
• Seljakot - Viðbyggingar,
Alútboð nr. 14910.
• Eiðsgrandi. Boðagrandi – Ánanaust. Hjólastígur,
útboð nr. 14916.
• Flókagata. Rauðarárstígur Lönguhlíð.
Göngustígur, útboð nr. 14917.
• Mjódd, endurnýjun útisvæðis - Undirbúningur,
útboð nr. 14918.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í
gatnagerð, fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt
lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og
fjarskiptalagnir vegna fyrirhugaðra
framkvæmda við 1. áfanga í Hamranesi.
Útboðsgögn verða seld í þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, frá og með
fimmtudeginum 25. júní 2020. Verð kr. 5.000,-
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 14.
júlí 2020, kl. 11:00.
Helstu magntölur eru:
Lengd gatna 1.145 m
Uppúrtekt 10.000 m3
Losun á klöpp í götustæði 3.200 m3
Losun á klöpp í skurðstæði 11.900 m3
Neðra burðarlag 9.300 m3
Fyllingar 11.200 m3
Malbik 10.900 m2
Fráveitulagnir 2.250 m
Skurðir veitna 1.550 m
Verklok eru 1. maí 2021, með áfangaskilum 1.
október 2020.
Nánar á hafnarfjordur.is
HAMRANES - 1.ÁFANGI
ÚTBOÐ
hafnarfjordur.is585 5500
ÚTBOÐ
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í verkið:
Útboð Vorsabær – júní 2020
Verklok eru 15.10.2020
Verkið felur í sér frágang á nýrri götu, Vorsabær þ.e. að
leggja út styrktarlag, jafna og þjappa þar sem vantar
í, sem er einkum til endanna. Leggja út jöfnunarlag
(burðarlag) jafna og þjappa og malbika svo alla götuna
og botnlangann, Steypa kantsteina og skila allri götunni
og lóðum byggingarhæfum. Auk þess skal undirbyggja
og malbika gangstíg norðan götunnar og einnig undir-
byggja og leggja grasþökur á milli götu og gangstígs.
Verkið felur einnig í sér að setja upp ljósastaura og full-
gera götulýsingu.
Helstu magntölur eru:
Fylling óflokkað efni (undir gras) 430 m3
Styrktarlag (+ jöfnun og þjöppun) 1920 m3
Burðarlag (+ jöfnun og þjöppun) 270 m3
Malbik götur Y11 4340 m2
Malbik göngustígar Y8 750 m2
Vélsteyptur kantsteinn 1030 m
Þökulagnir 540 m2
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með
mánudeginum 22.06.2020. Þeir sem hyggjast gera tilboð í
verkið skulu hafa samband við Rúnar hjá Eflu Suðurlandi
í síma 412 6900, eða með tölvupósti á netfangið runar.
fridgeirsson@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang,
síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í
tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Hveragerðisbæjar
Breiðumörk 20, 810 Hveragerði fyrir kl. 14:00 miðvikudag-
inn 8. Júlí. 2020, en þá verða þau opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Byggingarfulltrúi Hveragerðisbæjar
ÚTBOÐ
á laxveiði í Flekkudalsá
Veiðifélag Fellsstrandar leitar hér með tilboða í lax- og
silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2021 til 2023,
að öllum árum meðtöldum, samkvæmt fyrirliggjandi
útboðsskilmálum og upplýsingum.
Um er að ræða Flekkudalsá, Tunguá og Kjarlaksstaðaá á
Fellsströnd í Dalasýslu í fögru umhverfi og rúmlega 200
km fjarlægð frá Reykjavik. Eingöngu er heimil fluguveiði
og er veitt á þrjár stangir í 72 daga á tímabilinu 1. júlí til
10. september.
Útboðsgögn má nálgast með rafrænum hætti hjá Lands-
sambandi veiðifélaga: elias@angling.is. Er áskilið að
tilboðum sé skilað á þar til gerðu tilboðsblaði í lokuðu
umslagi.
Tilboðum skal skilað til formanns veiðifélagsins Sveins
Gestssonar, Staðarfelli, 371 Búðardal. Frestur til að skila
tilboði rennur út laugardaginn 4. júlí 2020 kl. 13:00.
Tilboðin verða opnuð laugardaginn 4. júlí kl. 14:00 í gamla
Húsmæðraskólanum að Staðarfelli á Fellsströnd í viður-
vist þeirra bjóðenda, sem þess óska.
Stjórn Veiðifélags Fellsstrandar
kopavogur.is
kopavogur.is
kopavogur.is
ÚTBOÐ
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í gerð
aðskilins hjóla- og göngustígs á milli Lindar-
vegar í vestri og golfvallar GKG í austri.
Verkið fellst í gerð hjólastígs sem liggur til
hliðar við núverandi göngustíg og verður að-
greindur með grasræmu og gróðursvæðum.
Jarðvegsskipta skal undir stígum, leggja
jöfnunarlag. Verktaki skal sneiða úr mönum,
leggja rafstreng fyrir götulýsingu og reisa
stólpa.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt.......... 4.850 m2
Fylling.................. 3.900 m3
Afrétting............. 4.900 m3
Strenglagning...... 2.000 m
Ljósastólpar............. 42 stk
Verkið skal vinnast áfangaskipt og skal miða
við að fyrsta og öðrum áfanga verði lokið
20. des. 2020 og þriðja og fjórða áfanga verði
lokið 31. ágúst 2021
Útboðsgögn verða afhent frá og með
23. júní til þeirra sem þess óska með að senda
beiðni um útboðsgögn á utbod@kopavogur.
is. Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðs
vegna útboðsins, tölvupóstfang, símanúmer
og nafn fyrirtækis.
Tilboðum skal skila undirskrifuðu ásamt fylgi-
gögnum á utboð@kopavogur.is eigi síðar
14. júlí kl. 11:00.
Ekki verður boðið upp á að opna tilboðin
að viðstöddum bjóðendum en niðurstöður
útboðsins verður sent á alla bjóðendur að
opnunni lokinni.
Auglýsingin er einnig birt á útboðsvef
Ríkiskaupa, www.utbodsvefur.is
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.