Fréttablaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 74
Ísland getur gert betur Í tilefni kvenréttindadagsins í gær, 19. júní. fékk Fréttablaðið álit nokkurra einstaklinga á markverðustu þáttum jafnréttisbarátt- unnar og því hverju enn á eftir að breyta. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn@frettabladid.is Hvergi fullkomið jafnvægi Melkorka Magnúsdóttir, 23 ára nemandi í mannfræði við HÍ Ætli kosningaréttur kvenna sé ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar spurt er um mikilvægasta ávinning kvenréttindabaráttunn- ar? En það er merkilegt hvað það er enn erfitt fyrir konur í mörgum löndum að kjósa og hversu stutt er síðan ákveðin lönd veittu konum kosningarétt. Úr hverju þarf enn að bæta? Öll samfélög geta gert betur þegar kemur að jafnrétti kynjanna, þar sem það er líklega ekkert samfélag til, þar sem ríkir fullkomið jafnvægi á milli kynja. Mér finnst konur á Íslandi mega vera meira áberandi í valdastöðum sem og að þær séu teknar alvarlega og á þær hlustað. Mér finnst mjög mikilvægt að tekið verður á því hvernig ungar konur og stelpur eru þvingaðar í hjónabönd með eldri mönnum í ýmsum löndum, en það er samt sem áður bara brotabrot af því sem er mikilvægt að bæta og laga. Sigurinn enn ekki unninn Magnús Geir Þórðarson, 46 ára þjóðleikhússtjóri Kosningaréttur kvenna markaði auðvitað mikilvæg tímamót á sínum tíma hér á landi, en svo blasir kvennafrídagurinn við á átt- unda áratugnum. Kjör Vigdísar og framganga hennar hafði ómetanleg, mótandi áhrif á mína kynslóð og auðvitað höfðu breytingar á lögum um fæðingarorlof mikil áhrif og síðar lög um jafnlaunavottun. Allt afar jákvæð framfaraskref. Ekki bara eitthvert kvennamál Andrea Róbertsdóttir, 45 ára framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu Hægt er að nefna marga stóra pensla þegar spurt er um það mikilvægasta sem áunnist hefur. Eitt það allra mikilvægasta í seinni tíð er þegar farið var að tala um jafnréttismál sem samfélagsmál, mál okkar allra, stærra og meira en bara eitthvert kvennamál. Ef við skoðum atvinnu- lífið í dag þá eru stjórnendur í meira mæli að spyrna í botninn ef þeir fá ævintýralega slappar niðurstöður er kemur að kynjajafnrétti og víða er að finna einlægan vilja til að gera betur. Við sjáum öll að fjölbreytileik- inn er mikilvægur í sjálf bærum heimi og þurfum því að hætta að sóa man-auði. Þeir sem átta sig á að jafnrétti er ákvörðun sjá að það er háþrýstidælan sem við þurftum allan tímann. Þá getum við hætt að stóla á einhvern dúllu-dropa til að hola steininn. Úr hverju þarf enn að bæta? Við þurfum að vera vakandi fyrir bakslagi og stöðnun, varða velsæld fyrir okkur öll og draga sérfræðinga á sviði jafnréttismála í miklu meiri mæli að borðinu – þetta eru fræði og það sýndi sig í COVID að það er mikilvægt að hafa vísindin í stórum skömmtum með brjóstvitinu. Það er engin hjáleið og við þurfum að gera öll smáatriði sýnileg sem bera misréttið uppi. Úr hverju þarf enn að bæta? Í dag finnst mér einna brýnast að við brúum bilið á milli fæðing- arorlofs og dagvistar barna. Það er ómögulegt að fjöldi foreldra ungra barna hafi ekki dagvistarúrræði þegar fæðingarorlofi sleppir. Svo þurfum við að sjálfsögðu að halda áfram að huga að jafnrétti og jafnræði á öllum póstum. Þó margt hafi áunnist þá er sigurinn enn ekki unninn. Við þurfum að huga að því hvaða raddir heyrast í samfélaginu, hvaða staðalímyndum við vörpum fram og gæta þess að setja okkur sjálf og aðra ekki í hefðbundin kyn- hlutverk. Og svo snúast jafnréttis- mál í dag ekki bara um jafnrétti kynjanna – við þurfum að horfa á jafnrétti á víðum grundvelli. Það örlar fyrir samstöðu um að setja feðraveldið í líknandi með- ferð öllum til hagsbóta og allt er morandi í tækifærum til að bæta heiminn með samtali og fræðslu. Svo þurfa konur að fara fyrir fé, það er ljóst. Á hverjum degi hugsa ég til formæðra minna sem börðust fyrir okkur, því jafnréttið hefur sannar- lega ekki komið af sjálfu sér. Konur eiga að vera öruggar heima Stella Briem, 22 ára skipuleggjandi Druslugöngunnar Að mínu mati er það mikilvægasta sem komið hefur fyrir kvenréttindi á Íslandi kvennafrídagurinn 1975. Ég tel þann dag hafa haft meiri áhrif fyrir íslenska kvenréttindabaráttu en nokkur af þeim konum sem voru þar sameinaðar hefði geta ímyndað sér. Verandi einn af skipuleggjendum druslugöngunnar og hafandi verið partur af nýrri femínískum hreyf- ingum eins og Free The Nipple, finnst mér augljóst að kvennafrí hafi sýnt íslenskum konum hve mikill styrkur býr í samstöðu. Þegar íslenskar konur sameinast til þess að fá einhverju breytt, eins og sagan hefur sýnt okkur, erum við óstöðv- andi. Úr hverju þarf enn að bæta? Mér finnst eins og við þurfum meiri umræðu og betri úrræði fyrir þolendur heimilisof beldis og það þarf meiri fræðslu, þá sér- staklega sem beinist að ungu fólki, um „rauðu ljósin“ í of beldissam- böndum, sjá átak Bjarkarhlíðar #rauðuljósin. Núna gengur yfir heimsfaraldur og við sjáum það enn skýrar hve algengt og alvarlegt sam- Barnaafþreying endurspegli fjölbreytileika Bergrún Íris Sævarsdóttir, 35 ára rithöfundur Það er erfitt að velja eitthvað eitt sem það mikilvægasta sem áunnist hefur en árið 1275 var bannað að gifta konur gegn vilja þeirra. Ég get ekki ímyndað mér nokkuð verra en að einhver sé neyddur í hjónaband en þó viðgengst það enn í mörgum löndum. Yfirráð konunnar yfir eigin líkama er stórt og mikilvægt málefni sem hefur smámjakast í gegnum tíðina með tilkomu p-pill- unnar, löglegu þungunarrofi og svo framvegis. Úr hverju þarf enn að bæta? Mig dreymir um heim þar sem öll kyn fá verðskuldað pláss í barna- menningu. Það er ekki bara mikil- vægt kvenréttindamál heldur skipt- ir það öll börn okkar máli, sama hvernig þau skilgreina sig. Best er ef börn eiga fyrirmyndir af öllum kynjum í hverri þeirri af þreyingu sem þau kjósa sér. Hvernig fullorðið fólk skrifar um kynin í bókum, bíó- myndum og tölvuleikjum skiptir gríðarlegu máli. Við erum öll alls konar og afþreying fyrir börn þarf að endurspegla það. Ísland getur gert enn betur í mál- efnum transfólks. Ofureinfaldir hlutir eins og salerni og baðaðstaða fyrir alla á sundstöðum er nokkuð sem væri auðvelt að laga en myndi um leið gera samfélagið okkar mun manneskjulegra. Jafnréttismál eru efnahagsmál Halldór Benjamín Þorbergsson, 41 árs framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Það að jafnréttismál skuli vera í forgrunni í allri samfélagsþróun og þróun vinnumarkaðarins er auð- vitað ákveðið afrek út af fyrir sig. Betur má ef duga skal en orð og vilji eru til alls fyrst. Dæmi um þá sigra sem unnist hafa og ég vil sérstaklega nefna er aðgengi foreldra að leik- skólaplássi sem stuðlar að jafnari stöðu á vinnumarkaði. Kærunefnd jafnréttismála, sem var sett á laggirnar og með henni lögfest að ef tveir umsækjendur um starf væru jafnhæfir þyrfti að ráða þann sem væri af því kyni sem hall- aði á. Síðast en ekki síst sú lagalega skylda að konum og körlum skuli greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Þetta eru dæmi um hvernig samfélagið getur hraðað þessari mikilvægu vegferð með því að skapa umgjörð. Úr hverju þarf enn að bæta? Ég hef beitt mér fyrir því að brúa umönnunarbilið frá því að fæð- ingarorlofi foreldra lýkur og þar til börn fá pláss á leikskóla. Ég trúi því að það sé eitt stærsta jafnréttismál nútímans enda sýna rannsóknir að barneignir hafa jákvæð áhrif á laun karla en neikvæð á laun kvenna. Lagfæra þarf þessa skekkju. Mikil- vægt er að stjórnvöld búi íbúum sínum þannig aðstæður að foreldrar hafi raunverulegt val um það hvern- ig fjölskylduábyrgð og þátttöku for- eldra á vinnumarkaði er háttað. Jafnréttismál eru efnahagsmál. Fyrirtæki sem ætla að ná árangri verða að setja þau á dagskrá. Kyn- slóðir sem eru að vaxa úr grasi munu líta þessi mál öðrum augum og gera skýrar kröfur um jafnrétti. Þetta segi ég ekki aðeins sem for- svarsmaður atvinnulífsins heldur sem faðir sem vill jöfn tækifæri fyrir dóttur mína og syni. félagslegt vandamál heimilis ofbeldi er. Konur eiga að vera öruggar á sínu heimili og við þurfum að standa okkur betur sem samfélag í að tryggja þetta öryggi. Þann 19. júní árið 1915 fengu íslenskar konur, 40 ára og eldri, kosningarétt til Alþingis. 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.