Fréttablaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 92
Lífið í
vikunni
14.06.20-
20.06.20
ÞEKKINGIN ER TIL
STAÐAR, ÁHUGINN ER
TIL STAÐAR. EFTIR HVERJU
ERUM VIÐ AÐ BÍÐA?
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
DÓRI Á DILLI
Gunnar Karl Gíslason á Dilli óttaðist
ekki um Michelin-stjörnuna þótt
hann leyfði Dóra DNA að breyta
virðulegum veitingastaðnum í
grísasamlokubar í eina kvöldstund,
síðastliðinn þriðjudag.
SPRINGA SUMARLANGT
Þjóðhátíðardagurinn markaði
upphaf blómum prýddrar flugelda-
sýningar danshöfundarins Siggu
Soffíu, sem nær hámarki á Menn-
ingarnótt þegar litskrúðug blóm
springa út á jörðu sem á himni.
HRISTU
FRAM
PLÖTU
Traustu
vinirnir í
Upp-
lyftingu
ætla að
heilsa og
kveðja með
nýrri plötu um mánaðamótin.
Jóhann G. Jóhannsson heitinn á
ellefu af tólf lögum plötunnar,
sem tók tólf ár að hrista fram úr
erminni.
DANSAR VIÐ EIGIN
HJARTSLÁTT
Í gær kom út lagið Flugdreki eftir
Þórunni Antoníu Magnúsdóttur
og Agga Friðberts. Það fjallar um
að rísa upp þrátt fyrir erfiðleika og
læra að svífa á eigin vængjum.
Fávitar er fræðslubók sem mun innihalda mörg hundr uð spur ningar íslenskra ungmenna sem ég hef séð um að svara á fyrirlestrum um allt land
og á Instagram-síðunni Fávitar.
Þær fjalla meðal annars um kynlíf,
ofbeldi, femínisma, fjölbreytileika
og kynfæraheilsu. Þetta eru svo
gríðarlega gagnlegar upplýsingar
því þær sýna okkur nákvæmlega
hvaða svörum íslenskir unglingar
eru að óska eftir,“ segir baráttu- og
tónlistarkonan Sólborg Guðbrands-
dóttir. Hún hefur verið áberandi
síðustu árin fyrir ötula baráttu sína
gegn kynferðisof beldi á Fávitum,
Instagram-síðu þar sem hún beinir
kastljósinu að kynferðislegri áreitni
á samfélagsmiðlum.
„Á meðan skólakerfið í heild sinni
tryggir ekki næga kyn- og kynja-
fræðslu fyrir öll börn er mikilvægt
að grípa inn í aðstæðurnar og ég
held að þessi bók verði öflugt tól til
að skapa umræður um þessi málefni
heima fyrir sem og annars staðar.
Bókin hefur verið í kollinum á mér
í langan tíma en í vinnslu í nokkra
mánuði. Hún mun svo koma út fyrir
jólin,“ segir Sólborg.
Gæti þetta ekki án fylgjendanna
Hún segir að vinnan við bókina
gangi vel.
„Ég er á fullu að skrifa og sanka að
mér upplýsingum þessa dagana. Ég
notast mikið við þær athugasemdir
sem ég hef fengið frá fylgjendum
Fávita síðustu ár, til að sýna fram á
fjölbreytileikann í þessu öllu saman.
Ég hef lært alveg ótrúlega margt
síðustu ár af kláru fólki, sem mun
gagnast mér við skrifin. Þetta er
ekki bara mitt verkefni, heldur eitt-
hvað sem þúsundir Íslendinga hafa
komið að og gert mögulegt, en það
eru rúmlega 27 þúsund manns sem
fylgja Instagram-síðunni. Ég gæti
þetta ekki án þeirra,“ segir hún.
Söfnunin hefur verið í gangi
síðastliðnar vikur á Karolina Fund
og segir Sólborg hana hafa gengið
vonum framar.
„Á Karolina Fund er hægt að
forpanta hjá mér bækur og styðja
þannig við útgáfuna eða jafnvel
bóka þar hjá mér fyrirlestur um
þessi málefni,“ segir Sólborg, sem
gefur bókina út á eigin vegum.
Jólagjöfin í ár
Sólborg segir það því kjörið að fólk
nýti tækifærið, festi kaup á jólagjöf-
inni í ár tímanlega og styðji góðan
málstað í leiðinni ásamt því að upp-
fræða viðtakandann.
„Það væri allavega ekkert slor að
mínu mati að klára jólagjafainn-
kaupin í júní. Bókin ætti að geta
náð til allra að einhverju leyti, hvort
sem það eru unglingarnir, foreldrar
eða forráðamenn, kennarar, eða
bara fullorðið fólk sem er líka að
velta fyrir sér lífinu og tilverunni.
Það verður án efa eitthvað í henni
sem þú hafðir ekki hugmynd um
eða vantaði svar við. Það verður í
þokkabót örugglega skemmtilegt að
útskýra fyrir afa gamla hvers vegna
þú gafst honum eitthvað sem kallast
„Fávitar“ í jólagjöf,“ segir Sólborg.
Á næsta ári verður boðið upp á
valfag á unglingastigi á Akureyri
sem heitir einfaldlega Fávitar.
„Grunnskólakennari þaðan setti
sig í samband eftir að ég var með fyr-
irlestur fyrir nemendur þar. Hann
spurði mig hvað mér þætti um að
bjóða upp á valáfangann „Fávitar“
fyrir unglingana á svæðinu. Ég tók
auðvitað bara vel í það og í kjölfarið
samþykkti Akureyrarbær að bjóða
upp á áfangann, sem verður byggður
á efni frá mér,“ segir hún
Fleiri skólar hafa sýnt áfanganum
áhuga.
„Það er því greinilega áhugi fyrir
aukinni kyn- og kynjafræðslu í
skólakerfinu okkar, ekki bara frá
nemendunum, heldur einnig starfs-
fólkinu. Ég á því ansi erfitt með að
skilja hvers vegna það tekur svona
óskaplega langan tíma að bæta
skólakerfið í heild sinni og tryggja
þessa nauðsynlegu fræðslu fyrir
öll börnin okkar. Þekkingin er til
staðar, áhuginn er til staðar. Eftir
hverju erum við að bíða?“
Samningur við Sony
Þrátt fyrir annríki gaf hún sér nýlega
tíma til að skrifa undir samning við
Sony.
„Ég er einnig tónlistarkona og
skrifaði undir hjá Sony Music á dög-
unum. Ég stefni á að gefa út nýtt lag
í byrjun júlí og er mjög spennt fyrir
því að leyfa fólki að heyra.“
Hvernig ætlar hún svo að eyða
sumrinu?
„Ég er víst búin að lofa mér í ein-
hver bókaskrif. Annars ætla ég
bara að reyna að njóta þess að það
sé svona bjart úti, hvíla mig vel og
verja tíma með fólki sem mér þykir
vænt um. Er það ekki það sem þetta
snýst um?“
Hægt er að leggja verkefninu lið á
karolinafund.com.
steingerdur@frettabladid.is
Fávitar á bókarformi
Nú stendur yfir söfnun fyrir gerð bókarinnar Fávitar, fræðslubók
um fjölbreytileika, ofbeldi, samþykki og kynlíf eftir Sólborgu.
Sólborg skrifaði undir samning við Sony á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMELLTU Á VÖRU OG
ÞÚ FERÐ BEINT INN Í
VEFVERSLUN
DORMA.IS
SUMAR
tilboðin
Sumarið er
komið í DORMA
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
Zone og Affari og smávara
2-11 | RÚM 12–23 | Mjúkv
ara og dúnn 24–27 | Stólar
28–29 | Sófar 30–37 | Sve
fnsófar 38–39
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Sumarið er komið í DORMA
Verslaðu á dorma.is
LICATA
2ja og 3ja sæta sófar
Sófarnir eru í tvennskonar litum af Kentucky áklæði. Annarsvegar
koniak og hinsvegar steingráu. Svartir nettir járnfætur. Stærð 2ja
sæta: 159 x 94 x 82 cm. Stærð 3ja sæta: 199 x 94 x 82 cm
2ja sæta Dormaverð: Aðeins 119.990 kr.
3ja sæta Dormaverð: Aðeins 149.990 kr.
VERÐ
ER GOTT
VERÐ
DORMA
Sendum frítt
um land allt
2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð