Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2020, Blaðsíða 4
4 3. janúar 2020FRÉTTIR Það er staðreynd að… Verslunarkeðjan Walmart tekur við færra fólki í umsóknum en Harvard. Að meðaltali kafna 100 manns á kúlu­ pennum árlega. Ótti við löng orð kallast Hippopotomonstrosesquipedalio­ phobia. Það tekur átján mánuði að mála Eiffel­turninn og það þarf að gera á þriggja ára fresti. Kökuskrímslið í Sesame Street heit­ ir í raun og veru Sid. Þessi bölvaða syndaaflausn T rúaðir Íslendingar biðja almáttugan guð sinn reglulega um sitt daglega brauð og fyrirgefningu syndanna. Svarinu hefur ríkið kallað með hinu svokallaða áramótaskaupi – brauðbita sem ráðamenn og auðvaldið kaupir sér syndaaf- lausn með. Gerum upp árið, gerum grín að því sem miður fór og höldum svo áfram inn í nýtt ár með hreinan skjöld. Svarthöfði telur þetta vandamál Ís- lendinga í hnotskurn. Þessi bölvaða synda- aflausn, þessi fyrirgefning, þessi tilhneiging til að læra ekki af mistökunum og horfa bara beint fram á við. Kannski vill landinn meina að þetta sé dæmi um einhvers konar núvit- und eða annað álíka hippasýrubull. En þetta kemur hins vegar í veg fyrir að við drögum lærdóm af mistökum okkar, þetta kemur í veg fyrir framfarir og heldur okkur áfram í þessari vitstola bjartsýnishjarðhegðun sem hefur og mun alltaf koma okkur í koll. Svarthöfði telur að áramótaskaupið sé ódýr leið íhaldsins og kapítalista til að halda óskertum völdum á landinu. Þeir gera hvurn djöfulinn þeim sýnist ár eftir ár, en síðan er því stillt upp í svonefndan „sketch“ í ára- mótaskaupinu og þá geta Íslendingar fyrir- gefið allt, enda búnir að hlæja að því, og hlát- ur er allra meina bót, ekki satt. Að mati Svarthöfða ætti að skipta þessu bölvaða skaupi út fyrir klukkutíma þar sem tekið er fyrir það versta á árinu og kynt undir reiði og óánægju landsmanna. Þá getum við hafið nýtt ár með heygafflana og kyndlana á lofti, tilbúin að knýja fram þær breytingar sem virkilega þarf að gera á árinu. Ekki láta áramótaskaupið blekkja þig. Berstu á móti múgsefjun í formi glens og gamans. Förum inn í nýtt ár með augun opin og fyrirgefum ekki okkar skuldunautum. n Hver er hann n Hann er fæddur 10. nóvember árið 1964. n Hann er þriggja barna faðir. n Hann var valinn íþróttamaður ársins á Íslandi árið 1994. n Hann er rithöfundur og athafna­ maður með meiru. n Árið 2006 fékk hann viðurkenn­ ingu á Edduverðlaununum. SVAR: MAGNÚS SCHEVING Svarthöfði Ár rafmyntarinnar Þ að er ýmislegt sem mun gerast árið 2020 en meðal þess sem lítur dagsins ljós er rafmyntin Libra sem er sprottin úr herbúðum samfélags- risans Facebook. Tilkynnt var um þróun myntarinnar um miðbik seinasta árs. Facebook leiðir þróun rafmyntarinnar en samstarfsfélag- ið Libra Association mun halda utan um myntina. Meðal stór- fyrirtækja sem eru hluti af Libra Association eru Mastercard, Visa, eBay og Uber, en félagið verður ekki rekið í hagnaðarskyni. Libra verður umhverfisvæn rafmynt, ólíkt Bitcoin. Þá mun Libra vera bundin ákveðinni varasjóðseign, ólíkt Bitcoin, sem gerir það að verkum að Libra verður öruggari gjaldmiðill þar sem gengið verður ekki sveiflukennt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.